Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Af gefnu tilefni skal þess getið að: Skógrækt er afturkræf aðgerð í nýtingu lands – sagði Hreinn Óskarsson skógarvörður í erindi sem hann flutti á Fagráðstefnu skógræktar 2014 Fagráðstefna skógræktar 2014 var haldin á Selfossi dagana 12.–13. mars með efnið Skógur og skipulag í forgrunni. Fjölmörg áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni um ýmsar hliðar málefnisins og eitt þeirra flutti Hreinn Óskarsson, skógarvörður Skógræktar ríkisins á Suðurlandi. Þar varpaði hann fram spurningunni: Er skógrækt afturkræf aðgerð í nýtingu lands? „Undanfarin ár hefur verið þrengt að möguleikum landeigenda að rækta skóg á sínu landi. Er þar um að ræða aðalskipulag í nokkrum sveitarfélögum þar sem settar eru skorður við ræktun skóga og þau rök meðal annars notuð að skógrækt sé óafturkræf framkvæmd og geti jafnvel haft áhrif á matvælaöryggi með því að teppa ræktunarland til framtíðar. Ekki eru sambærilegar skorður settar gagnvart öðrum búgreinum,“ segir Hreinn um forsögu erindisins. „Það hefur verið að koma í ljós á síðustu árum að skógrækt er afar hentug búgrein sem styður við annan búskap og því ótækt að landeigendur geti ekki vegna skipulagsmála valið að rækta skóg á hluta jarða sinna. Vissulega mætti halda því fram að flytja mætti allt timbur inn í framtíðinni, en útreikningar hafa sýnt að skógrækt er nokkuð örugg fjárfesting til langs tíma – jafnvel hér á landi – og mikilvægt fyrir þjóðarbúið að ráða yfir skógarauðlind. Mikil eftirspurn er nú eftir innlendu timbri til ýmissa nota og á eftir að aukast á næstu áratugum, má í því samhengi nefna nýlega samninga um kísiljárnverksmiðjur sem munu að óbreyttu þurfa að flytja inn mikið magn viðar á næstu árum.“ Með ræktun skóga má auka frjósemi á rýru landi „Það er rétt að nefna að Ísland var vaxið birkikjarri og skógi á stærstum lands undir 500 metra hæð yfir sjávarmáli við landnám, það er 25–40% landsins. Tókst landnámsmönnum með frumstæðum aðferðum að breyta þeim skógi í akurlendi, beitiland og jafnvel eyðimerkur. Í erindi mínu vildi ég sýna fram á að skógrækt er afturkræf framkvæmd og þó skógur sé gróðursettur í gott ræktunarland er mögulegt að höggva þann skóg eftir einhverja áratugi og nýta landið til ræktunar. Er þetta gert víða um lönd t.d. í Finnlandi þar sem menn eru að breyta skógum aftur í akurræktarlönd. Má jafnvel auka frjósemi lands með skógrækt með því t.d. að rækta skóg á rýru landi í einhverja áratugi og fella hann svo, selja afurðirnar og vinna landið til ræktunar. Þetta skiptir máli meðan það eru talin rök að skógrækt sé óafturkræf,“ segir Hreinn. „Á vissum svæðum er samkeppni um land þar sem þéttbýlt er og ekki síst á Vestanverðu Suðurlandi og á Vesturlandi þar sem uppbygging sumarhúsabyggða er vænleg eða fjársterkir aðilar sækjast eftir frístundajörðum, meðal annars til hagabeitar fyrir hross. Margfalt meira ræktanlegt land er nýtt til hrossabeitar en til skógræktar svo dæmi sé tekið. Á dreifbýlli svæðum er samkeppnin mun minni og almennt nægt rými til fjölbreyttrar ræktunar. Á fæstum bændabýlum er land þaulræktað, og því nægt landrými til skógræktar.“ Skógarfelling háð samþykki skógræktarstjóra En hvaða lög og reglur gilda um fellingu skóga í dag? Hreinn segir að Skógræktarlög frá 1955 takmarki ruðning skóga og þurfi samþykki skógræktarstjóra til að fella skóg. „Felling er háð mótvægisaðgerðum, nema um túnrækt sé að ræða. Túlka verður lögin þannig að með túnrækt sé einnig átt við akuryrkju. Tilkynningarskylda er á skógruðningi vegna mats á umhverfisáhrifum ef um náttúrulegan birkiskóg er að ræða, en ekki ef um ræktaðan skóg er að ræða. Landeigandi þarf sem sagt leyfi skógræktarstjóra til að fella ræktaðan skóg en lög gera ráð fyrir að hann fái það leyfi ef um túnrækt eða akuryrkju er að ræða.