Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 164

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 164
162 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 ekki inn í virtan skóla sem kennir gagnlegri greinar. Kannski er þessu öðru vísi farið hér. Ef ég lít á fólk sem er örlítið eldra en ég og hugsa um hvers konar kennara það hafði – mig langar ekki að segja þetta á prenti en læt mig hafa það – þá var það öflugri kennarahópur en það fengi í dag. Margir sem áður fyrr hefðu farið í kennslu myndu ekki gera það í dag. Fáir myndu mótmæla þessu. Þetta er afleiðing þess að dreifa menntuninni yfir svona mörg ár. Það er mjög erfitt að fá mannskap til þess að kenna þetta allt. Í flestum atvinnugreinum er reynt að gera hlutina eins hratt og mögulegt er – en ekki í menntakerfinu – þar virðist stefnan að lengja framleiðsluferlið eins mikið og mögulegt er. Og hver er útkoman – jafngóð eða betri en áður? – ég er ekki viss. TUM: Í atvinnuauglýsingum stendur oft að krafist sé háskólamenntunar sem nýtist í starfi. Það er með öðrum orðum krafist háskólagráðu án þess að vinnuveitendur viti nákvæmlega hvaða hæfni er leitað að. Þeir virðast ekki kunna við að segja að krafist sé hvaða háskólagráðu sem er en stundum virðist sem svo sé. AW: Einmitt. Mágur minn lýsti því þannig þegar þeir voru að ráða fólk til starfa í stórfyrirtæki og þurftu að grisja umsóknabunkann, þá losuðu þeir sig fyrst við þá sem ekki höfðu háskólagráðu, síðan litu þeir aðeins á einkunnirnar. Námsgreinin sjálf, það sem viðkomandi hafði lært, skipti engu máli. Að lokum grisjuðu þeir með því að taka aðeins þá í viðtal sem gátu stafsett rétt og kunnu greinarmerkjasetningu. Það var skilvirkasta leiðin en vafalaust var sú hæfni komin fram um ellefu ára aldur. Samt þurftu umsækjendur að læra í allavega 10 ár í viðbót. Þetta er brjálæði. Ég hef stundum áhyggjur af því að við dreifum menntun allt of mikið, á allt of mörg ár. Og vanrækjum marga nemendur með því að kenna þeim ekki grundvallarfærni. TUM: Ef ég skil þig rétt þá viltu verja meira fé í kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. AW: Já, við þurfum að kenna nemendum það sem þeir þurfa virkilega á að halda. Ég held líka að við þurfum að styrkja kennaramenntun og reyna að tryggja að kennararnir okkar séu í raun færir um að kenna. Kannski er þetta ekki svo mikið vandamál hér en í Englandi er staðan svo ójöfn, það besta er mjög gott en það versta er líka afleitt. TUM: Síðustu PISA-niðurstöður sýndu að íslenskir skólar eru mjög líkir innbyrðis. AW: Í Bretlandi óttuðumst við að munurinn milli þeirra hæstu og lægstu yrði enn meiri en hann í reyndinni var. Leið kvenna út á vinnumarkaðinn TUM: Þú ert dálkahöfundur, skrifar í Times Higher Educational Supplement. Er það mikilvægt fyrir þig? AW: Nei, en rektor er mjög hrifinn af því. Ég er með fasta stöðu svo ég get gert það sem ég vil. Jú annars, mér finnst þetta mikilvægt og ég nýt þess að skrifa þessa pistla. Ég segi hluti sem ég hef ekki sagt annars staðar enda tekur það svo langan tíma að skrifa akademískar greinar. Það ætti að hvetja háskólafólk mun meira til svona skrifa! TUM: Í greininni Working girls fullyrðir þú að skólakerfið hafa tapað miklu þegar formlegar hindranir á atvinnuþátttöku kvenna lögðust af. Gætirðu skýrt þetta nánar? AW: Um allan heim fór vaxandi menntun og kvenfrelsi saman. Og alls staðar var kennsla fyrsta almenna starfið sem menntaðar konur gátu lagt fyrir sig. Ævisögur 19. aldar kvenna eru fullar af sögum um menntaðar konur úr verkamannastétt sem urðu kennarar í sveitaþorpum. Millistéttarkonur líka, þetta var lausn, starf sem þær máttu sinna. Konur í Viðtal við Alison Wolf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.