Peningamál - 01.11.2007, Page 21

Peningamál - 01.11.2007, Page 21
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 7 • 3 21 III Fjármálaleg skilyrði Frá útgáfu Peningamála í byrjun júlí sl. hafa raunstýrivextir haldist háir. Birting stýrivaxtaspár virðist hafa greitt fyrir miðlun peningastefnunnar um vaxtarófið og eru væntingar markaðsaðila um þróun stýrivaxta á næstu misserum í betra samræmi við skilaboð Seðlabankans en áður. Alþjóðleg fjármálaskilyrði hafa versnað í kjölfar erfiðleika á banda- rískum húsnæðislánamarkaði. Vaxtakjör innlendra fjármálafyrirtækja erlendis hafa versnað í kjölfar óróans þrátt fyrir lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum og ávöxtunar langtímaskuldabréfa í Bandaríkjunum og Evrópu. Fjármálaleg skilyrði heimila og fyrirtækja hafa einnig versnað. Heimilin hafa þó að nokkru leyti vikið sér undan hærri vöxtum verð- tryggðra lána með aukinni lántöku í erlendum gjaldmiðlum, en vextir á þeim gætu einnig hækkað á næstu misserum. Sveiflur í raunstýrivöxtum samhliða óróa á fjármálamörkuðum Miðað við liðna verðbólgu og verðbólguvæntingar fyrirtækja hafa raunstýrivextir lækkað nokkuð frá útgáfu Peningamála í byrjun júlí sl. Verðbólga hefur verið meiri en Seðlabankinn gerði ráð fyrir þá og verðbólguvæntingar hækkuðu þegar gengi krónunnar lækkaði í kjölfar óróa á fjármálamörkuðum víða um heim. Verðbólguálag ríkis bréfa hefur hins vegar verið aðeins lægra að undanförnu en í júlí eftir tímabundna hækkun í tengslum við óróann. Líklegt er að þessar sveiflur endurspegli breytingar á áhættuþóknun óverðtryggðra verð- bréfa umfram sambærileg verðtryggð bréf, ekki síður en endurmat á verðbólguvæntingum fjárfesta. Að svo miklu leyti sem lækkun verð- bólguálagsins endurspeglar minnkandi verðbólguvæntingar hafa raun- stýrivextir á þennan mælikvarða því hækkað. Það sama á við ef miðað er við verðbólguvæntingar heimila og sérfræðinga á fjármálamarkaði eitt ár fram í tímann. Einstakir mælikvarðar á verðbólguvæntingar eru hins vegar sveiflugjarnir og því erfitt að draga afdráttarlausar ályktanir um verðbólguvæntingar til skamms tíma. Greiningar- og markaðsaðilar spá stýrivöxtum háum lengur en áður Aukið gagnsæi peningastefnunnar með birtingu eigin stýrivaxtaspár virðist hafa greitt fyrir miðlun peningastefnunnar um vaxtarófið. Frá því að byrjað var að birta mat sérfræðinga bankans á líklegri þróun stýrivaxta í mars sl. hafa væntingar markaðsaðila færst nær því sem Seðlabankinn hefur talið líklegt, líkt og fjallað er um í rammagrein III-2. Framvirkir vextir og spár flestra greiningaraðila benda til þess að væntingar séu um að stýrivöxtum verði haldið háum lengur en áður var talið og að þeir lækki mun hægar þegar líður á spátímann en í stýrivaxtaspá Seðlabankans. Stafar það líklega fyrst og fremst af væntingum þeirra um nýjar stórframkvæmdir, en bankinn hefur ekki enn tekið þau áform inn í sína grunnspá. Alþjóðleg fjármálaskilyrði hafa almennt versnað í kjölfar óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum ... Alþjóðleg fjármálaskilyrði hafa á heildina litið versnað í kjölfar erfið leika á bandarískum húsnæðislánamarkaði. Skortur hefur verið á lausafé sem seðlabankar víða um heim hafa leitast við að mæta. Bandaríski seðla- Mynd III-1 Raunstýrivextir1 Vikulegar tölur 7. janúar 1998 - 30. október 2007 Raunstýrivextir m.v.: verðbólgu verðbólguálag ríkisskuldabréfa2 verðbólguálag ríkisskuldabréfa3 verðbólguvæntingar almennings verðbólguvæntingar fyrirtækja verðbólguvæntingar sérfræðinga á fjármálamarkaði 1. Stýrivöxtum hefur verið umbreytt í ávöxtun. 2. Verðbólguálag reiknað út frá ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og RIKS 15 1001. 3. Verðbólguálag reiknað út frá ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og HFF150914. Verðbólgu- væntingar almennings, fyrirtækja og sérfræðinga á markaði miðast við verðbólgu eitt ár fram í tímann. Heimildir: Capacent Gallup, Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. % 0 2 4 6 8 10 12 14 ‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99‘98 ‘06 ‘07 Heimild: Seðlabanki Íslands. Mynd III-2 Stýrivextir Seðlabankans samkvæmt framvirkum vöxtum og stýrivaxtaspá í PM 2007/2 Stýrivaxtaspá PM 2007/2 Framvirkir vextir 26.6.2007 % 4 6 8 10 12 14 16 ‘10200920082007 Framvirkir vextir 20.8.2007 Framvirkir vextir 15.10.2007

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.