Gerðir kirkjuþings - 2007, Side 36

Gerðir kirkjuþings - 2007, Side 36
Gerðir Kirkjuþings 2007 eins og áður hefur verið greint frá. Þá eru nokkur prestssetur þinglýst eign Prestssetrasjóðs, en sjóðurinn er ekki lengur til í dag sem lögaðili. Eins og fram kemur í 9. gr. samkomulagsins teljast framangreind lög nr. 82/2007, ásamt samkomulaginu sjálfu fullnægjandi eignarheimild til þess að unnt verði að skrá prestsetrin og fá þeim þinglýst sem eign Þjóðkh-kjunnai- (Kirkjumálasjóðs). Kirkjuráð hefur óskað eftir því við sýslumenn landsins að eignarheimild Þjóðkirkjunnar skv. framangreindum heimildum verði þinglýst á Þjóðkirkjuna - Kirkjumálasjóð. Kirkjumiðstöð á Akureyri Kirkjumálasjóður hefur tekið á leigu húsnæði að Brekkugötu lb, Akureyri, en húsnæðið er við Ráðhústorgið og því miðsvæðis. Húsnæðið er um 90 fm. Um er að ræða samstarfsverkefni Kirkjuráðs og héraðssjóðs Eyjafjarðarprófastsdæmis og skipta þessir aðilar með sér kostnaðinum. í húsnæðinu eru tvær skrifstofur, afgreiðslu- og kynningarrými og fundaraðstaða, auk eldhúss og snyrtingar. Vígslubiskup mun deila annarri skrifstofunni með prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis og héraðsprestur prófastsdæmisins og heimsóknarfulltrúi prófastsdæmisins munu deila hinni skrifstofunni. Fundaraðstaða verður nýtt af þessum aðilum eftir föngum. V. Stofnanir á vegum Kirkjuráðs Stofnanir og nefndir skila skýrslum í Árbók kirkjunnar eins og fyn' hefur verið greint frá og er vísað þangað til nánari greinargerða um starfsemi þeirra. Sú umfjöllun sem hér fer á eftir er til fyllingar því eða sérstakrar áréttingar á atriðum sem Kirkjuráð vill vekja athygli Kirkjuþings á. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar Kirkjuráð heimsótti Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og átti gagnlegar viðræður við starfsfólk. Gert er ráð fyrir að auka starfshlutföll starfsmanna um samtals 60%, frá næsta ári. Mun það leiða til aukinnar þjónustu og meiri möguleika á upplýsinga- og fræðslustarfi á vegum stofnunarinnar. Skálholt Kirkjuráð ber ábyrgð á Skálholtsstað, sbr. lög nr. 32/1963. Unnið var eftir nýju skipulagi á starfsemi Skálholts frá fyrra ári og er Skálholtsskóli og Skálholtsstaður nú rekinn sem ein rekstrareining. Framkvæmdastjóri er Hólmfríður Ingólfsdóttir og rektor dr. Kristinn Ólason. Skólaráð hefur fengið nýtt hlutverk og er það fagráð rektors vegna starfsemi Skálholtsskóla. Nýr rektor Skálholtskóla hefur nú unnið í rúmt ár að eflingu hefðbundinna kyrrðardaga og námskeiða. Aðsókn að kyrrðardögum hefur aukist ár frá ári. Meðal nýmæla telst að kyrrðardagar hafa verið fyrir valdai' starfsstéttir í þjóðfélaginu og tiltekna hópa innan kirkjunnar, en auk þess voru haldnir heilsudagar fyrir fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Fermingamámskeið og önnur fræðsluverkefni voru mörg, prédikunarnámskeið, þrettándaakademía, málþing og önnur námskeið í samvinnu við ýmsa aðila eins og rakið er í skýrslu rektors í Arbók kirkjunnar. Aðsókn að Skálholtsstað hefur aukist og hafa tekjur staðarins aukist að sama skapi. Áætlað er að um 100 þúsund manns muni sækja staðinn árlega innan fárra ára og því er margt gert til að bæta þjónustu við ferðamenn og ráðstefnugesti. Aukning hefur verið í fundum og ráðstefnum fyrir starfsfólk og stjórnendur í atvinnulífinu og er búist við að það verði talsverð viðbót í framtíðinni með tilkomu viðbyggingarinnar sem áformað er að rísi við skólann. 34

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.