Gerðir kirkjuþings - 2007, Qupperneq 31
Gerðir Kirkjuþings 2007
óskráðu meginreglna sem stuðst var við í því fordæmisgefandi máli sem nefnt var. Þó
er gert ráð fyrir því að beiðni safnaðar í upphafi skuli vera skrifleg og rökstudd. Enn
fremur skal úrlausn valnefndar vera rökstudd.
17. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum um prestssetur.
Kirkjuráð flytur mál þetta.
Um er að ræða breytingar á starfsreglum um prestssetur, sem nú er að fmna í
starfsreglum um Kirkjumálasjóð vegna rekstrar og umsýslu prestsbústaða og
prestssetursjarða.
Unnið hefur verið að endurskoðun stjómsýslu fasteignamála og er fjallað
nánar um það í kafla skýrslu þessarar um fasteignir. í ljósi þeirra tillagna sem
Kirkjuráð samþykkti um stjómskipulag málaflokksins em lagðar til breytingar á
starfsreglum um prestssetur. Em tillögumar byggðar á því að prestssetur eru nú eign
og viðfangsefni Kirkjumálasjóðs, sem lýtur stjórn Kirkjuráðs, sbr. lög um
Kirkjumálasjóð nr. 138/1993. Eigi að síður er áfram gert ráð fyrir sérstakri stjóm
málaflokksins áfram m.a. vegna þess að um sérhæfðan málaflokk er að ræða sem lýtur
sérstökum lögum, reglum og sjónarmiðum að mörgu leyti.
10. - 18. mál, að frátöldu 17. máli em þingmannamál.
IV. Lög og reglur
A Kirkjuþingi 2006 var samþykkt samkomulag Þjóðkirkjunnar og ríkisins um
prestssetur frá 20. september 2006 (12. mál Kirkjuþings 2006). Samkomulagið kallaði
á breytingar á lögum um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997.
Kirkjuráð vann breytingatillögur og lagði fram á Kirkjuþingi 2006 og vom þær
samþykktar og sendar dóms- og kirkjumálaráðherra (24. mál Kirkjuþings 2006).
Dóms- og kirkjumálaráðherra lagði enn fremur fram fmmvarp til laga um
breyting á lögum um stöðu, stjóm og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 á þinginu
um að biskup Islands skipi sóknarpresta eftirleiðis í stað dóms- og kirkjumálaráðherra
(14. mál Kirkjuþings 2006). Kirkjuþing ályktaði um frumvarpið og samþykkti
tilteknar breytingar á því.
Dóms- og kirkjumálaráðherra sameinaði þessi tvö framangreindu fmmvörp í
eitt mál og lagði fram á Alþingi, eftir framlagningu í ríkisstjóm venju samkvæmt.
Alþingi samþykkti fmmvarpið sem lög þann 17. mars 2007. Gildistaka þess er annars
vegar 1. júní 2007 varðandi prestssetrin og hins vegar 1. desember 2007 varðandi
breytingar á skipun sóknarpresta. Lög um prestssetur nr. 137/1993 féllu brott 1. júní
2007.
Samþykkt fmmvarpsins gerði nauðsynlegt að endurskoða reglur um
fasteignaumsýslu Þjóðkirkjunnar þar sem prestssetrin verða þinglýst eign
Kirkjumálasjóðs eftirleiðis. Tillögur að starfsreglum um prestssetur taka mið af hinu
nýja umhverfi. Gert er ráð fyrir að sérstök rekstrarstjóm verði áfram yfir
prestssetmnum en með breyttu hlutverki. Er fjallað nánar um þessar tillögur í
umfjöllun um málið í III. kafla skýrslu þessarar.
Þá var einnig nauðsynlegt að leggja fram tillögur á Kirkjuþingi um breytt
fyrirkomulag á valnefndum vegna hinnar nýju stöðu biskups Islands sem
veitingarvaldshafa og er nánari grein gerð fyrir því í III. kafla skýrslu þessarar.
Kirkjuþing 2006 ályktaði einnig um fmmvarp dóms- og kirkjumálaráðherra um
breyting á lögum kirkjugarða, greftmn og líkbrennslu nr. 36/1993 og lýsti yfir
stuðningi við meginatriði málsins. Alyktunin var send dóms- og kirkjumálaráðherra
29