Peningamál - 01.11.2007, Page 69
F JÁRMÁLAMARKAÐIR
OG AÐGERÐIR SEÐLABANKANS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
3
69
langa enda vaxtarófsins að lengja óverðtryggða vaxtaferilinn með út-
gáfu lengri ríkisbréfa. Það sýnist því rökrétt á þessari stundu að hætta
útgáfu víxla og beina kröfunum að útgáfu lengri skuldabréfa.
Hinn 1. október tók Seðlabanki Íslands við umsýslu innlendra lána-
mála ríkissjóðs. Samningur þessa efnis var gerður á grundvelli laga
nr. 43/1990 um Lánasýslu ríkisins. Þar segir að heimilt sé að semja
við Seðlabanka Íslands um að hann annist framkvæmd erlendra lána-
mála, ríkisábyrgða- og endurlánamála svo og önnur verkefni sem
Lánasýslu ríkisins eru falin eftir því sem hagkvæmt þykir. Til þessa
hefur bankinn séð um erlend lánamál ríkissjóðs en Lánasýsla ríkisins
um innlenda hlutann.
Dregið hefur úr umsvifum ríkissjóðs á lánamörkuðum und an-
farin ár. Í árslok 2007 stefnir í að heildarskuldir hans nemi um 25%
af landsframleiðslu. Útlit er fyrir að lánsfjárþörf ríkissjóðs verði áfram
lítil næstu árin. Um helmingur af skuldum ríkissjóðs er í erlendum
gjaldmiðlum. Frá árinu 1994 hefur hlutfall erlendra skulda í heild-
arskuldunum verið á bilinu 40-65% og fl est árin nálægt 50%.
Seðlabankinn hefur annast umsýslu erlendra lánamála og sam-
skipti við erlend matsfyrirtæki. Nýgerður samningur um innlend
lánamál felur í sér að Seðlabankinn tekur að sér umsjón og fram-
kvæmd útboða, uppkaup og innlausn ríkisverðbréfa, gerð aðalmiðl-
arasamninga og umsjón með verðbréfalánum til aðalmiðlara. Einnig
mun bankinn sinna upplýsingagjöf til markaðsaðila og fjármálaráðu-
neytis með reglubundnum hætti og viðhalda vefsíðunni www.bonds.
is. Gagnvart markaðsaðilum á fl utningur lánaverkefna ríkissjóðs að
hafa óveruleg áhrif.
Samkvæmt samningnum tekur Seðlabankinn einnig að sér
verk efni er snúa að ríkisábyrgðum og endurlánum sem Lánasýslan
sinnti áður. Bankinn sér um umsýslu ríkisábyrgða og metur áhættu
ríkissjóðs vegna þeirra. Þá mun hann veita ráðuneytinu umsagnir
vegna ríkisábyrgða, sjá um afgreiðslu ábyrgða og innheimta ríkis-
ábyrgðargjald. Þá mun Seðlabankinn taka að sér útgáfu skuldabréfa
vegna endurlána.
Í samningnum er kveðið á um skýra verkaskiptingu á milli að-
ila, þar sem ábyrgð á stjórn lánamála ríkisins er í höndum fjármála-
ráðuneytisins en Seðlabankinn sér um framkvæmd þeirra í umboði
ráðuneytisins. Tilgangurinn er að fyrirbyggja að markmiðið í pen-
ingastefnu Seðlabankans rekist á við stefnu ríkissjóðs í lánamálum.
Rammagrein 1
Breytingar í lánaumsýslu
ríkissjóðs