Peningamál - 01.06.2005, Page 64
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
2
64
Hinn 18. apríl var hlutafé Landsbanka Íslands hf. hækkað um sem
nam 800 milljónum króna að nafnverði. Skráð hlutafé félagsins eftir
hækkunina var 8,9 ma.kr. að nafnverði. Söluverð hins nýja hlutafjár
var 11,4 ma.kr.
Hinn 19. apríl seldi Íslandsbanki hf. 66,6% hlutafjár í dótturfélagi sínu
Sjóvá hf. til Þáttar eignarhaldsfélags ehf. fyrir 17,5 ma.kr. Við það
hvarf tryggingarfélagið úr samstæðuuppgjöri bankans. Eignarhlutur
Íslandsbanka í Sjóvá eftir söluna nam 33,4% hlutafjár.
Maí 2005
Hinn 2. maí var tilkynnt að Seðlabankinn myndi kaupa gjaldeyri fyrir
ríkissjóð á innlendum millibankamarkaði, vegna sérstakrar endur-
greiðslu á erlendum lánum ríkissjóðs. Gjaldeyriskaupin fóru fram í
áföngum, 20 milljónir Bandaríkjadala í senn, dagana 12., 17., 19., 23.
og 25. maí.
Hinn 10. maí staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investors
Service óbreyttar lánshæfiseinkunnir sínar fyrir Kaupþing banka hf.,
A1 fyrir langtímaskuldbindingar, P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar
og C+ fyrir fjárhagslegan styrkleika.
Hinn 10. maí lækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Investors
Service mat sitt á fjárhagslegum styrkleika Íslandsbanka hf. í C+. Að
öðru leyti staðfesti matsfyrirtækið lánshæfiseinkunnir sínar fyrir
Íslandsbanka, A1 fyrir langtímaskuldbindingar og P-1 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar. Horfur um breytingar á matinu voru stöðugar.