Peningamál - 01.06.2005, Síða 32

Peningamál - 01.06.2005, Síða 32
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 5 • 2 32 Meðfylgjandi tafla sýnir efnahagsspár sérfræðinga á fjármálamark- aði sem fram komu í könnun Seðlabankans í byrjun maí. Líkt og undanfarið voru þátttakendur í könnuninni greiningardeildir Íslands- banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf. og Ráð- gjöf og efnahagsspár ehf. Eftir að hafa greint töluvert á um líklega framvindu í febrúar sl. eru sérfræðingarnir nú meira sammála um efnahagsþróun næstu missera. Almennt virðist gæta meiri bjartsýni en áður: Verðbólguspár hafa lækkað og hagvaxtarspár hækkað. Sérfræðingar á fjármálamarkaði telja að verðbólgan árið 2005 verði að meðaltali 3,8% og nánast hin sama á milli ársmeðaltala áranna 2004 og 2005 sem er rétt undir þolmörkum verðbólgumarkmiðs Seðla- bankans. Spá Seðlabankans um verðbólgu þetta ár er nokkru lægri en sérfræðinganna en rétt er að minna á að í henni er reiknað með óbreytt- um stýrivöxtum og gengisvísitölu á spátímabilinu. Bankinn spáir 3% verðbólgu yfir árið 2005 og 3,6% milli ársmeðaltala áranna 2004 og 2005. Svarendur hafa mjög ólíkar skoðanir á verðbólguhorfum á næsta ári sem sjá má í meðfylgjandi töflu. Að meðaltali álíta þeir að verðbólga yfir árið hækki nokkuð, í 5,3%, en verði 4,9% á milli ársmeðaltala 2005 og 2006. Til samanburðar gerir Seðlabankinn ráð fyrir 3,6% verðbólgu yfir næsta ár en 3,2% á milli ársmeðaltala áranna 2005 og 2006. Hagvaxtarspá svarenda hefur farið hækkandi frá því í nóv- ember og munur hæstu og lægstu gilda er minni en áður. Að meðtali búast þeir við 6,2% hagvexti í ár og 5,3% á næsta ári. Seðlabankinn spáir heldur meiri vexti: 6,6% árið 2005 og 6,2% árið 2006. Sérfræðingar á fjármálamarkaði telja að gengisvísitalan verði 122 stig eftir tólf mánuði sem er töluvert lægra gengi en verið hefur und- anfarnar vikur en gengisvísitalan hefur risið nokkuð síðustu vikur eftir að hafa farið niður í rúm 106 stig seinni hluta mars sl. Þeir gera svo ráð fyrir frekari veikingu gengisins síðar og telja að gengis- vísitalan standi í tæpum 130 stigum eftir tvö ár. Þetta er mjög svipuð gengisspá og í febrúar. Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru hækkaðir 29. mars sl. í 9%. Sérfræðingarnir reikna með frekari vaxtahækkunum næstu mánuði og spá tæplega 10% stýrivöxtum að ári og litlum breytingum næsta ár á eftir. Verð hlutabréfa hefur hækkað mikið það sem af er árinu en svarendur gera ráð fyrir að hægi á þeirri þróun. Skoðanir eru þó mjög skiptar og einn aðili spáir verðlækkun hlutabréfa eftir eitt ár og frekari lækkun eftir tvö ár. Eins og undanfarið spá allir því að fasteignir hækki áfram í verði hvort sem horft er eitt eða tvö ár fram á við – en minna en undanfarið enda hefur húsnæðisverð hækkað mjög ört á skömmum tíma. Rammagrein 4 Könnun á mati sérfræðinga á fjármálamarkaði á horfum í efnahagsmálum 2005 2006 Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Verðbólga (yfir árið) 3,8 3,0 4,5 5,3 4,0 7,0 Verðbólga (milli ársmeðaltala) 3,7 3,5 4,0 4,9 3,9 6,4 Hagvöxtur 6,2 6,0 6,5 5,3 5,0 5,5 Eitt ár fram í tímann Tvö ár fram í tímann Gengisvísitala erlendra gjaldmiðla 122,5 115,0 133,0 129,5 127,0 133,0 Stýrivextir Seðlabankans 9,8 9,3 10,0 8,6 7,3 10,0 Langtímanafnvextir2 7,6 7,5 7,6 7,2 7,0 7,4 Langtímaraunvextir3 3,6 3,2 4,0 3,5 3,3 3,7 Breyting úrvalsvísitölu aðallista 6,8 -15,0 15,0 15,2 -19,3 35,0 Breyting fasteignaverðs 10,9 7,5 15,0 14,6 7,5 20,8 1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi og vexti. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%) og gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla (stig). Þátttakendur í könnuninni eru greiningardeildir Íslandsbanka hf., Kaupþings banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. 2. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF 15 0644). Heimild: Seðlabanki Íslands. Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.