Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 32
Gerðir Kirkjuþings 2007
að afloknu Kirkjuþingi 2006, en eigi að síður hefur frumvarpið ekki verið lagt fram á
Alþingi.
Ýmsar starfsreglur voru samþykktar á Kirkjuþingi 2006. Þær em birtar ásamt
öðrum gildandi réttarheimildum á vef kirkjunnar kirkjan.is.
Kirkjuráð veitti Alþingi umsögn um frumvarp til laga um stofnfrumurannsóknir.
V. Fjármál
Fjárhagsáætlanir og úthlutun
Kirkjuráð samþykkti í desembermánuði 2006 fjárhagsáætlanir Kirkjumálasjóðs og
úthlutaði úr Jöfnunarsjóði sókna og Kirkjumálasjóði fyrir áiáð 2007. Veitt var fé til
verkefna sem lögmælt eru, verkefna samkvæmt samþykktum Kirkjuþings og verkefna
samkvæmt sérstökum ákvörðunum Kirkjuráðs. Að vanda var úthlutað styrkjum til
ýmissa annarra verkefna.
Þá veitir Kirkjuráð framlög til samningsbundinna verkefna, sem Þjóðkirkjan er
aðili að. Má þar t.d. nefna samstarfssamning um útgáfu ritraðarinnar Kirkjur Islands,
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, samning um Löngumýri, Siðfræðistofnun,
stofnun um fjölskyldurannsóknir, o.fl.
Rafrœnar umsóknir
Unnið hefur verið að þróun rafrænnar þjónustu fyrir sóknir og fl. á vef kirkjunnar. I
fyrsta skipti var unnt að sækja um styrki rafrænt á vef kirkjunnar kirkjan.is í
Jöfnunarsjóð sókna og nýttu allmargar sóknamefndir sér það.
Kirkjur Islands
Á árinu komu út í ritröðinni Kirkjur íslands 9. og 10 bindi, Eyjafjai'ðaiprófastsdæmi,
en útgáfa þessi er samstarfsverkefni Biskupsstofu/Kirkjuráðs, Húsafriðunarnefndar
ríkisins, Hins íslenska bókmenntafélags og Þjóðminjasafns íslands.
Kjararáð
Kirkjuráð sendi Kjararáði, sem tók við verkefnum Kjaranefndar og Kjai'adóms skv.
breytingu á lögum þar um, þar sem óskað var eftir að Kjararáð úrskurðaði laun presta,
prófasta og vígslubiskupa með sama hætti og kjaranefnd og kjaradómur gerðu áður.
Samþykkti Kjararáð þá málaleitan.
Greiðslur fyrir aukaverk
Á Kirkjuþingi 2003 var svofelld ályktun samþykkt:
“Kirkjuþing 2003 samþykkir að fela Kirkjuráði að vinna að því að greiðslur fyrir
skírn og fermingarfræðslu verði tekriar út úr gjaldskrá um aukaverk presta og færð
inn íföst laun þeirra eða innlieimt með öðrum hætti”.
Greiðslurnar byggjast á lögum um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk
þeirra nr. 36/1931. Samkvæmt lögunum setur dóms- og kirkjumálaráðherra gjaldskrá
til tíu ára um þóknun til presta. Umboðsmaður Alþingis beindi þeim tilmælum til
Alþingis og dóms- og kirkjumálaráðherra að taka til endurskoðunar ákvæði laga nr.
36/1931 með það í huga að taka afstöðu til þess hvort rétt væri að laun presta annars
vegar og þóknanir þeirra fyrir „aukaverk“ hins vegar væru ákveðin af tveimur
mismunandi stjórnvöldum. Jafnframt að afmarkað yrði nánar í lögum hvað teldust
„aukaverk“ presta þjóðkirkjunnar þannig að löggjafinn tæki beina afstöðu til þess
hvaða þjónustu presta þjóðkirkjunnar hann teldi rétt að þeir greiddu er þjónustunnar
nytu. Ráðherra hefur sent Kirkjuráð erindi vegna þessara ábendinga umboðsmanns.
30