Peningamál - 15.05.2013, Síða 10
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
3
•
2
10
hún verði á fyrsta fjórðungi þessa árs, sem er um 2½% undir því sem
spáð var í febrúar. Frá því að landsframleiðslan náði lágmarki á fyrsta
ársfjórðungi 2010, hefur hún vaxið um 7½% samkvæmt árstíðarleið-
réttum tölum Seðlabankans. Hún er þó enn um 5% minni en hún var
þegar fjármálakreppan skall á haustið 2008.4
Hagvaxtarhorfur hér á landi einna skástar meðal þróaðra ríkja
Eins og sést á mynd I-12 var efnahagssamdrátturinn hér á landi í kjöl-
far alþjóðlegu fjármálakreppunnar meiri en að jafnaði meðal annarra
OECD-ríkja. Það þarf ekki að koma á óvart í ljósi mikils ójafnvægis
sem byggðist upp í aðdraganda kreppunnar. Einnig þarf að hafa í
huga að hér á landi skall bæði á kerfislæg bankakreppa og alvarleg
gjaldeyriskreppa. Rannsóknir benda til þess að efnahagssamdráttur
í kjölfar slíkra kreppa sé að jafnaði allt að þrefalt meiri en þegar um
hefðbundna bankakreppu, án gjaldeyriskreppu, er að ræða og að
slíkar kreppur vari að jafnaði helmingi lengur (sjá t.d. rammagrein I-2
í Peningamálum 2012/4 og umfjöllun í kafla IV). Mynd I-12 sýnir þó
að frá því að botni samdráttarskeiðsins var náð á fyrri hluta árs 2010
hefur vöxtur landsframleiðslunnar verið nánast sá sami hér á landi og
t.d. í Bandaríkjunum og einnig svipaður og hagvöxtur annarra OECD-
ríkja í heild og töluvert meiri en í Bretlandi og á evrusvæðinu. Þetta
sést á mynd I-13 sem sýnir hagvöxt á síðasta ári meðal fjölda þróaðra
ríkja og horfur fyrir árin 2013-15. Þótt hagvöxtur í fyrra og í ár hafi
verið minni hér en spáð var, var hann einna hæstur þegar horft er til
þróaðra ríkja og horfur eru á að svo verði áfram á næstu árum. Eins
og myndir I-4 og I-14 sýna hefur hægt á hagvexti meðal helstu við-
skiptalanda Íslands og alþjóðlegar hagvaxtarhorfur ítrekað reynst verri
en vænst hafði verið (sjá einnig umfjöllun í kafla II) og á það nokkurn
þátt í lakari horfum hér á landi (sjá einnig mynd I-22 síðar í þessum
kafla). Nánari umfjöllun um innlenda hagvaxtarþróun og -horfur er
að finna í kafla IV.
Áframhaldandi bati á vinnumarkaði
Atvinnuleysi hélt áfram að minnka á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Árstíðarleiðrétt skráð atvinnuleysi mældist 4,6% en 5,3% samkvæmt
vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Atvinnuleysi hefur því minnkað
um 1½ prósentu frá sama tíma fyrir ári. Frá því sem það mældist
mest eftir kreppu hefur skráða atvinnuleysið minnkað um tæplega 4
prósentur en um 2½ prósentu sé miðað við atvinnuleysi samkvæmt
vinnumarkaðskönnuninni. Eins og sjá má á mynd I-15 hafa umskiptin
á innlendum vinnumarkaði verið kröftugri en að meðaltali meðal
annarra OECD-ríkja, hvort sem horft er til hækkunar hlutfalls starfandi
eða fækkunar atvinnulausra.
Samkvæmt niðurstöðum nýbirtrar vinnumarkaðskönnunar
Hagstofunnar fjölgaði starfandi fólki um 2,7% á milli ára á fyrsta fjórð-
ungi ársins. Er það fimmti ársfjórðungurinn í röð sem fjölgun mælist
4. Landsframleiðslan verður þó minni en ef hún hefði aukist í takt við langtímaleitnivöxt
fyrir kreppuna. Í þeim skilningi hefur hluti landsframleiðslunnar tapast varanlega í fjár-
málakreppunni. Í þessu samhengi þarf þó að hafa í huga að framleiðslustigið í aðdraganda
kreppunnar var komið töluvert fram úr því sem talist getur sjálfbært. Hluti framleiðslutaps-
ins endurspeglar því óhjákvæmilega aðlögun þjóðarbúsins eftir ofþenslu áranna fram að
kreppunni. Sjá umfjöllun í rammagrein IV-1 í Peningamálum 2011/4.
-8
-6
-4
-2
0
2
4
1. Grunnspá PM 2013/2 fyrir Ísland en spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
fyrir hin ríkin.
Heimildir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Hagstofa Íslands, Seðlabanki
Íslands.
Mynd I-13
Hagvaxtarþróun meðal iðnríkja1
Ársbreyting (%)
Hagvöxtur 2012
Meðalhagvöxtur 2013-2015
G
rik
kl
an
d
Ít
al
ía
Sp
án
n
H
ol
la
nd
Br
et
la
nd
D
an
m
ör
k
Ír
la
nd
Fr
ak
kl
an
d
Fi
nn
la
nd
Sv
íþ
jó
ð
Þý
sk
al
an
d
N
ýj
a-
Sj
ál
an
d
Ba
nd
ar
ík
in
Ís
la
nd
Po
rt
úg
al
Á
st
ra
lía
N
or
eg
ur
Ja
pa
n
Sv
is
s
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.
Fjöldi
Mynd I-14
Spár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um meðal-
hagvöxt 2012-14 meðal 30 þróaðra ríkja
< -1%
-1% til 0%
0% til 1%
0 5 10 15 20 25 30
Apríl
2013
Okt.
2012
Sept.
2011
Okt.
2010
1% til 2%
2% til 3%
> 3%
Meðal-
tal
2,5%
Meðal-
tal
2,2%
Meðal-
tal
1,2%
Meðal-
tal
0,9%
1 10 13 6
61293
1 5 6 9 5 4
258843
Mynd I-15
Þróun á vinnumarkaði í kjölfar
fjármálakreppunnar1
Prósentur
Ísland
OECD-ríki
Evrusvæðið
1. Ársbreytingar milli fjórða ársfjórðungs hvers árs. 2. Fjöldi starfandi
sem hlutfall af mannfjölda 15-64 ára (árstíðarleiðrétt). 3. Fjöldi atvinnu-
lausra sem hlutfall af vinnuafli (alþjóðlega samræmdur mælikvarði,
árstíðarleiðrétt).
Heimild: OECD.
-4
-3
-2
-1
0
1
2
3
‘12‘11‘10‘09‘08‘12‘11‘10‘09‘08
Hlutfall starfandi2 Atvinnuleysishlutfall3