Peningamál - 21.05.2014, Blaðsíða 74

Peningamál - 21.05.2014, Blaðsíða 74
P E N I N G A M Á L 2 0 1 4 • 2 74 PENINGASTEFNAN OG STJORNTÆKI HENNAR Regluleg viðskipti Regluleg viðskipti geta verið til allt að 7 daga. Tilgangur þeirra er að auka eða draga úr framboði lausafjár. Seðlabankinn ákveður í hvert sinn hversu mikið lausafé hann lánar fjármálafyrirtækjum eða dregur af markaði. Miðvikudagar eru að öllu jöfnu viðskiptadagar Seðlabankans. Seðlabankinn getur átt viðskipti aðra daga sé þess talin þörf. Helstu tegundir reglulegra viðskipta eru: • Lán gegn veði: Lán til 7 daga eða skemur. Fjármálafyrirtæki þurfa að leggja fram tryggingar sem Seðlabankinn telur hæfar í við- skiptum. • Bundin innlán til 7 daga eða skemur sem Seðlabankinn selur fjár- málafyrirtækjum (sjá umfjöllun um bundin innlán til lengri tíma undir Önnur viðskipti). Aðeins önnur tegund reglulegra viðskipta verður í boði á hverjum tíma, eftir því hvort Seðlabankinn vill binda laust fé eða auka laust fé í umferð. Seðlabankinn getur í útboðum ákveðið að halda vöxtum og fjárhæðum föstum eða láta fjármálafyrirtæki bjóða í annað hvort eða hvort tveggja. Seðlabankinn getur hafnað öllum tilboðum eða hluta þeirra. Aðrir fjármálagerningar sem Seðlabankinn getur notað til að auka eða draga úr framboði lausafjár eru endurhverf verðbréfavið- skipti, innstæðubréf og gjaldmiðlaskiptasamningar. Önnur viðskipti Seðlabankinn getur með sérstakri ákvörðun átt viðskipti við fjármála- fyrirtæki til lengri tíma en viku með sömu fjármálagerninga og í reglu- legum viðskiptum. Frá hausti 2009 seldi Seðlabankinn vikulega innstæðubréf til 28 daga í senn til fjármálafyrirtækja í því skyni að draga úr lausu fé á markaði og styðja við vaxtamyndun á millibankamarkaði með krónur. Í maí 2014 voru í staðinn tekin upp 7 daga bundin innlán ásamt mán- aðarlegum bundnum innlánum, sem eru boðin einu sinni í mánuði. Bindiskylda Bindiskylda er lögð á fjármálafyrirtæki sem ekki eru háð framlögum á fjárlögum í rekstri sínum. Hún miðast við bindigrunn sem eru inn- stæður, útgefin skuldabréf og peningamarkaðsbréf. Bindihlutfall er 2% fyrir þann hluta bindigrunns sem bundinn er til tveggja ára eða skemur. Binditímabil er frá 21. degi hvers mánaðar til 20. dags næsta mánaðar og skal innstæða á bindireikningi ná tilskildu hlutfalli að meðaltali á binditímabilinu. Bindiskylda nær ekki til útibúa íslenskra fjármálafyrirtækja sem starfa utan Íslands. Inngrip á gjaldeyrismarkaði Inngripum á gjaldeyrismarkaði er einungis beitt, samkvæmt yfir- lýsingunni um verðbólgumarkmið frá 2001, telji Seðlabankinn það nauðsynlegt til þess að stuðla að verðbólgumarkmiði sínu eða telji hann að gengissveiflur geti teflt stöðugleika fjármálakerfisins í tvísýnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.