Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 1
7. tölublað 2014 Fimmtudagur 3. apríl Blað nr. 416 20. árg. Upplag 31.000 Jón Þorsteinsson hjá Sláturfélagi Suðurlands var á laugardaginn krýndur kjötmeistari Íslands árið 2014 í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna sem fram fór í síðustu viku. Jón fékk fjölda verðlauna fyrir vörur sínar. Þar stóð þar upp úr vara sem þótti einstök og hann kallar Salami Camemberti. Þetta þótti líka vera besta nýja varan, athyglisverðasta nýjungin og besta varan sem framleidd er úr hrossa- eða folaldakjöti. Salami Camemberti er skemmtilega frágengin í öskju sem sjá má fremst á bakkanum á myndinni. – Sjá umfjöllun um keppnina á bls 23–24. Mynd / HKr. Allt of mörg sláturhús í landinu – sagði Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa, á Fagþingi kúabænda Stórgripasláturhús eru allt of mörg á landinu, en nautgripum er slátrað í níu sláturhúsum í dag. Nægjanlegt væri að þau væru tvö til þrjú en auk þessu gætu minni sláturhús verið starfandi. Hægt væri að anna miklu meiri slátrun og úrvinnslu án nokkurra breytinga á þeirri aðstöðu sem fyrir er í ýmsum sláturhúsum. Þetta kom fram í máli Ágústs Andréssonar, formanns Landssamtaka sláturleyfishafa og forstöðumanns Kjötafurðastöðvar KS, á Fagþingi nautgriparæktarinnar sem haldið var í tengslum við aðalfund Landssamtaka kúabænda 27. mars síðastliðinn. Slátrun á stórgripum er mjög óhagkvæm hér á landi sökum þess hversu mörg sláturhúsin eru. Fyrirmyndin að fækkun þeirra er til, enda voru hér á landi 27 sauðfjársláturhús fyrir aldarfjórðungi. Í dag eru þau átta talsins og hafa öll náð upp tiltölulega góðri tækni og úrvinnslu á hliðarafurðum. Það hefur skapað grundvöll til þess að hægt sé að hækka verð til sauðfjárbænda. Þetta þarf að gerast í nautakjötinu líka, sagði Ágúst. Þurfum að fullnýta afurðir Í máli Ágústs kom fram að Íslendingar ættu mikið inni í nýtingu á svokölluðum hliðarafurðum. Meðal slíkra afurða eru lappir, hausar, eyru, halar, sinar, brjósk og innmatur. Vegna þess hversu lítill hluti slátrunar fer fram í hverju sláturhúsi er einfaldlega of dýrt að fjárfesta í öllum þeim búnaði sem til þarf svo hægt sé að fullnýta allar hliðarafurðir. Í krafti stærðar væri hægt að nýta þessar afurðir að fullu. Alls gaf slátrun nautgripa af sér 4.020 tonn af kjöti á síðasta ári, í níu sláturhúsum. Á sama tíma var innflutningur 266 tonn af beinlausu kjöti en innflutningur er nú án tollkvóta. Talsverður skortur hefur verið á innlendu nautakjöti undanfarin ár en eftirspurn hefur aukist verulega. Ætti að horfa út fyrir landsteinana Þó að talsvert sé í land að hægt sé að uppfylla þarfir heimamarkaðarins hér á landi telur að Ágúst að tækifæri séu í að horfa út fyrir landsteinana varðandi nautakjötsframleiðslu. Aukin eftirspurn er eftir nautakjöti á heimsmarkaði og ekki síst eftir hliðarafurðum. Á sama tíma hefur framboð farið minnkandi og því er augljóslega pláss fyrir íslenskt nautakjöt á heimsmarkaði. Mikilvægt er að klára fríverslunarsamninga við lönd eins og Rússland og Bandaríkin og nýta tækifæri sem slíkir samningar hafa í för með sér, til dæmis við Kína. Ágúst lagði á það áherslu að Íslendingar yrðu að auka framleiðslu sína verulega og hagræða. Það yrði að gera með kynbótum, með bættri fóðrun og fullnýtingu afurða. Ef það tækist væri hægt að anna eftirspurn á innanlandsmarkaði, hefja sókn út fyrir landsteinana og greiða bændum hærra verð. /fr Lykilatriði að bændur og ráðunautar séu samstíga 28-2920-21 Miklu meira en samkoma gallharðra hestaáhugamanna 32 Prjónavélarnar hjá Víkurprjóni keyrðar 12 tíma á dag Ágúst Andrésson. Mynd / HKr. Fjölmenni var á Fagþingi kúabænda sem haldið var á Hótel Sögu í síðustu viku. Mynd / HKr. Íslandspóstur vill fá að hækka gjaldskrá á bréfapósti og fækka útburðardögum í sveitum úr fimm í tvo til þrjá. Ef það verður ekki gert mun fyrirtækið áfram verða rekið með tapi, en halli á rekstri þess á síðasta ári nam 119 milljónum króna. Þetta kemur fram í viðtali við Ingimund Sigurpálsson, forstjóra Íslandspósts, hér í blaðinu. Ingimundur segir jafnframt að gera megi ráð fyrir því að póstafgreiðslum á landsbyggðinni haldi áfram að fækka, en boðað hefur verið að tveimur pósthúsum á Vestfjörðum verði lokað á þessu ári. /fr – Sjá viðtal á bls. 26-27. Íslandspóstur vill draga úr dreifingu Ingimundur Sigurpálsson. Mynd / fr

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.