Gerðir kirkjuþings - 2007, Síða 78
Gerðir Kirkjuþings 2007
Lokaorð forseta Kirkjuþings
Virðulega Kirkjuþing.
Það er eitt af lögmálum lífsins, að allt tekur enda - og enn er komið að leikslokum á
Kirkjuþingi. Fyrir þetta þing voru lögð 20 mál, átta þeirra vom þingmannamál, biskup
Islands flutti eitt mál, Kirkjuráð flutti tíu mál og fjárhagsnefnd eitt mál. Verkaskipting
nefnda varð á þann veg, að löggjafamefnd fékk sjö mál til meðferðar, fjárhagsnefnd
átta mál og allsherjamefnd fimm mál, þar á meðal umfangsmikla skýrslu Kirkjuráðs
með fjölmörgum efnisatriðum til umfjöllunar. Tvö þingmannamál vom dregin til
baka. Kirkjuþing hefur afgreitt önnur mál með tólf ályktunum, þremur nýjum
starfsreglum og þremur breytingum á eldri starfsreglum.
Héraðsfundir og kirkjuþing
Samkvæmt starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir skal halda héraðsfundi víðs
vegar um landið eigi síðar en 15. júní ár hvert en á þessum fundum skal meðal annars
taka til umfjöllunar og afgreiðslu mál, er varða Kirkjuþing. í starfsreglum um
þingsköp Kirkjuþings er jafnframt boðið, að kirkjuþingsfulltrúar skuli að jafnaði
kynna þingmál sín á héraðsfundum og leita eftir umfjöllun héraðsfundar áður en málið
er sent forseta Kirkjuþings eigi síðar en sex vikum fyrir upphaf þingsins á
haustmánuðum. Eins og rætt hefur verið hér á þinginu er ljóst, að þessi tilhögun
gengur ekki upp, enda er reynslan sú, að hvorki einstakir kirkjuþingsfullti'úai- né
Kirkjuráð hafa að einhveiju marki verið tilbúin með fyrirhuguð þingmál á útmánuðum
eða snemmsumars. I sumum kjördæmum að minnsta kosti er mikil tregða og jafnvel
illkleift að boða til aukahéraðsfunda síðar á árinu til að fjalla um kirkjuþingsmál. Það
verður því að finna þessum málum annan farveg og beini ég því til Kirkjuráðs að taka
þetta til sérstakrar athugunar fyrir næsta Kirkjuþing í samráði við forsætisnefnd.
Bœtt vinnubrögð við undirbúning Kirkjuþings
Annað atriði þessu tengt er óhjákvæmilegt að nefna hér, sem kallar á bætt vinnubrögð
við undirbúning Kirkjuþings. Samkvæmt starfsreglum um þingsköp Kirkjuþings skulu
þingmál að jafnaði hafa borist þingforseta sex vikum fyrir upphaf þings og þá sendast
þingfulltrúum svo skjótt sem auðið er. Nægilegt er þó, að hin almenna skýrsla
Kirkjuráðs og skýrsla um fjármál Þjóðkirkjunnar hafi borist forseta tveimur vikum
fyrir upphaf þings. Eins og kirkjuþingsmönnum er kunnugt hafa nokkur vanhöld verið
á þessum skilum. Þetta er mjög miður, því að umræddur framlagningarfrestur er í
rauninni afar þarfur fyrir aðra þingfulltrúa, sem vilja kynna sér mál gaumgæfilega og
undirbúa viðbrögð sín í góðu tómi fyrir Kirkjuþing. Það er jafnframt verðugt
umhugsunarefni, hvort jafn viðamikil skýrsla og skýrsla Kirkjuráðs er þurfi ekki að
berast þingfulltrúum fyrr en nú er ráð fyrir gert í þingsköpum. Þá er kirkjunni ekki
síður gagnlegt að hlýða á andvarann í grasrótinni með því að fyrirhuguð
kirkjuþingsmál séu kynnt og rædd heima í héraði. Forsætisnefnd væntir þess að
Kirkjuráð og þingheimur allur taki þessar ábendingar alvarlega, enda koma bætt
vinnubrögð í þessu efni okkur öllum til góða.
Lífsviðhorf kristinnar trúar vinni á
Meðal nýrra starfsreglna á þessu Kirkjuþingi er ástæða til að nefna sérstaklega
starfsreglur um þjóðmálanefnd, sem nú hefur verið sett á laggirnar að nýju og miklar
vonir hljóta að vera bundnar við. Ef vel tekst til má vænta þess, að lífsviðhorf
76