Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 68

Gerðir kirkjuþings - 2007, Page 68
Gerðir Kirkjuþings 2007 Stjóm prestssetra ásamt presti gætir hlunninda og annarra fjárhagslegra hagsmuna sem kunna að fylgja prestssetrum. Hér er m.a átt við að varðveita greiðslumark það, sem nú er fyrir hendi á prestssetrum landsins sem og veiðihlunnindi. 22. gr. Með hliðsjón af ákvæðum ábúðarlaga má ákveða í haldsbréfi eða með sérstöku samkomulagi að umráðamaður viðkomandi prestsseturs njóti ekki hluta arðs af hreinum tekjum af hlunnindum prestsseturs, sem krefjast ekki sérstaks vinnuframlags umráðamanns. Hlunnindi þessi skulu tilgreind nákvæmlega í haldsbréfi og ef þessi heimild er nýtt skal takmörkun hlunninda getið í auglýsingu um embættið. Renna arðgreiðslumar þá beint í Kirkjumálasjóð og greiðir umráðamaður ekki leigu af þessum hlunnindum, öðmm en þeim sem hann nýtir hlutfallslega skv. áðurnefndu samkomulagi og haldsbréfi. Til viðmiðunar við samkomulagsgerð, skal árleg arðgreiðsla að jafnaði skiptast þannig að 50% renni beint til Kirkjumálasjóðs en 50% til umráðamanns. Arðgreiðslur, allt að 600 þúsund kr. á ári, renna þó óskiptar til umráðamanns. Fjárhæð þessi skal taka breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs frá gildistöku þessara starfsreglna. Náist ekki samkomulag um greiðslu samkvæmt þessu skulu hlunnindin undanskilin ábúð og skal stjórn prestssetra annast um hagsmunagæslu þeirra vegna. Greiðslumark sauðfjár er hluti af þeim eignum og réttindum sem fylgja prestssetrum sem ekki eru talin til fasteignamats jarðarinnar. Stjóm prestssetra hefur heimild til að færa greiðslumark sauðfjár tímabundið milli prestssetursjarða skv. sérstökum vinnureglum stjómar þar um. VIII. Kafli GilcListaka 23. gr. Starfsreglur þessar sem settar em með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. janúar 2008. Frá sama tíma falla brott Starfsreglur um Kirkjumálasjóð vegna rekstrar og umsýslu prestsbústaða og prestssetursjarða nr. 963/2006. Akvæði til bráðabirgða Kirkjuráð skipar stjórn prestssetra, sbr. 3. gr. starfsreglna þessara, er sitji til 30. júní 2011. 66

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.