Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 03.04.2014, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. apríl 2014 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.200 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.600. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is Auglýsingastjóri: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Fagþing kúabænda var haldið á Hótel Sögu í síðustu viku og aðalfundur Landssambands kúabænda (LK) var haldinn í kjölfarið. Bæði á Fagþinginu og á aðalfundinum komu greinilega fram þeir miklu möguleikar sem nú eru til uppbyggingar í greininni. Það er ekki nóg með að MS hafi lýst því yfir að öll mjólk yrði keypt á fullu afurðastöðvaverði, heldur er einnig ljóst að verulega þarf að gefa í varðandi framleiðslu nautakjöts á næstu misserum. Vart er hægt að túlka þetta öðruvísi en sem gleðitíðindi fyrir mjólkurframleiðslu og nautgriparæktina í heild sinni. Með yfirlýsingu MS er bændum gefin skýr bending um að bregðast við óskum um aukna mjólkurframleiðslu. Hægt sé að selja alla mjólk sem mögulegt er að framleiða og rúmlega það. Ástæðan er verulega breytt neyslumynstur Íslendinga og stóraukin sala vegna fjölgunar ferðamanna. Krafa um aukna mjólkur- framleiðslu þýðir væntanlega um leið að full þörf sé orðin á að endurskoða það kerfi sem við lýði hefur verið. Það var sniðið á tímum offramleiðslu og byggðist fyrst og fremst á því að draga úr og takmarka mjólkurframleiðslu svo ekki hlæðust upp heilu fjöllin af smjöri. Sigurður Ingi Jóhannsson, land- búnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hafði á orði varðandi aukinn fjölda ferðamanna við annað tækifæri að passa yrði upp á að þessi sívaxandi hópur ferðamanna, sem vigtaði um 60 þúsund tonn, rýrnaði ekki við dvölina á Íslandi. Því þyrfti bændur að hafa sig alla við á næstu misserum og árum til að geta boðið nægt fæðuframboð. Kom þetta fram við verðlaunaafhendingu á Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Þarna er augljóslega ánægjulegt vandamál að kljást við sem felur í sér mikla sókn. Kúabændur og ræktendur holdanauta ræða því af mikilli alvöru hvernig best sé að bregðast við. Hluti af því er ósk um innflutning á erfðaefni til endurnýjunar í holdanautgripa- stofninum sem hér er. Það er hins vegar viðkvæmt mál á margan hátt sem fljótlega þarf þó að taka afstöðu til. Málin eru því ekki alltaf einföld. Landssamtök sauðfjárbænda halda líka sinn aðalfund um komandi helgi. Þar er einnig uppi bjartsýni og hugur til sóknar. Nýting afurða sauðkindarinnar hefur tekið stórstígum framförum á undanförnum árum. Þar má samt líka gera enn betur. /HKr. Bjartsýni og sókn LOKAORÐIN Háskóli lífs og lands Landbúnaðarháskóli Íslands hefur um árabil verið í fararbroddi í vísindarannsóknum á sviði landbúnaðar. Úttektir á skólanum hafa leitt í ljós að hann hefur gríðarlegan faglegan styrk og býr yfir miklum mannauði. Margir starfandi bændur á landinu hafa gengið menntaveginn við skólann og bera til hans mikið traust og jafnframt hlýjar minningar. Yfirstjórn LbhÍ hefur á undangengnum árum ekki verið öfundsverð af því að stýra rekstri stofnunarinnar. Framlög hafa að núvirði lækkað um helming meðan nemendafjöldi hefur aukist mikið. Skort hefur pólitískan kjark til að framkvæma tillögur stjórnenda til að laga rekstur skólans, til dæmis með því að heimila sölu eigna skólans og nýta andvirðið til að bæta reksturinn. Segja má að fyrri sameiningu Landbúnaðarháskólans, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskólans hafi aldrei verið fyllilega lokið og það hefur háð rekstri LbhÍ alla tíð. Það er því ekki að undra að stjórnendur séu orðnir langþreyttir á biðinni eftir að stjórnvöld viðurkenni að framlög til skólans séu ekki í takti við starfsemi hans. Ástæða er til að þakka yfirstjórn skólans fyrir að hafa þróað öflugt háskólanám á svið landbúnaðar þrátt fyrir þrönga stöðu. Það er sorglegt að verða vitni að því hvernig umræða um LbhÍ hefur þróast í fjölmiðlum að undanförnu. Menntamálaráðherra og yfirstjórn skólans hafa sakað forystumenn Bændasamtakanna um skammsýni og afturhald vegna hugmynda um sameiningu hans við Háskóla Íslands. Á Búnaðarþingi 2013 var ályktað um að verja sjálfstæði landbúnaðarskólanna og að tryggja þyrfti rekstrargrundvöll þeirra. Undir þetta var tekið á nýliðnu búnaðarþingi og þar var jafnframt lagst gegn hugmyndum um samruna LbhÍ og HÍ. Staða starfsmenntanámsins Frá árinu 1889 hefur verið starfræktur bændaskóli á Hvanneyri og frá 1947 hefur þar verið rekin framhaldsdeild á háskólastigi. Starfsmenntanámið, þ.e. bændadeildin á Hvanneyri og garðyrkjunámið á Reykjum, er mjög mikilvægt til að mennta bændur til að takast á við þau sóknarfæri sem nú eru í íslenskum landbúnaði og hefur oft verið kallað hjartað í Landbúnaðarháskólanum. Þar