Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 23
Gerðir Kirkjuþings 2007
Vígðir menn eru 12 og leikmenn 17. Jafnframt sitja þingið áfram með málfrelsi og
tillögurétt, biskup íslands, vígslubiskupar, fulltrúi guðfræðideildar, og dóms- og
kirkjumálaráðherra eða fulltrúi hans. Þingstörf gengu vel þótt miklar annir væru.
Kirkjuráð ræddi á framangreindum fundi með forsætisnefnd og formönnum fastra
þingnefnda um tengsl héraðsfunda og Kirkjuþings en mikilvægt er að héraðsfundir
fjalli um mál sem lögð eru fram á Kirkjuþingi. Eðlilegt er að mál liggi í meginatriðum
fyrir að vori þegar halda á héraðsfundi en víða er erfitt að koma við aukahéraðs-
fundum að hausti. Fram kom á þessum fundi að fjölgun kirkjuþingsfulltrúa hefði
reynst góð breyting, styrkt þingið og nefndarstörfm.
Unnið hefur verið að nýjum vef Kirkjuþings á tímabilinu og hefur hann verið
tekinn í notkun. Vefurinn skiptist í opinn vef fyrir alla og lokað vefsvæði
kirkjuþingsfulltrúa og starfsmanna þingsins þar sem málin eru aðgengileg í þinglegu
horfi auk margra fylgiskjala og ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna.
Við þær breytingar á þjóðkirkjulögum nr. 78/1997 að Prestssetrasjóður er nú
viðfangsefni Kirkjumálasjóðs en ekki sjálfstæð stofnun sem heyrir beint undir
Kirkjuþing er ljóst að skýrsla Prestssetrasjóðs er ekki lengur sérstakt þingmál.
Prestssetraumsýsla Kirkjumálasjóðs er þó sérgreint viðfangsefni áfram og lýtur m.a.
sérstakri stjóm. Hins vegar fýlgir máli þessu skýrsla stjórnar Prestssetrasjóðs fyrir
tímabilið 1. júní 2006 - 31. maí 2007 og ársreikninga sjóðsins fyrir árið 2006 er að
finna í 2. máli þingsins.
Afgreiðsla mála Kirkjuþings 2006
Kirkjuráð fjallaði um og samþykkti hvernig vinna skyldi úr samþykktum Kirkjuþings
samkvæmt því sem hér greinir nánar. Vísa má að auki til fundargerðar af fyrrnefndum
kirkjuráðsfundi í nóvember 2006, en þar er ítarlegar fjallað um ábendingar í
nefndarálitum. Héraðsnefndum var sent bréf 14. nóvember 2006, þar sem farið var
yfir allar samþykktir þingsins, sem ástæða þótti til að vekja sérstaka athygli á.
Farið var yfir ályktanir og samþykktir Kirkjuþings 2006:
1. mál Kirkjuþings 2006. Skýrsla Kirkjuráðs.
Kirkjuþing ályktaði eftirfarandi (er skáletrað hér fyrir neðan):
1. Kirkjuþing 2006 hvetur til þess að áherslu þessa starfsárs ,,fjölþætt þjónusta - opin,
virk og gefandi” verði fylgt eftir og hún gerð sýnilegri. Prófastsdæmin eru hvött til
virkrar þátttöku í þessu starfi. Jafnframt felur Kirkjuþing Kirkjuráði að tryggja aukið
fjármagn til kærleiksþjónustu.
2. Kirkjuþing 2006 tekur undir ræðu biskups um að vitundarvakningu þjóðarinnar
þurfi til að hamla gegn aukinni neyslu vímuefna. Þingið fordæmir dulbúnar
auglýsingar á áfengi sem flæða yfir ungt fólk. Kirkjan styður þau sem vinna að
forvömum og meðferð ungra vímuefnaneytenda.
Samþykkt var að Biskup íslands fylgdi þessum ályktunum eftir. Biskup hefur
haldið þeim málefnum sem ályktun þessi hljóðar um vakandi í ræðu og riti.
3. Kirkjuþing 2006 fagnar átakinu lífsleikni í framhaldsskólum og hvetur sóknir og
prófastsdæmi til að styðja við verkefnið.
Kirkjuráð kynnti héraðsnefndum þessa samþykkt eins og áður hefur komið
fram. Skýrsla verkefnisstjóra fræðslumála á Biskupsstofu, sr. Halldórs Reynissonar
um verkefnið var lögð fram á fundi Kirkjuráðs í septembermánuði sl. Skýrslan fylgir
máli þessu.
21