Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 8

Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 8
Gerðir Kirkjuþings 2007 Á þessum sviðum er sannarlega brúarsmíð í gangi. í slíkri opnun er að finna lykla að hlutverki kirkjunnar hvað menninguna varðar í upphafi nýrrar þúsaldar. I samtali kirkju og menningar, guðfræði og heimspeki, litúrgíu og listanna, opnast nýir möguleikar. Þetta gerir kröfu til kirkjunnar að endurheimta hina vitsmunalegu alvöru í almannarými sem er æ meir að þróast í átt til bemskrar eða öllu heldur gelgjuskeiðs- yfirborðsmennsku og alvömleysis. Samningur Kirkjuráðs og Háskóla íslands um starfsþjálfun prestsefna, og eflingu símenntunar sem óskað er eftir að Kirkjuþing staðfesti, minnir á mikilvægi guðfræðimenntunar og prestsmótunar. Þjóðkirkjunni er í mun að fá öfluga hirða og leiðtoga, guðfræðinga og kennimenn. Því er mikilvægt að styrkja guðfræðideild háskólans til að sinna því verkefni. lnnri kirkjuréttur Með lögum um Kirkjuráð á sínum tíma var stigið afdrifaríkt skref í kirkjuskipan vorri þegar skilgreint var með lögum forræði Þjóðkirkjunnar yfir innri málum kirkjunnar. Eða eins og segir í lögunum: „(Kirkjuráð hefur) samþykktaratkvæði og ákvörðunarrétt um guðsþjónustur kirkjunnar, veitingu sakramenta og kirkjulegar athafnir og helgisiði þó eigi fyrr en tillögur hafa verið samþykktar á prestastefnu." Þar með afsalaði ríkisvaldið sér öllum atbeina að hinum innri málum. Það var falið kirkjunni sjálfri. Sú skipan var svo staðfest enn með tilkomu Kirkjuþings og loks endanlega með lögunum 78/1997. Málefnum sem fyrrum var skipað með konungsboðum og forordningum á grundvelli kirkjuordinantíunnar og norsku laga, um skírn, um heilaga kvöldmáltíð, um vitjun sjúkra, um fermingu, vígslu, þessir þættir eru á forræði Þjóðkirkjunnar sjálfrar. Segja má þó að hún hafi ekki axlað það forræði nema að hluta. Enn eru konungsbréf og forordningar í lagasafninu, meir og minna án mikillar viðfestu í því umhverfi og samfélagi sem kirkjan býr við. Um ýmsa veigamikla þætti í þessum efnum gilda aðeins hefð og venja. Til dæmis þarf að leita til norsku laga til að finna játningaritum Þjóðkirkjunnar stað, þó víða sé vísað til þeirra, svo sem -óbeint- í stjórnarskrá lýðveldisins. Ég hef í samráði við biskupafund afráðið að í tilefni af 50 ára afmæli Kirkjuþings muni hinn innri kirkjuréttur, kirkjuskipan, verða til umfjöllunar á prestastefnu og á Kirkjuþingi næsta árs. Hef ég lagt drög að slíkum samþykktum sem leyst gætu hin gömlu konungsboð af hólmi og mun senda út til presta og safnaða til umræðna og viðbragða í byrjun næsta árs. Kirkjuþing myndi síðan fjalla um og staðfesta þær samþykktir. Þar með höfum við eignast kirkjuordinantíu 21. aldar, grundvallarsamþykktir um meginatriði kirkjulífs og iðkunar. Verði þeim skipað ásamt starfsreglum Kirkjuþings, stefnumörkunum Kirkjuþings og samkirkjulegum samþykktum sem Þjóðkirkjan á aðild að. Að mestu leyti hljóta þessar samþykktir að byggjast á gildandi hefðum og venjum okkar kirkju, og því sem nágrannakirkjur okkar hafa verið að vinna undanfarið. Margbreytni og hefðarfesta Ég vísiteraði Rangárvalla- og Skaftafellsprófastsdæmi á s.l. sumri og er nú að vísitera Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Kirkjan okkar er fjölbreytt, aðstæður eru býsna ólíkar í Hornafirði og Háteigssókn. En það er sama kirkjan. Við erum á sömu vegferð, á sama báti og á sama sjó. Hagsmunir tengjast órjúfanlega. Starfið er eitt, markmiðið er eitt. Meðal íslendingurinn fer tæplega fjórum sinnum í messu á ári, ef marka má kannanir. Þetta er markhópur sem mikilvægt er að hlynna að, að fái andlega næringu 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.