Gerðir kirkjuþings - 2007, Side 44
Gerðir Kirkjuþings 2007
3. mál - Starfsreglur um skipulag kirkjunnar í héraði
Flutt af biskupi íslands
Frsm. Sigurður Sigurðarson
1. gr.
Sóknir, prestaköll, prófastsdæmi og umdæmi vígslubiskupa eru tilgreind í 12. gr.
starfsreglna þessara.
2. gr.
Þess skal gætt að sókn geti uppfyllt skilyrði um rekstur og fjárhag sókna, sbr.
starfsreglur um sóknamefndir.
3. gr.
Hver sóknarmaður getur gert tillögu um breytingu á skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma. Tillögur um breytingar á skipan sókna og prestakalla skulu fá umsögn
á aðalsafnaðarfundum viðkomandi sókna og því næst bornar upp á héraðsfundi, sem
sendir þær biskupafundi. Hann býr málið til kirkjuþings.
Tillögur um breytingar á skipan prófastsdæma skulu fá umsögn á viðkomandi
héraðsfundum og því næst sendar biskupafundi, sem býr málið til kirkjuþings.
4. gr.
Biskupafundur kannar árlega hvort þörf er á breytingum á skipan sókna, prestakalla
og prófastsdæma, með hliðsjón af hagkvæmni, breytingum á mannfjölda í sóknum,
samgöngum, staðháttum eða aðstæðum að öðru leyti. Við mat á skipan sókna skal líta
til þjónustuþarfa, sögulegra og menningarlegra verðmæta.
5. gr.
Ef prestakalli er skipt hefur skipaður sóknarprestur rétt á að ráða hvom prestakallinu
hann þjónar eftirleiðis.
6. gr.
Sameining sókna eða skipting sóknar skal að jafnaði taka gildi 1. desember eftir að
kirkjuþing það ár hefur hefur samþykkt sameiningu eða skiptingu.
7. gr.
Sé sókn skipt skal uppgjör vegna eigna og skulda fara eftir hlutfallstölu sóknannanna
Sóknarkirkja ásamt búnaði tilheyrir þeirri sókn þar sem kirkjan stendur. Þegar
kirkjusókn er skipt og ný stofnuð, í nýju byggðahverfi, á hin nýja sókn óskert tilkall til
þeirra fjármuna, sem sóknarmenn hinnar nýju sóknar hafa sannanlega lagt til eldri
sóknarinnar, þó að frádreginni sanngjarnri þóknun fyrir þá þjónustu, sem sóknarmenn
nýju sóknarinnar nutu, meðan sóknin var óskipt. Heimilt er að hafa fjárskil eftir
annarri reglu ef um það næst samkomulag milli sóknanna. Framkvæmd fjárskipta er í
höndum þriggja manna skilanefndar er biskup skipar hverju sinni.
8. gr.
Ef sóknir óska eftir að eiga samstarf sín á milli um byggingu og/eða rekstur kirkju og
safnaðarheimilis skal gera skriflegan samstarfssamning, þar sem kveðið er á um hvaða
starfí skuli haldið uppi, hvaða reglur gildi um afnot og umgengni, sbr. starfsreglur um
42