Peningamál - 15.05.2013, Blaðsíða 54

Peningamál - 15.05.2013, Blaðsíða 54
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 3 • 2 54 VIII Verðlagsþróun og verðbólguhorfur Ársverðbólga hefur hjaðnað frá útgáfu síðustu Peningamála og mæld- ist 3,3% í apríl sl. Hins vegar hefur dregið hægar úr undirliggjandi verðbólgu sem, ásamt langtímaverðbólguvæntingum nokkuð yfir verðbólgumarkmiði, benda til þess að enn séu að verki þættir sem vinna gegn frekari hjöðnun verðbólgu. Verðbólguhorfur hafa heldur batnað í kjölfar gengisstyrkingar krónunnar að undanförnu þrátt fyrir að verðbólga hafi reynst lítillega meiri á fyrsta ársfjórðungi 2013 en áður var spáð. Meiri framleiðsluslaki á næsta ári en áður var gert ráð fyrir dregur einnig úr verðbólguþrýstingi þótt meiri launaþrýstingur vegi upp á móti. Spáð er að meðalverðbólga á þessu ári verði 3,8% og 2,7% á næsta ári. Verðbólguhorfur eru hins vegar sem fyrr afar óvissar þar sem gengisþróun krónunnar og launaþróun munu ráða miklu um framvinduna. Óvissumat spárinnar bendir til þess að um helmingslíkur séu á að verðbólga verði á bilinu 2-4% að ári liðnu. Verðbólga hefur hjaðnað undanfarna mánuði … Verðbólga mældist 4,3% á fyrsta ársfjórðungi 2013, þriðja árs- fjórðunginn í röð. Verðhækkun almennrar þjónustu og innfluttrar vöru án áfengis, tóbaks og bensíns hafði mest áhrif á þróun vísitölu neysluverðs á fyrsta ársfjórðungi þar sem töluverð áhrif vegna gengis- lækkunar krónunnar í ársbyrjun komu fyrst og fremst fram í verð- hækkunum í janúar og febrúar, þótt ekki sé útilokað að þeirra gæti enn og vegi á móti áhrifum nýlegrar hækkunar krónunnar. Til viðbótar við áhrif gengislækkunarinnar áttu útsölulok og hækkun launa einnig þátt í 1,6% hækkun vísitölu neysluverðs í febrúar frá fyrri mánuði sem olli því að ársverðbólga jókst í 4,8%. Í mars hækkaði vísitalan hins vegar mun minna milli mánaða eða um 0,2%, og hjaðnaði ársverðbólga því á ný í 3,9%. Í kjölfar 0,2% hækkunar vísitölu neysluverðs í apríl, sem að mestu má rekja til hækkunar kostnaðar vegna eigin húsnæðis, minnkaði ársverðbólgan enn frekar. Hún mælist nú 3,3% eða 0,8 prósentum yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans og hefur ekki verið svo lítil síðan í apríl 2011.1 … en dregið hefur hægar úr undirliggjandi verðbólgu Verðbólga er hins vegar nokkru meiri á mælikvarða samræmdu neysluverðsvísitölunnar og kjarnavísitalna þótt hún hafi einnig hjaðnað á þá mælikvarða að undanförnu. Ársverðbólga samkvæmt samræmdu neysluverðsvísitölunni, sem undanskilur húsnæðisverð, mældist 4,5% í mars og hefur hjaðnað úr rúmlega 6% í janúar sl. Undirliggjandi árs- verðbólga, mæld með kjarnavísitölu 3, sem undanskilur áhrif óbeinna skatta, sveiflukenndra matvöruliða, bensíns, opinberrar þjónustu og raunvaxtakostnaðar húsnæðislána, var 4,2% í apríl og hefur hjaðnað úr 4,6% í janúar. Það hefur því dregið hægar úr undirliggjandi verð- bólgu en mældri undanfarna mánuði, enda hefur lækkun bensínverðs haft töluverð áhrif á mælda verðbólgu sl. tvo mánuði. Sama niðurstaða fæst ef undirliggjandi verðbólga er skoðuð með einföldum tölfræði- 1. Töluverð grunnáhrif hafa einnig verið fyrir hendi undanfarna mánuði þar sem vísitala neysluverðs hækkaði um rúmlega 1% í mars 2012 frá fyrri mánuði og síðan um 0,8% í apríl 2012. Mynd VIII-1 Verðbólga á ýmsa mælikvarða1 Janúar 2001 - apríl 2013 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 12 mánaða breyting (%) Vísitala neysluverðs Samræmd vísitala neysluverðs Kjarnavísitala 3 án skattaáhrifa Kjarnavísitala 4 án skattaáhrifa Verðbólgumarkmið ‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01 1. Kjarnavísitala 3 er vísitala neysluverðs án búvöru, grænmetis, ávaxta, bensíns, opinberrar þjónustu og raunvaxtakostnaðar húsnæðislána. Í kjarnavísitölu 4 er að auki markaðsverð húsnæðis undanskilið. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd VIII-2 Undirliðir verðbólgu Framlag einstakra undirliða til verðbólgu jan. 2010 - apríl 2013 Prósentur Innfluttar vörur án áfengis, tóbaks og bensíns Bensín Húsnæði Innlendar vörur án búvöru og grænmetis Almenn þjónusta Aðrir liðir Vísitala neysluverðs (12 mánaða %-breyting) Heimild: Hagstofa Íslands. -2 0 2 4 6 8 10 2012 201320112010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.