Peningamál - 01.06.2005, Page 29
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
2
29
VIII Verðlagsþróun og verðbólguhorfur
Verðlagsþróun
Dregið hefur úr verðbólgu frá því að síðasta verðbólguspá Seðlabank-
ans var birt í mars. Minni verðbólgu má rekja til áhrifa sterkara gengis
krónunnar á verðlag innfluttrar vöru og aukinnar samkeppni á dag-
vörumarkaði. Breyting á aðferð Hagstofu Íslands við útreikning vaxta
af húsnæðislánum í húsnæðislið vísitölunnar leiddi einnig til lækkunar
vísitölu neysluverðs í maí.
Breytt aðferð hefur í för með sér lækkun húsnæðisliðar
Verðbólga fór yfir efri þolmörk verðbólgumarkmiðs í febrúar og jókst
enn í mars en þá varð tólf mánaða hækkun vísitölu neysluverðs 4,7%.
Í apríl og maí dró úr verðbólgu, fyrst og fremst vegna áhrifa sterkara
gengis og aukinnar samkeppni á dagvörumarkaði. Breytt aðferð Hag-
stofunnar við útreikning vaxtakostnaðar af húsnæðislánum í hús-
næðislið vísitölunnar hafði einnig í för með sér að vísitalan var 0,45%
lægri í maí en ella hefði orðið, en vísitalan í heild lækkaði um 0,54%
á milli apríl og maí. Breytingin fólst í því að viðmiðunartímabil meðal-
raunvaxta í húsnæðislið vísitölunnar var stytt úr fimm árum í tólf
mánuði (sjá nánari umfjöllun í rammagrein 3). Eftir þessa breytingu
munu áhrif vaxtabreytinga koma fyrr og sterkar fram í vísitölu neyslu-
verðs en áður. Tólf mánaða verðbólga var 2,9% í maí en hefði verið
um 3,4% hefði aðferðin verið óbreytt.
Breytingar á kjarnavísitölunum tveimur sem Hagstofan birtir
gefa vísbendingu um undirliggjandi verðbólgu. Hækkun þeirra hefur
verið heldur meiri en heildarvísitölunnar það sem af er ári, fyrst og
fremst vegna þess að verðlækkun búvöru á árinu kemur ekki fram í
kjarnavísitölunum. Bil sem myndaðist á milli neysluverðsvísitölunnar
og kjarnavísitalnanna á miðju síðasta ári er því nánast horfið. Í maí var
tólf mánaða hækkun kjarnavísitölu 1 3,4% og hækkun kjarnavísitölu
2 var 3,2%. Að meðaltali var verðbólga á fyrsta fjórðungi þessa árs í
samræmi við verðbólguspá Seðlabankans frá því í mars sl., eða 4,4%.
Gengishækkun krónunnar veldur verðlækkun innfluttrar vöru ...
Gengishækkun krónunnar hefur haft töluverð áhrif á þá liði neyslu-
verðsvísitölunnar sem næmastir eru fyrir gengisbreytingum. Í mars var
gengi krónunnar að meðaltali 11% hærra en fyrir ári en tók að veikjast
undir lok mars. Gengishækkun krónunnar fram eftir marsmánuði hefur
haft nokkur áhrif á verð innfluttrar vöru, en áhrifin hafa væntanlega
ekki verið komin fram að fullu þegar krónan tók að veikjast á ný.
Innfluttar mat- og drykkjarvörur eru með gengisnæmustu þátt-
um vísitölu neysluverðs. Í maí hafði þessi þáttur vísitölunnar lækkað
um rúmlega 12% á einu ári. Lækkunin skýrist þó ekki eingöngu af
gengishækkun krónunnar sem hækkaði um 7½%, heldur hefur verð-
samkeppni í lágvöruverslunum einnig stuðlað að verðlækkun. Verð
innfluttrar vöru sem er ónæmara fyrir skammtímagengisbreytingum
krónunnar, t.d. nýrra bifreiða og varahluta, hefur einnig lækkað lítil-
lega undanfarið ár og hefur lækkunin verið mest frá áramótum.
Bensínverð er einnig næmt fyrir gengisbreytingum, en verð-
hækkun á heimsmarkaði vegur á móti áhrifum hærra gengis. Bensín-
Verðbólga janúar 2001 - maí 20051
Mynd VIII-1
J MM J S N J M M J S N J MM J S N J MM J S N J MM J S N
2001 2002 2003 2004 2005
0
2
4
6
8
10
12
12 mánaða breyting vísitölu (%)
Vísitala neysluverðs
Kjarnavísitala 1
Kjarnavísitala 2
Verðbólgumarkmið Seðlabankans
1. Í kjarnavísitölu 1 eru teknir út ýmsir sveiflukenndir liðir, þ.e.a.s.
búvara, grænmeti, ávextir og bensín. Í kjarnavísitölu 2 er að auki
undanskilið verðlag opinberrar þjónustu.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Nokkrir undirliðir vísitölu neysluverðs í maí 2005
Sl. 12 mán. Sl. 6 mán. Sl. 3 mán. Sl. 1 mán.
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
-0,5
-1,0
%
Innlendar vörur án
búvöru og grænmetis
Innfluttar vörur án
áfengis og tóbaks
Húsnæði Opinber þjónusta
Almenn þjónusta
Áhrif á þróun vísitölu neysluverðs
sl. 1, 3, 6 og 12 mánuði
Mynd VIII-2
Heimild: Hagstofa Íslands.
Gengi og verðlag innfluttrar vöru
mars 1997 - maí 2005
Mynd VIII-3
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
90
100
110
120
130
Mars 1997=100
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks
Gengisvísitala fyrir vöruinnflutning
Heimild: Hagstofa Íslands.