“ Hreinn tekur fram að það geti verið sóun á framtíðarverðmætum ef skógur er felldur eftir 20–30 ára ræktun. „Þó getur verið, að ef um hraðvaxta tegundir er að ræða eins og alaskaösp, þá borgi viðurinn upphafskostnað við ræktunina og fellinguna. Flestar algengustu tegundir sem gróðursettar eru hér á landi eru þó tækar í kurl sem selja má til iðnaðar eftir 30–40 ár. Því má segja að það sé atvinnuskapandi og hagkvæmt að geyma gott ræktunarland undir skógi í nokkra áratugi, ekki síst vegna þess að skógar mynda skjól, hækka hitastig og auka uppskeru á ökrum á nálægum svæðum, draga úr moldarfoki úr ökrum og öskufoki í kjölfar eldgosa. Einnig má skilja eftir skjólraðir þegar skógur er felldur til að bæta enn frekar ræktunarskilyrðin.“ Ísland það land Evrópu sem hefur tapað mestri skógarþekju Ekki eru mörg dæmi um að skógar hafi verið ruddir á Íslandi á seinni tímum. „Skógarreitir hafa þó verið felldir á nokkrum svæðum undanfarna áratugi, má þar nefna skóg sem felldur var vegna íbúðarbyggðar í Úlfarsárdal og á Egilsstöðum. Á Þingvöllum hafa trjáreitir í þinghelginni verið felldir vegna fornminja og á nokkrum stöðum á landinu hafa skógar verið felldir vegna vegaframkvæmda, til dæmis á Hallormsstað, á Laugarvatni og í Vaðlareit,“ segir Hreinn þegar hann er beðinn að nefna nokkur dæmi. „Ef við berum Íslands hins vegar saman við önnur Evrópulönd í sögulegu samhengi þá er Ísland það land Evrópu sem hefur tapað mestri þekju skóga og er það land í álfunni þar sem minnsta skóglendi er – fyrir utan Vatíkanið og Mónakó. Það er því eðlilegt að lög verndi skóga og gilda svipaðar reglur í Danmörku hvað varðar verndun skóga, enda var skógarþekja Danmerkur komin niður í tvö prósent fyrir rúmum 200 árum og er nú stefnt að því að skógarþekjan skuli verða 25 prósent. Nauðsynlegt er fyrir Íslendinga að auka flatarmál skóga bæði til að skapa auðlind til framtíðar og bæta búsetuskilyrði víða um land. Nú er stefna stjórnvalda hér á landi að auka flatarmál skóga á láglendi upp í fimm prósent (2.000 ferkílómetra). Því miður verður því markmiði ekki náð fyrr en eftir hundruð ára miðað við framkvæmdahraða síðustu áratuga, en flatarmál gróðursettra skóga er nú 485 km2. Flatarmál lands undir 400 metra hæð yfir sjávarmáli er rúmlega 40 þúsund ferkílómetrar og hefur gott ræktanlegt land til akurræktar verið metið rúmlega 6.000 ferkílómetra. Því ætti að vera nægt landrými fyrir bæði akurrækt og skógrækt hér á landi. Regnskógar eru felldir stjórnlaust í hitabeltislöndum til að skapa beitilönd og akurræktarlönd víða um heim – og er skógarhögg þar eitt alvarlegasta umhverfisvandamál heimsins.“ Skynsamlegt að auka ræktun skóga á löndum bænda „Skógrækt á ræktunarlandi getur bætt jarðvegsgæði, skapað verðmæti og atvinnu, skjól fyrir fólk, skepnur og aðra ræktun í nágrenni skóga. Ekki hvað síst aukið ræktunaröryggi, til dæmis í kornrækt, sé skógræktin skipulögð í samræmi við aðra ræktun. Því tel ég skynsamlegt að auka ræktun skóga á bændabýlum almennt. Ef stórfelld þörf verður á auknu akurræktarlandi í framtíðinni mætti fella hluta þessara skóga eins og gert er víða um lönd. Hins vegar felur þessi samanburður í sér þá hugsun að matvælaframleiðsla, t.d. kornrækt, hljóti að vera á einhvern hátt arðvænlegri, æðri eða mikilvægari en skógrækt. Í þeim samanburði taka menn ekki tillit til þess að nútímasamfélag er háð fjölmörgum skógarafurðum ekkert síður en mat. Það er aðeins í fátækustu og mjög fjölmennum samfélögum þar sem matarskortur veldur því að nota þarf allt mögulegt ræktanlegt land. Í dag er megnið af bæði kornvörum og skógarafurðum innflutt. Framtíðarmöguleikar hvors tveggja eru hins vegar umtalsverðir. Akuryrkja, skógrækt og aðrar búgreinar fara mjög vel saman og sé rétt haldið á málum munu fjölbreyttar búgreinar styðja hver við aðra og bæta hag bænda um allt land.