Peningamál - 15.05.2013, Page 42
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
3
•
2
42
V Fjármál hins opinbera
Meginmarkmið allrar áætlunargerðar í opinberum fjármálum frá því
að fjármálakreppan skall á hefur verið að gera skuldsetningu hins
opinbera sjálfbæra. Halli á rekstri hins opinbera var mikill í upphafi
niðursveiflunnar vegna þess hve mikið tekjur minnkuðu og gjöld juk-
ust í tengslum við endurreisn fjármálakerfisins og aukið atvinnuleysi.
Til að koma í veg fyrir ósjálfbæran vöxt skulda var nauðsynlegt að
stöðva þennan hallarekstur. Langtímaáætlanir um jöfnuð í ríkisfjár-
málum voru settar fram og tóku þær breytingum eftir því sem óvissan
um skuldastöðuna minnkaði og skuldastaðan náði jafnvægi. Markmið
um frum- og heildarjöfnuð hafa ávallt verið höfð til hliðsjónar við
áætlunargerðina. Í núgildandi langtímaáætlun sem samþykkt var í fjár-
lögum ársins 2012 er gert ráð fyrir afgangi á frumjöfnuði í fyrra og að
afgangur náist á heildarjöfnuði árið 2014. Samkvæmt því ætti frekari
skuldasöfnun hins opinbera að stöðvast á næsta ári.
Markmiðið um afgang á frumjöfnuði árið 2012 náðist ...
Nú er lokið fyrsta heila árinu frá því að efnahagsáætlun stjórnvalda
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk. Til að styðja við efnahagsbatann
var í fjárlögum fyrir síðasta ár slakað lítillega á því aðhaldi sem boðað
hafði verið í fjárlagafrumvarpi ársins 2011 þegar efnahagsáætlunin
stóð enn yfir. Markmiðinu um afgang á heildarjöfnuði var frestað um
eitt ár til ársins 2014 og var það aftur staðfest í fjárlögum fyrir þetta
ár. Markmiðið um jákvæðan afgang á frumjöfnuði árið 2012 var þó
enn í gildi og tóku fjárlög ársins 2012 mið af því. Nú liggja fyrir bráða-
birgðatölur um afkomu ríkissjóðs á greiðslugrunni fyrir árið 2012.1
Þær tölur gefa til kynna að fjárlög ársins 2012 hafi að mestu gengið
eftir en þar var gert ráð fyrir 2% afgangi á frumjöfnuði. Undirliggjandi
rekstur er því á áætlun og markmiðinu um afgang á frumjöfnuði náð.
Tekjuáætlun fjárlaga gekk eftir og útgjöld voru 2% innan heildarfjár-
heimilda. Eins og sést á mynd V-1 er afgangurinn á frumjöfnuði í ár
einna mestur hér á landi meðal þróaðra ríkja.
... en óvíst að markmiðið um afgang á heildarjöfnuði árið 2014
náist
Í fjárlögum ársins 2012 var hins vegar ekki tekið á mögulegri gjaldfærslu
vegna 13 ma.kr. framlags til Íbúðalánasjóðs. Litið var á það framlag
sem eiginfjárframlag og því var það ekki gjaldfært. Afskriftaþörf vegna
taprekstrar Íbúðalánasjóðs er þó að öllum líkindum töluvert meiri og
er hún ein helsta ógnin við markmið áætlunarinnar um jöfnuð í ríkis-
fjármálum. Í bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fyrir afkomu ríkissjóðs
á rekstrargrunni árið 2012 er þetta framlag hins vegar gjaldfært og er
líklegt að það verði einnig gjaldfært í ríkisreikningi þegar hann kemur
út í júní nk.
Þegar horft er til þess hvort skuldastaða ríkissjóðs sé sjálfbær
verður einnig að taka með í reikninginn áfallnar lífeyrisskuldbind-
ingar þótt þær séu samkvæmt alþjóðlegum stöðlum ekki taldar með í
1. Markmið áætlunar um jöfnuð í ríkisfjármálum eru sett fram miðað við greiðslugrunn fjár-
laga sem oftast sýnir lakari afkomu en á rekstrargrunni.
Mynd V-1
Frumjöfnuður nokkurra þróaðra ríkja árið 2013
% af VLF
Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (2013). Fiscal Monitor, apríl 2013.
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
10
12
Ja
pa
n
Br
et
la
nd
Ba
nd
ar
ík
in
Sp
án
n
Ír
la
nd
D
an
m
ör
k
K
an
ad
a
Sv
íþ
jó
ð
Po
rt
úg
al
Fr
ak
kl
an
d
G
rik
kl
an
d
Þý
sk
al
an
d
Ís
la
nd
Ít
al
ía
Si
ng
ap
úr
N
or
eg
ur
Tekjur (v. ás)
Gjöld (v. ás)
Heildarjöfnuður (h. ás)
Frumjöfnuður (h. ás)
Mynd V-2
Fjármál hins opinbera 2000-20151
% af VLF % af VLF
1. Grunnspá Seðlabankans 2013-2015. Á rekstrargrunni.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
38
40
42
44
46
48
50
52
54
56
58
60
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
‘14‘12‘10‘08‘06‘04‘02‘00
Tekjur (v. ás)
Gjöld (v. ás)
Heildarjöfnuður (h. ás)
Frumjöfnuður (h. ás)
Mynd V-3
Fjármál ríkissjóðs 2000-20151
% af VLF % af VLF
1. Grunnspá Seðlabankans 2013-2015. Á rekstrargrunni.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
28
30
32
34
36
38
40
42
44
46
48
-14
-12
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
‘14‘12‘10‘08‘06‘04‘02‘00