Peningamál - 01.06.2005, Blaðsíða 18
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
2
18
Fjármunamyndun
Litlar breytingar hafa orðið á horfum um fjármunamyndun frá mars-
mánuði, en þá spáði Seðlabankinn tæplega 34% vexti fjármuna-
myndunar á þessu ári og tæplega 8% samdrætti á því næsta. Upp-
lýsingar sem komið hafa fram síðan, breyta ekki þeirri niðurstöðu að
neinu marki.
Vöxtur fjármunamyndunar atvinnuveganna svipaður og spáð var
í mars
Í spá Seðlabankans í mars sl. var tekið tillit til þess að aukinn þungi
framkvæmda við stóriðju hafði færst yfir á árið í ár, ekki einungis frá
Í apríl sömdu Norðurál annars vegar og Orkuveita Reykjavíkur og
Hitaveita Suðurnesja hins vegar um kaup Norðuráls á 70 MW við-
bótarorku. Samkomulagið gerir Norðuráli kleift að auka ársfram-
leiðslu sína í 260 þús. tonn. Núverandi framleiðslugeta Norðuráls er
um 90 þús. tonn á ári, en stækkun álbræðslunnar sem þegar stend-
ur yfir mun auka árlega framleiðslugetu fyrirtækisins í 212 þús. tonn
á síðari hluta ársins 2006 og í 220 þús. tonn í byrjun árs 2007. Upp
úr miðju ári 2007 verður hafist handa við enn frekari stækkun verk-
smiðjunnar og er áætlað að aukningu framleiðslugetu hennar um
40 þús. tonn verði lokið á síðari hluta ársins 2008. Talið er að kostn-
aður við þennan síðasta áfanga og tilheyrandi orkuöflun muni
nema u.þ.b. 17 ma.kr. Um þriðjungur viðbótarfjárfestingarinnar
mun falla til árið 2007 en tveir þriðju hlutar árið 2008. Gangi þessar
áætlanir eftir verður heildarframleiðslugeta álverksmiðjanna þriggja,
Ísals (Alcan), Norðuráls (Century Aluminium) og Fjarðaáls (Alcoa)
765 þús. tonn árið 2008, en í ár nemur hún u.þ.b. 270 þús. tonn-
um. Framleiðslugetan eykst því um rúmlega 180%.
Rammagrein 2
Staða
stóriðjuframkvæmda
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
0
500
1.000
1.500
2.000
2.500
3.000
Ársverk
Áætlun mars 2005: innlent vinnuafl
Áætlun mars 2005: erlent vinnuafl
Áætlun maí 2005: innlent vinnuafl
Áætlun maí 2005: erlent vinnuafl
Vinnuaflsnotkun vegna
stóriðjuframkvæmda 2001-2009
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Bygging Fjarðaáls, stækkun Norðuráls og tengd orkuöflun
Mynd 2
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Ma.kr. (lína)
0
2
4
6
8
10
% af VLF ársins 2005 (súlur)
Áætlun í mars 2005 (hægri ás)
Áætlun í maí 2005 (hægri ás)
Áætlun í maí 2005 (vinstri ás)
Heildarkostnaður vegna
stóriðjuframkvæmda 2001-2009
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Bygging Fjarðaáls, stækkun Norðuráls og tengd orkuöflun
Mynd 1