Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 27
Gerðir Kirkjuþings 2007
Kirkjuþing 2006 samþykkir að beina því til Kirkjuráðs að komið verði á fót
tilraunaverkefni um uppbyggingu og þróun þeirrar kœrleiksþjónustu sem lýtur að
eftirfylgd í söfnuðum. Verkefnið hefjist í ársbyrjun 2007.
Kirkjuráð skipaði þriggja manna starfshóp sem fór yfir og mat framlagðar
tillögur og kostnaðaráætlun og skilaði að því búnu tillögum til Kirkjuráðs um
framkvæmd verkefnisins og kostnað vegna þess. I framhaldi af því var skipaður
starfshópur um verkefnið. Starfshópinn skipa sr. Guðlaug Helga Asgeirsdóttir,
sjúkrahúsprestur og fulltrúi á Kárkjuþingi, Guðrún Kristín Þórsdóttir djákni, fulltrúi
Djáknafélags íslands sr. Svavar Stefánsson, sóknarprestur og kirkjuþingsfulltrúi sem
fulltrúi Prestafélags íslands. Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni, verkefnisstjóri á
Biskupsstofu, vinnur með hópnum.
18. mál Kirkjuþings 2006. Skipun nefndar til að vinna tillögur að heildarskipan
þjónustu Þjóðkirkjunnar. Ályktun Kirkjuþings var svohljóðandi:
Kirkjuþing 2006 samþykkir að beina því til Kirkjuráðs að skipa nejhd til að vinna
tillögur að heildarskipan þjónustu Þjóðkirkjunnar á grundvelli “Stefnu og
starfsáherslna Þjóðkirkjunnar 2004 - 2010”. Nefndin skili tillögum á Kirkjuþingi
2007 og lokaafgreiðsla málsins verði á Kirkjuþingi 2008.
Samþykkt var að skipa nefnd um heildarskipan þjónustu kirkjunnar til að
vinna áætlun um verkalýsingu og verksvið nefndarinnar. Nefndina skipa sr. Jón Helgi
Þórarinsson, sóknarprestur og kirkjuþingsfulltrúi, sem jafnframt var einn af
flutningsmönnum tillögunnar, Steinunn Amþrúður Bjömsdóttir, verkefnastjóri
stefnumótunar á Biskupsstofu og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari.
Nefndin hefur skilað áfangaskýrslu til Kirkjuráðs og fylgir skýrslan máli
þessu. Kirkjuráð óskar þó eftir að allsherjarnefnd fjalli um málið og ræði þær
meginhugmyndir sem fram koma í skýrslu nefndarinnar.
19. mál Kirkjuþings 2006. Undirbúningur að stofnun Málefna- og siðfrœðiráðs
Þjóðkirkjunnar. Ályktun Kirkjuþings var svohljóðandi:
Kirkjuþing ályktar að fela Kirkjuráði undirbúning að stojhun Málefna- og
siðfræðiráðs Þjóðkirkjunnar sem hafi það hlutverk að styrkja fræðilegan grunn fyrir
þátttöku leikra og lærðra innan Þjóðkirkjunnar í umrœðum á opinberum vettvangi um
helstu álitamál samtímans. Kirkjuráð leggi fyrir næsta Kirkjuþing til umræðu og
afgreiðslu tillögur um hlutverk, skipan og starfshætti Málefna- og siðfræðiráðs
Þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð ákvað að skipa kirkjuþingsfulltrúana Einar Karl Haraldsson og
Kristínu Magnúsdóttur, svo og sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprest í Þorlákshöfn til
að vinna þessar tillögur. Hópurinn skilaði tillögum til Kirkjuráðs og í framhaldi af því
gerði Kirkjuráð nokkrar breytingar á tillögunni og er hún lögð fram á Kirkjuþingi
2007 og nánari grein gerð fyrir henni í þeim kafla skýrslu þessarar er varðar framlögð
mál á Kirkjuþingi 2007.
20. mál Kirkjuþings 2006. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um presta nr.
735/1998
Kirkjuþing samþykkti breytingu á skipan valnefnda þannig að prófastar komu aftur
inn í valnefnd og valnefndarmönnum var fjölgað í níu.
Öllum sóknarnefndum og próföstum landsins var tilkynnt um þessa breytingu
og jafnframt óskað eftir tilnefningu níu fulltrúa í valnefndir í prestaköllum en það á að
gerast að afloknum aðalsafnaðarfundum 2007, samkvæmt starfsreglunum. Handbók
fyrir valnefnd var endurskoðuð og gefin út svo breytt á vefnum. I ljósi þeirra tillagna
25