Glóðafeykir - 01.12.1970, Síða 6
6
GLÓÐAFEYKIR
Skipaafgreiðsla .......... — 0,5 — — 0,1 —
Kjötvinnsla .............. — 2,6 — Hækkun 0,4 —
Olíaogbenzín.............. — 19,6 — — 5,7 —
Búvélaafgreiðsla ......... — 0,9 — Lækkun 0,6 — “
„Vörubirgðir verzlana og sérfyrirtækja ásamt umboðssöluvörum
hafa aðeins lækkað að krónutölu frá fyrra ári og eru 23,9 millj. kr.
Að magni til hafa þær minnkað verulega. Samdrátturinn stafar af
minni fóðurvörubirgðum en áður. Fóðurvörubirgðir, fóðurvörusala
og dreifing er mikilsvert mál, sem stjórnin þarf sérstaklega að raða
og taka ákvarðanir um.“
„Afskrift vörubirgða var samkv. venju og nam 12,4 millj. kr. auk
afskrifta sérfyrirtækja og söluskatts. í ársbyrjun voru allar fasteignir
og lóðir félagsins, ásamt öllum véíum, tækjum, áhöldum, innrétt-
ingum búða og skrifstofu og bifreiðum bókfærðar á 40,9 millj. kr.,
en í árslok, eftir sameiningu félaganna og fjárfestingu á árinu, sem
nam 2,5 millj. kr. (auk viðhalds), eru þessar eignir bókfærðar á 41,2
millj. króna. Hefur því bókfært verðmæti eigna aðeins hækkað um
0,3 millj. króna. Raungildi þessara eigna er að sjálfsögðu mörgum
sinnum meira.“
„Aðalfjárfestingin (auk viðhalds) var uppígreiðsla fyrir brúsa-
þvottavél, tæp 1 milljón, og rúml. 1 millj. uppígreiðsla fyrir bifreið,
sem kom þó ekki hingað fyrr en á árinu 1970, auk smærri fjárfest-
inga. Bein afskrift þessara eigna nam tæpum 5 millj. ki'óna, auk
nokkurs söluhagnaðar af seldum lausafjármunum."
„Iðgjald af tryggingum félagsins og fyrirtækjum þess nam um 1,8
millj. króna. Er þá ekki meðtalin trygging á vörum í flutningi. Sú
nýbreytni var gerð árið 1968, að félagið tók 10% eigin áhættu af
ábyrgðartryggingum og fékk með því 30% afslátt, sem lagður hefur
verið í sérstakan sjóð, Vátryggingasjóð. Nemur sá sjóður nú 127
þús. kr.“
„Rafmagnsnotkun félagsins og fyrirtækja þess var árið 1969 2,2
millj. króna rösklega, þar af rúml. 2 millj. kr. frá Rafveitu Sauðár-
króks (sennil. um % af sölu rafveitunnar; 1968 var það rúml. þriðj-
ungur).“
„Fastráðnir starfsmenn hjá kaupfélaginu voru í árslok 102 auk
fastráðinna starfsmanna Fiskiðjunnar. Alls tóku laun hjá félaginu
592 manns, auk fjölda fólks hjá Fiskiðjunni. Heildarlaunagreiðslur
voru um 50 millj. króna, þar af greiddi Fiskiðjan um 16,8 millj. Til
verzliinar- og skrifstofufólks voru greiddar um 9,7 millj. og rúml. 23