sem um er að ræða starfsmenntanám á framhaldsskólastigi fellur það ekkert sérstaklega vel að hugmyndum um sameiningu skólanna. Í Noregi var kennsla í garðyrkju til dæmis færð yfir í framhaldsskólana og hefur það nám að mestu gufað upp í dag. Margir bændur hafa gagnrýnt stöðu starfsmenntanámsins og telja að þar hafi hallað undan fæti. Mögulega á það sér skýringar í erfiðum rekstri stofnunarinnar undanfarin ár og meiri áherslu á háskólastarfið. Enn fremur hefur það verið gagnrýnt að lítið sé um hagnýtar rannsóknir á sviði landbúnaðar hjá LbhÍ á meðan mikil áhersla hefur verið lögð á skrif ritrýndra greina í erlend fagtímarit, þar sem markhópurinn er ekki endilega starfandi bændur á Íslandi. Slíkt vísindastarf á sviði grunnrannsókna er að sjálfsögðu þakkarvert og er líklegt til að auka faglegan styrk skólans í samanburði við aðra skóla. Þetta allt vekur hins vegar upp spurningar um stöðu starfsmenntanámsins og hagnýtra rannsókna við mögulega sameiningu. Sameining virðist ennþá á teikniborðinu Í ljósi umræðu seinustu daga er margt sem bendir til að möguleg sameining LbhÍ og HÍ sé enn á teikniborðinu. Þrátt fyrir fréttaflutning af ákvörðun ráðherra um að hætt hafi verið við sameiningu og „fjölmiðladrama“ í tengslum við það bendir margt til þess að svo sé ekki. Af orðum ráðherra og rektors LbhÍ undanfarna daga má skilja að þeir séu síður en svo hættir við sameiningu. Samhliða því að sannfæra sem flesta um ágæti þess að sameina þessar stofnanir hafa þeir jafnframt beint spjótum sínum að Bændasamtökunum, þingmönnum Norðvesturkjördæmis og sveitarstjórnarfólki í Borgarbyggð og talið allan þeirra málflutning byggðan á skammsýni og afturhaldi. Hver er afstaða ráðherra til háskóla á landsbyggðinni? Það er því eðlilegt að velta upp ýmsum spurningum varðandi hugmyndir menntamálaráðherra um þessa sameiningu. Hvers vegna getur ráðherrann boðið verulega fjármuni og tilflutning verkefna upp á Hvanneyri ef af sameiningu verður, en ekki að öðrum kosti? Sjálfstæðum skóla býðst engin uppbygging, heldur niðurskurður á starfsemi, uppsagnir starfsfólks og innheimta til að vinna á skuldum skólans við ríkissjóð. Hver er eiginlega afstaða og hugarfar ráðherrans til háskóla á landsbyggðinni? Hvernig eru skuldirnar metnar? Ýmislegt í þessari umræðu kallar á enn frekari skýringar og öðru virðist snúið á haus. Meintur halli eða skuldasöfnun skólans undanfarin ár hefur verið metinn með ýmsum hætti. Í umræðu hefur hann verið talinn ríflega 700 milljónir. Inni í þeirri tölu er 300 milljóna króna söluandvirði hlutabréfa í ORF líftækni, fyrirtækis sem á sínum tíma var m.a. stofnað af LbhÍ og er því um að ræða verðmæti sem voru sköpuð af skólanum ásamt öðru góðu fólki. Er sanngjarnt að meta slíkt söluandvirði sem skuld og tengja það slæmum rekstri með vafasömum eftiráskýringum? Er það rétt að skólinn eigi handbært fé til að greiða allt að helmingi þess hala sem eftir væri? Lítill áhugi á samtali við bændur Lítill vilji hefur verið til að hafa samráð við landbúnaðinn varðandi þessar sameiningarhugmyndir. Hugmyndir BÍ og heimamanna í Borgarbyggð hafa allar verið slegnar út af borðinu, hvort sem um er að ræða möguleika á sameiningu háskóla á landsbyggðinni eða hugmyndir um sjálfseignarstofnun um LbhÍ. Gott samstarf hefur verið milli Háskóla Íslands og Landbúnaðarháskólans sem er mjög mikilvægt að þróa áfram. Bændasamtökin bera traust til Háskóla Íslands og eru þakklát fyrir gott samstarf hans við LbhÍ. Fyrst og síðast vilja Bændasamtökin tryggja áframhaldandi öflugt nám á sviði landbúnaðar á Íslandi til þess að íslenskir bændur geti nýtt sem best þau sóknarfæri sem landbúnaðinum standa opin með aukinni matvælaframleiðslu, orkuframleiðslu, fjölbreyttari fram leiðslu, aukinni þjónustu og fleiri tækifærum. Það er meginatriðið. /SSS Nýjasta uppfærsla Leikfélags Hveragerðis á Mjallhvíti og dvergunum sjö hefur notið mikilla vinsælda en uppselt hefur verið meira og minna á allar sýningar frá því að verkið var frumsýnt föstudaginn 14. mars. Leikritið er í leikstjórn og leikgerð Hafsteins Þórs Auðunssonar og hann er líka höfundur tónlistar, sem er útsett af Guðmundi Eiríkssyni, píanóleikara sýningarinnar. Það er ástæða til að óska leikfélaginu til hamingju með þessa glæsilegu sýningu og ekki síst fyrir leikmyndina, sem er öll hin vandaðasta. Leikarahópurinn stendur sig vel og er sérstaklega gaman að sjá fullt af börnum og unglingum stíga sín fyrstu skref í leikhúsinu á sýningunni. Það er því sönn ástæða til að hvetja sem flesta til að skreppa í Hveragerði á þessa skemmtilegu sýningu. Upplýsingar um sýningartíma er að finna á Fesbókarsíðu félagsins en miðapantanir fara fram í síma 863-8522. /MHH Mjallhvít og dvergarnir sjö slá í gegn í Hveragerði

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.