Peningamál - 01.06.2005, Page 53

Peningamál - 01.06.2005, Page 53
RÆÐA FORMANNS BANKAST JÓRNAR Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKANS 2005 P E N I N G A M Á L 2 0 0 5 • 2 53 alvarlega, og það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að ríkissjóður hafi gott lánshæfi. Það er mikilvægt fyrir aðgang ríkissjóðs að mörkuðum og fjárfestum og fyrir lánskjör. Lánshæfismat ríkissjóðs myndar einnig þak yfir lánshæfiseinkunnir íslenskra banka og annarra stofnana. Góð lánshæfiseinkunn skiptir miklu í útrás bankanna og fyrir ört vaxandi þörf þeirra fyrir greiðan aðgang að erlendu lánsfé. Það eru því sam- eiginlegir hagsmunir ríkissjóðs og bankanna að Ísland búi áfram við gott lánshæfismat. Skammtímalausnir í efnahagsmálum geta leitt til ófarnaðar Góðir fundarmenn. Eins og fram hefur komið hækkaði Seðlabankinn stýrivexti sína um 0,25 prósentur í síðustu viku. Þar með hefur bank- inn hækkað stýrivexti sína um 3,7 prósentur síðan hann hóf að hækka vexti í maí á síðasta ári. Í þessu birtist sú skoðun Seðlabankans að miðað við núverandi efnahagsástand og horfur á næstu tveimur til þremur árum sé mun árangursríkara að tryggja nægilegt aðhald í tæka tíð en að bíða og grípa til aðhaldsaðgerða síðar. Síðbúnar að- haldsaðgerðir fela í sér hættu á mun meiri verðbólgu þegar fram í sækir og þar með mun meiri hættu fyrir fjármálakerfið, fyrirtæki og heimili. Það er afar mikilvægt að takast strax á við þá verðbólgu sem við eygjum við sjónarrönd. Það er lögboðið hlutverk Seðlabankans, og bankinn er staðráðinn í að gegna því. Því meira sem aðrir leggja af mörkum til að hemja þenslu, þ.e. ríki, sveitarfélög og lánastofnanir, því auðveldara verður að tryggja stöðugleika til frambúðar. Árangurs- rík efnahagsstjórn liðinna ára má ekki víkja fyrir skammtímalausnum sem aðeins myndu leiða til ófarnaðar. Ég vil að lokum þakka forsætisráðuneytinu og öðrum stjórn- völdum gott samstarf. Davíð Oddsson lét af störfum forsætisráðherra 15. september sl. og er honum hér þökkuð góð samvinna við Seðla- bankann. Jafnframt býð ég Halldór Ásgrímsson velkominn í fyrsta sinn á ársfund bankans sem forsætisráðherra og vænti góðs samstarfs við hann. Ég þakka góða samvinnu við fjármálastofnanir. Síðast en ekki síst þakka ég starfsfólki Seðlabankans gott samstarf og vel unnin verk, en án góðs starfsfólks hefði bankanum ekki auðnast að ná þeim árangri sem raun ber vitni.

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.