Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Líf og lyst BÆRINN OKKAR Ljúffeng svínarif og bráðhollt Sesarsalat Svínarif í grillsósu er réttur sem óhætt er að leyfa sér endrum og eins. Hráefnið er ódýrt og það er gaman að borða rif í góðra vina hópi með köldum bjór. Fyrir þá sem leggja ekki í rifin er kjörið að útbúa ekta Sesarsalat. Verði ykkur að góðu! Svínarif í BBQ-sósu Fyrir rifin: › 4 hreinsuð svínarif › 30 g íslenskt flögusalt › ½ tsk. svartur pipar, mulinn › 2 tsk. hvítur pipar › ½ tsk. cayenne-pipar › 1 matskeið sykur › ½ msk. hvítlauksduft › ½ msk. laukduft › Kryddið kjötið með þurrkryddunum Fyrir BBQ-sósu : › ½ msk. sojasósa › 1 bolli tómatmauk › ¼ bolli kjúklingaseyði (vatn og kraftur) › ¼ bolli tómatsósa › ¼ bolli epla edik › 1 kryddaður bjór › ½ bolli appelsínusafi › ¼ bolli vatn › 3 hvítlauksrif, smátt söxuð › 1 tsk. chilliduft › 1 msk. laukduft › 1 msk. salt › 1 msk. svartur pipar › 2 bollar ljós púðursykur Blandið saman salti, papriku, sykri, hvítlauk og laukdufti og nuddið jafnt yfir kjötið. Forhitið ofninn í 155 °C. Vefjið svínarifin lauslega með álpappír, látið beinin snúa niður. Eldið rifin að lágmarki í 90 mínútur, snúið á 15 mínútna fresti . BBQ-sósa: Maukið saman í blandara; sojasósu, tómatmauki, kjúklingaseyði, tómatsósu, ediki, bjór, hvítlauk og appelsínusafa. Kryddið með chili, laukdufti, salti , pipar og púðursykri. Látið krauma í potti í 25 til 30 mínútur. Brúnið rif á grillpönnu eða grillið á útigrilli. Penslið sósu á rifin og bakið áfram í ofni. Penslið tvisvar sinnum á 10 mínútna fresti og brúnið svo undir grilli til að karamella sósuna. Berið fram með hrásalati. Sesarsalat › 3 hausar íslenskt romane-salat › 200 g parmesanostur › 2 msk. sérríedik › 2 stk. egg, soðin í 4 mín. og kæld › 4 stk. útvatnaðar ansjósur úr dós › 4 dl ólífuolía › salt og nýmalaður pipar › ½ msk. worcestershire-sósa › Ögn vatn eftir smekk (líka hægt að nota kjúklingasoð eða vatn og kraft) Takið salatblöðin af stilkunum og hreinsið undir köldu rennandi vatni, þerrið vel og haldið köldu. Rífið parmesanost fínt. Setjið egg, ansjósur, parmesanost og edik í matvinnsluvél og blandið vel. Látið vélina ganga og hellið ólífuolíu hægt út í, í mjórri bunu. Þynnið með vatni ef þarf. Kryddið til með salti, pipar og worcestershire-sósu. Brauðteningar: › 4 sneiðar franskbrauð › 50 g smjör › 60 g parmesanostur › ½ búnt graslaukur Skerið brauðið í ½ cm teninga. Hitið smjör á pönnu, fleytið froðuna ofan af og steikið brauðbitana gullinbrúna og stökka. Setjið á eldhúspappír og svo aftur á þurra pönnuna. Stráið parmesanosti yfir og hristið pönnuna vel. Setjið smá dressingu á diska og rífið parmesanost yfir. Setjið 3-4 salatblöð á diskana, smá dressingu aftur yfir, ásamt parmesanosti. Endurtakið þetta tvisvar sinnum. Stráið brauðteningum yfir og skreytið með graslauk. Ekki skemmir að rífa kjúklingaafganga í salatið. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Svanhildur og Magnús keyptu hluta úr jörðinni Holtsmúla I ásamt öllum húsakosti árið 2008. Þar með rættist langþráður draumur beggja, að eignast sína eigin jörð. Jörðin hafði ekki verið í ábúð í eitt ár, en þar áður stunduðu Sigurður og Lisbeth Sæmundsson þar afar farsæla hrossarækt. Markmiðið er að halda því áfram. Býli: Holtsmúli I. Staðsett í sveit: Neðarlega í gömlu Landsveit, Rangárþingi ytra. Ábúendur: Þórir Magnús Lárusson og Svanhildur Hall. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við búum hér með dætrum okkar tveimur, Eddu Margréti 8 ára og Berglindi Maríu 5 ára, bráðum 6! Kisurnar tvær, Ponta og Alda, eru orðnar 9 ára. Stærð jarðar: Lítil! Um 40 hektarar en vel hýst. Til viðbótar leigjum við um 500 hektara. Gerð bús: Hrossaræktarbú. Fjöldi búfjár og tegundir: Við eigum um 160 hross núna en eigum von á 38 folöldum á næstu vikum og mánuðum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Eldri dóttirin fer með skólabílnum í Laugalandsskóla og oft fær sú yngri far í leikskólann, nú ellegar skutlar Pabbi. Svo er allt liðið komið klukkan 8 í hesthúsið nema húsmóðirin, en hún er föst við tölvuna eitthvað mislengi fram eftir morgni eftir því hversu bókhald og hrossasölumál eru fyrirferðamikil þann daginn. Segja má að tamningar og þjálfun hrossa taki alltaf lungann úr deginum, en ábúendur taka auk þess að sér ýmis störf tengd hestum og hestamennsku svo sem reiðkennslu bæði hér heima og erlendis, dómstörf, ráðgjöf í hrossarækt og fleira. Á vorin og sumrin fer töluverður tími í eftirlit með hryssum sem eru að kasta og stóðhestahald. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin: Húsfrúnni finnst bókhaldið leiðinlegt, sérstaklega þegar það stemmir ekki, en skemmtilegast að þjálfa efnileg hross úr eigin ræktun. Húsbóndanum þykir leiðinlegt að brjóta saman þvottinn en skemmtilegast að ríða út með dætrum sínum. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Fram að þessu höfum við lagt áherslu á að vera með afar fjölbreytt úrval hrossa til sölu, en stefnan er sett á að fækka eitthvað og vinna lengur og meira úr hverjum grip. Á síðasta ári byggðum við reiðhöll, firnagóða vinnuaðstöðu sem gerir þann möguleika gerlegan. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við teljum að aukin og betri samvinna forystu afla í hestamennsku myndi skila hestamönnum hraðar áfram í öllu sem verið er að vinna að. Of mikil átök einkenna fundi og samkomur oft á tíðum þar sem menn bítast um viðburði, nám og námsefni, markaði, nefndir og fleira. Það leiðir til þess að hver er í sínu horni að potast og/ eða jafnvel finna upp hjólið í stað þess að hugsa sameiginlega fram á veginn um það sem er íslenska hestinum fyrir bestu, því það mun að sjálfsögðu verða hestamönnum fyrir bestu. Það vantar jákvæðni og traust manna á milli í hestamennskunni og svolitla trú á því að fólk vilji vel. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Þar sem margt fólk er að vinna margvíslega hluti og mat úr óendanlegum breytileika hráefna úr íslenskum landbúnaði og náttúru erum við bjartsýn á framtíð íslensks landbúnaðar. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Markhópur íslensks landbúnaðar erlendis er án efa efnameira fólk sem vill eitthvað nýstárlegt, hreint og heilsusamlegt. Þetta eru svona framtíðarorðin höldum við. Ísland passar einkar vel inn í þennan orðaforða. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, smjör, fetaostur, og grænmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Við værum fljótari að telja upp hvað er ekki vinsælt á þessum bæ, en við eigum alltaf lambakjöt, folaldakjöt og ýsu í kistunni. Marineruð og grilluð folaldasteik er alltaf vinsæl, sér í lagi með nýjum kartöflum og grænmeti. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin: Þegar vindótti stóðhesturinn okkar, hann Þeyr frá Holtsmúla I, fór í glæsilegan kynbótadóm, 8,33 aðeins fimm vetra gamall og náði verðlaunasæti á Landsmóti. Einnig hefur haft mikil áhrif á okkar daglegu störf notkun reiðhallar sem við byggðum í fyrra. Hún hefur algerlega umturnað allri okkar vinnu við þjálfun hrossa til hins betra. Holtsmúli Þeyr frá Holtsmúla.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.