Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Aðalfundur Skógfræðingafélags Íslands, sem var haldinn á Hótel Selfossi fyrir skömmu, ályktaði um eindreginn stuðning við að ný náttúruverndarlög yrðu tekin til gagngerrar endurskoðunar. Þá samþykkti fundurinn einnig ályktun um að gerð skógræktaráætlana skyldi vera á höndum skógfræðinga einna. Stjórn félagsins flyst nú til Norðurlands. Nýr formaður var kosinn Bergsveinn Þórsson og aðalmenn með honum í stjórn Brynjar Skúlason og Rakel Jónsdóttir. Varamaður er Guðríður Baldvinsdóttir. Skógargeirinn býr að langri reynslu Einar Gunnarsson, umsjónarmaður Landgræðsluskóga hjá Skógræktar- félagi Íslands, lagði fram tillögu að ályktun þar sem segir að Skógfræðingafélag Íslands styðji eindregið tillögu umhverfis- og auðlindamálaráðherra, að taka náttúruverndarlög sem ganga áttu í gildi hinn 1. apríl næstkomandi til gagngerrar endurskoðunar. Félagið vísar til fyrri umsagna sinna og annarra fagaðila í skógrækt um lögin á meðan þau voru til umfjöllunar. „Félagið lýsir sig reiðubúið til að vinna með stjórnvöldum að bættri löggjöf á sviði skógarmála, náttúru- og umhverfisverndar og bendir á að fyrstu náttúruverndarlögin voru „Lög um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands“ sem samþykkt voru af Alþingi árið 1907. Skógargeirinn býr því að langri reynslu um hvernig virkja má þjóðfélagið til góðra verka,“ segir í tillögunni sem var samþykkt. Skógfræðingar geri skógræktaráætlanir Þá var einnig samþykkt á aðalfundinum ályktun sem snertir gerð skógræktaráætlana. Í verkefnum sem njóti opinberra styrkja krefjast skógfræðingar þess að skógfræðimenntað fólk sjái um áætlanagerðina. Ályktuninni fylgir greinargerð og hvort tveggja verður sent umhverfisráðuneytinu og framkvæmdastjórum landshluta- verkefnanna í skógrækt. Fram kemur að aðalfundurinn krefjist þess að sett verði í samninga um ríkisstyrkta skógrækt, í væntanlega reglugerð um Landshlutaverkefnin í skógrækt og í væntanleg ný lög, ákvæði þess efnis að skógfræðingar skuli gera skógræktaráætlanir. Fram kemur í greinargerð með ályktuninni að forsenda fyrir góðum árangri í nýræktun, meðferð og nýtingu skóga er að ákvarðanir séu teknar af fólki með þekkingu á viðfangsefninu. Í tilviki skógræktar er besta tryggingin fyrir því að svo verði sú að skógfræðingar geri skógræktaráætlanir. Með hugtakinu „skógfræðingur“ er átt við einstakling með viðurkennda háskólagráðu í skógfræði. Með hugtakinu „skógræktaráætlanir“ er átt við áætlanir um nýræktun (ræktunaráætlanir), umhirðu (meðhöndlunaráætlanir), grisjun, fellingu og endurnýjun skóga (nýtingaráætlanir). Var inni í eldri samningum en sleppt síðar Í upphafsáætlunum og eldri samningum sumra landshluta- verkefnanna í skógrækt voru ákvæði þess efnis að skógfræðingar skuli gera ræktunaráætlanir. Í endurskoðun og samræmingu samninganna hefur þessu verið sleppt. Í drögum að reglugerð um Landshlutaverkefnin kemur ekki fram að skógfræðingar skuli gera skógræktaráætlanir. „Þarna er ekki nægilega hugað að faglegum vinnubrögðum um þætti í áætlunum svo sem ákvörðunum um tegundaval, jarðvinnslu, grisjunarmagn og endurnýjum skógarins svo dæmi séu nefnd. Þetta þarf að lagfæra í samningum Landshlutaverkefnanna strax og setja inn í reglugerðina. Þegar kemur að endurskoðun laga þarf svo að lögleiða að skógfræðingar skuli koma að gerð skógræktaráætlana. Jafnframt verði því haldið til haga við endurskoðun skógræktarlaga að lögvernda starfsheitið skógfræðingur,“ segir í greinargerðinni. /MÞÞ Bændablaðið Næsta blað kemur út 16. apríl DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur heitt vatn > sparneytin · Stórt op > auðvelt að hlaða · Þvotta og orkuklassi A · Engin kol í mótor 12 kg Þvottavél Amerísk gæðavara Aðalfundur Skógfræðingafélags Íslands: Styður eindregið endurskoðun náttúruverndarlaga Úr Vaglaskógi. Myndir / MÞÞ Sólskógar. Í verkefnum sem njóta opinberra styrkja krefjast skógfræðingar þess að skógfræðimenntað fólk sjái um áætlanagerðina. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.