“ /smh Á árunum 2011 til 2012 fór fram könnun á vegum Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem lagt var mat á fjárhúsbyggingar í landinu. Niðurstaða könnunarinnar bendir til þess að þrátt fyrir að ekki sé hægt að tala um byltingu í húsvist sauðfjár á Íslandi hafi samt orðið breytingar undanfarin ár og aðbúnaður bæði manna og fjár hafi tekið breytingum til batnaðar. Um þetta fjallaði erindi Sigtryggs Veigars Herbertssonar á Landsýn- Vísindaþingi landbúnaðarins 2014 sem fram fór á Hvanneyri fyrir skemmstu. Umrædd könnun fór fram með þeim hætti að öllum sauðfjárbændum sem eru skráðir í skýrsluhald í sauðfjárrækt var boðið að taka þátt í könnuninni og var sett tilkynningin þess efnis inn á vefsvæðið fjarvis.is.296 bændur svöruðu könnuninni og var vetrarfóðrað sauðfé í þeirra umsjá 96.985 sem jafngildir um 20 prósentum alls vetrarfóðraðs sauðfjár á landinu. Notkun gjafagrinda eykst Meðal þess sem kom í ljós þegar rýnt er í könnunina er að gjafagrindur eru að verða í algengari í fjárhúsum landsins á meðan garðar eru fremur á útleið þó þeir séu enn vinsælasta form gjafatækni. Í 49 prósentum húsanna voru eingöngu garðar og í 82 prósentum húsa eru bæði garðar og önnur aðstaða til gjafa. Fjárhús sem eingöngu eru með görðum eru þó enn smíðuð en í nýjustu byggingum eða breytingum á húsum eru gjafagrindur orðnar algengari. Þrátt fyrir að notkun gjafagrinda hafi aukist mikið eru eingöngu 14 prósent fjárhúsa eingöngu með gjafagrindur, hins vegar eru 48 prósent fjárhúsanna með garða og gjafagrindur. Hey borið á höndum í yfir helmingi húsanna Í þessu samhengi vekur verulega athygli að í 22 prósentum fjár- húsanna sem könnunin náði til var hey enn borið á höndum við gjafir og í 59 prósentum húsanna var hey borið á höndum að einhverju leyti. Stærsta húsið þar sem hey var borið á höndum var með tæplega 500 fjár. Algengara var þó að það væru minni fjárhús þar sem þessi vinnuaðferð var viðhöfð en meðalfjöldi í þessum húsum var 159 fjár. Ljóst má því vera að hægt er að auka vinnuhagræðingu verulega í þessum efnum. Hálmurinn vinsæll Breytingar eru einnig að verða á gólfefnum í fjárhúsum en með aukinni kornrækt virðist notkun á hálmi sem undirburði vera að aukast verulega. Slíkur undirburður er talinn afar góður fyrir velferð kinda og auk þess er stofnkostnaður við byggingar fjárhúsa með heilu gólfi talsvert minni en bygging húsa með taðkjallara. Af þeim sem tóku þátt í könnuninni bjuggu 29 prósent við hús með heilu gólfi, annaðhvort með hálmdýnu eða á taði. Sambland af timbri og málmgrindum er ennþá vinsælastar gólfefnið en fast á hæla þess koma gólf úr timbri og samblandi af plasti og málmristum. Ljóst er að bændur eru almennt að vinna að því að einfalda vinnu sína í fjárhúsum, meðal annars með því að koma upp heitu vatni en helmingur fjárhúsa sem könnunin náði til höfðu heitt vatn. Þá hafa verið settar upp eftirlitsmyndavélar í tíu prósent húsanna en slíkar vélar auðvelda mjög vinnu, einkum í upphafi og við lok sauðburðar. Þrátt fyrir að ekki sé verið að byggja fjárhús á hverjum degi í sveitum er alltaf eitthvað um slíka uppbyggingu og sömuleiðis endurbætur á húsum sem fyrir eru. /fr Aðbúnaður fjár og fólks að breytast til batnaðar Breytingar eru einnig að verða á gólfefnum í fjárhúsum en með aukinni kornrækt virðist notkun á hálmi sem undirburði vera að aukast verulega. Hér er það reyndar hey sem notað er í undirburð.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.