Glóðafeykir - 01.12.1970, Side 53
GLÓÐAFEYKIR
53
Séra Helgi raissti föður sinn er hann var á 9. ári. Fluttist hann þá
með móður sinni til Blönduóss, dvaldi á uppvaxtarárum ýmist þar
eða í Flögu í Vatnsdal hjá Magnúsi bónda frænda sínum, svo og hjá
séra Jóni Magnússyni, föðurbróður sínum,
er kenndi honum undir skóla. Móður sína
missti hann 1929.
Séra Helgi lauk gagnfræðaprófi á Akur-
eyri 1921, stúdentsprófi utanskóla 1924,
guðfræðiprófi við Háskólann 1928 og vígð-
ist sama ár prestur til Otrardalsþinga með
búsetu á Bíldudal. Veitt Hofsþing á Skaga-
strönd 1932 og sat á Höskuldsstöðum,
Reynistaðarklaustursprestakall 1934 og hélt
til æviloka. Þjónaði jafnframt Hvamms-
prestakalli 1935—1946. Prófastur í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi 1952 og síðan.
Tvívegis á prestskaparárum sínum fór sr. Helgi til framhalds-
náms í Bretlandi. Hann brá sér einnig til Ítalíu og Bandaríkjanna,
þar sem hann var fulltrúi íslands á heimsþingi rotaryfélaga. Hann
gaf sig jafnan mjög að fræðslumálum og menningar, stofnaði og rak
unolinoaskóla á Bíldudal, Blönduósi o» Höskuldsstöðum. Kennari
við unglingaskólann á Sauðárkróki 1934—1946. Atti drjúgan þátt
í stofnun iðnskóla þar og gagnfræðaskóla 1946, skólastjóri beggja
skólanna fyrstu árin og hins síðarnefnda allt til 1956, en stundakenn-
ari eftir það. Hann var einn af helztu hvatamönnum að stofnun
Sögufélags Skagfirðinga 1937, sat í stjórn félagsins og var gjaldkeri
þess til æviloka. Hann átti manna mestan þátt í endurreisn Sýslu-
bókasafns Skagfirðinga, var í stjórn þess og síðan formaður til dánar-
dags. Er Sýslubókasafnið (Héraðsbókasafnið), eins og það er nú, að
verulegu leyti til orðið fyrir atbeina hans og frábæra elju. Sjálfur
átti hann mikið og mjög verðmætt bókasafn og var hverjum manni
bókfróðari. Hann var skipaður í milliþinganefnd, er semja skyldi
frumvarp til laga um almenningsbókasöfn. Var frumvarpið lögfest
1955. I samtökum norðlenzkra presta var sr. Helgi lífið og sálin,
enda í stjórn Prestafélags Hólastiftis. Við ritstörf fékkst hann all-
mikið, samdi mikla bók um Albert Thorvaldsen, reit blaðagreinar
og tímarita, þýddi bækur, enda ágætur málamaður. Hann sá um
útgáfu Skagfirzkra ljóða, er Sögufél. Skagf. gaf út 1957. Hann var
skáld gott, en hélt ljóðagerð sinni lítt á loft.
Arið 1933 gekk sr. Helgi að eiga Jóhönnu Þorsteinsdóttur bónda
Sr. Helgi Konráðsson.