Peningamál - 01.06.2005, Blaðsíða 63
Mars 2005
Hinn 7. mars hækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investors
Service lánshæfiseinkunn Landsbanka Íslands hf. vegna langtíma-
skuldbindinga og innlána úr A3 í A2 með stöðugum horfum. Um leið
staðfesti fyrirtækið einkunnina P-1 vegna skammtímaskuldbindinga
með stöðugar horfur og einkunnina C vegna fjárhagslegs styrkleika
með breytingu úr stöðugum í jákvæðar horfur.
Hinn 15. mars jók Íslandsbanki hf. hlutafé sitt um rúmlega 134
milljónir hluta að nafnverði. Nýir hlutir voru greiddir út í formi arðs til
þeirra hluthafa sem þess óskuðu á genginu 10,65 kr. á hlut. Skráð
hlutafé félagsins á aðallista Kauphallar Íslands eftir hækkunina nam
13.134.816.315 kr. að nafnverði.
Hinn 16. mars tilkynnti Landsbanki Íslands hf. að gengið hefði verið
frá útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 350 milljónir evra, eða um
28 ma.kr., innan EMTN-fjármögnunarramma bankans. Til eiginfjár-
þáttar A töldust 150 milljónir evra en afgangurinn til eiginfjárþáttar B.
Hinn 18. mars tilkynnti Straumur Fjárfestingarbanki hf. að gengið
hefði verið frá sölu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 5 ma.kr. Um var
að ræða fyrstu útgáfu bankans á víkjandi skuldabréfum og töldust
þau til eiginfjárþáttar B.
Hinn 22. mars var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka Íslands hefði
ákveðið að hækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lána-
stofnanir um 0,25 prósentur í 9,0% hinn 29. mars. Aðrir vextir hækk-
uðu hinn 1. apríl, á viðskiptareikningum um 0,5 prósentur og á inn-
stæðum á bindireikningum um 0,25 prósentur.
Hinn 31. mars var hlutafé Straums Fjárfestingarbanka hf. hækkað um
sem nam 700 milljónum króna að nafnverði. Skráð hlutafé félagsins í
Kauphöll Íslands eftir hækkunina var 6,1 ma.kr. að nafnverði. Sölu-
verð hins nýja hlutafjár var 7 ma.kr.
Apríl 2005
Hinn 1. apríl varð Bolig- og Næringsbanken ASA (BNbank) í Noregi
hluti af samstæðuuppgjöri Íslandsbanka hf. í kjölfar þess að öll skilyrði
fyrir kaupum Íslandsbanka á BNbank höfðu verið uppfyllt. Upphaf-
lega gerði Íslandsbanki hluthöfum BNbank tilboð þann 15. nóvember
2004 um kaup á öllum hlutabréfum í BNbank. Nam kaupverðið 3,3
milljörðum norskra króna, eða um 35 ma.kr. Þann 15. mars var síðasta
skilyrðinu um kaupin fullnægt.
Hinn 13. apríl tilkynnti Íslandsbanki hf. að dótturfyrirtæki hans í
Lúxemborg, ISB Luxembourg S.A., hefði tekið til starfa og að útlána-
starfsemi útibús Íslandsbanka í Lúxemborg myndi færast til hins nýja
banka.
Annáll efnahags- og peningamála