Glóðafeykir - 01.12.1970, Side 51
GLÓÐAFEYKIR
51
álaður veiðimaður og vafalaust ein snjallasta refaskytta á landi hér;
hlaut og heiðursverðlaun frá Búnaðarfél. íslands fyrir þá íþrótt.
Gunnar var harðgreindur maður, frjálslyndur og víðsýnn í skoðun-
um, orðhvatur nokkuð og hélt á máli sínu með skörungsskap og
rökvísi, hver sem í móti var. Hann var listhneigður og ljóðelskur,
enda skáld gott og óefað í fremstu röð þeirra manna skagfirzkra, er
við ljóðagerð hafa fengizt. Hefur nokkuð af kvæðum hans og stökum
birzt í blöðum og tímaritum, svo og lítið eitt í Skagfirzkum ljóðum.
Hitt er þó miklu meira, sem eftir liggur óprentað, og mun þar mörg
perlan.
Með Gunnari Einarssyni féll á góðum aldri mikill hæfileikamaður
og mætur drengur. „Hann hafði yndi af að vera í glöðum hópi vina
og kunningja, og öðrum mönnum var hann aufúsugestur sökum
glettni sinnar, skjótra tilsvara og annarra hnyttinyrða, er komu öll-
um viðstöddum í gott skap; hann var hrókur alls fagnaðar á mann-
fundum; en það er álit mitt, eftir langa viðkynningu, að aldrei hafi
honum liðið betur eða verið sælli en þegar hann átti vöku um vor-
nætur upp til heiða eða fjalla, þá hann lá á grenjum.“ (Alb. Sölva-
son). — Gunnar var mikið náttúrubarn.
Jón Björnsson, fyrrum sýslunefndarmaður og bóndi á Bakka í
Viðvíkursveit, lézt þ. 20. maí 1959. Hann var fæddur að Stóragerði
í Óslandshlíð 21. apríl 1873. Foreldrar: Björn bóndi í Stóragerði
o. v., síðast í Enni í Viðvíkursveit, Illuga-
son, bónda á Marbæli í Óslandshlíð o. v.,
Björnssonar bónda á Óslandi, Mála-Bjarn-
arsonar, og kona hans Helga Jónsdóttir
bónda í Stóragerði Vigfússonar og Hall-
dóru Tómasdóttur á Kálfsá í Ólafsfirði,
Jónssonar.
Jón óx upp með foreldrum sínum, stund-
aði nokkuð sjó og kom sér jafnframt upp
vænum bústofni, sýndi snemma ráðdeild
og fyrirhyggju. Reisti bú á Bakka 1906 og
bjó þar nálega hálfa öld, allt til 1955, er
hann seldi jörðina og fluttist með fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur. Jón var hinn mesti dugnaðarforkur, bjó góðu
búi á gamla vísu, eigi mikill framkvæmdamaður eða nýjunga, en
búnaður allur traustur, efnahagur góður og allt í föstum skorðum.
Mun þeim hjónum eigi hafa verið sársaukalaust að slíta allar rætur,
Jón Björnsson.