Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 51
Gerðir Kirkjuþings 2007
5. mál - Starfsreglur um Þjóðmálanefnd
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Sigríður M. Jóhannsdóttir
1. gr.
FQutverk Þjóðmálanefndar er að efla og hafa frumkvæði að opinberri umræðu um
samfélagsmál út frá kristnum grunngildum og styrkja faglegan grunn fyrir þá umræðu.
Nefndin stendur fyrir málþingum, útgáfu og kynningarstarfi. Nefndin skal vinna í
samráði við nefndir og stofnanir sem starfa á vegum Þjóðkirkjunnar eða kirkjan á
aðild að.
Þjóðmálanefnd kirkjunnar er Biskupi íslands, Kirkjuráði og Kirkjuþingi til ráðgjafar
um samfélagsmál og siðferðileg álitamál.
2. gr.
Þjóðmálanefnd skilar Kirkjuráði árlegri skýrslu, sem fjallað er um af Kirkjuþingi.
Þjóðmálanefnd gerir starfs- og fjárhagsáætlun sem samþykkt er af Kirkjuráði og lögð
fyrir Kirkjuþing til ályktunar.
3. gr.
Nýkjörið Kirkjuþing kýs fimm menn í Þjóðmálanefnd til fjögurra ára og jafnmarga til
vara. Forsætisnefnd Kirkjuþings gerir tillögu um skipan nefndarinnar. Formaður skal
kjörinn sérstaklega. Að öðru leyti skiptir nefndin með sér verkum. Nefndinni er
heimilt að kalla til sérfróða aðila.
4. gr.
Þjóðmálanefnd hefur aðsetur á Biskupsstofu og sér hún nefndinni fyrir ritara.
Kostnaður af störfum þjóðmálanefndar greiðist úr Kirkjumálasjóði og styrkjum er
kunna að fást vegna verkefna á vegum nefndarinnar.
5. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjóm og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi þegar í stað.
Ákvæði til bráðabirgða
Kosið skal til Þjóðmálanefndar samkvæmt starfsreglum þessum á Kirkjuþingi 2007 og
gildir sú kosning út kjörtímabilið.
49