Bændablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. maí 2014
Vinnufatnaður
25090 Dömusandalar
Litur Svart, hvítt, blátt.
Str. 36-42
Verð kr. 14.990
25240 Sportskór
Litur Svart, hvítt.
Str. 36-42
Verð kr. 9.900
Vatteraðir jakkar 14.900 kr.
Fást í 5 litum, lime, svörtu, rauðu,
kongabláu og fjólubláu.
Einnig til á herrana.
Mikið úrval af flottum gæða vinnufatnaði sem
þolir þvott allt að 95° og þarf ekki að strauja.
Fyrir fagfólk
Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878
Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00, lokað laugardaga.
Pant
ið vö
rulis
ta
hjá o
kkur
prax
is@p
raxis
.is
Jörðin Mosfell I í Grímsnesi
auglýst til leigu
Fasteignanefnd þjóðkirkjunnar, f.h. kirkjumálasjóðs, auglýsir
lausa til leigu jörðina Mosfell I í Grímsnesi, landnr. 168267,
sveitarfélaginu Grímsnes- og Grafningshreppi. Jörðin gæti m.a.
hentað hestamönnum. Æskilegt er að leigugjald sé að hluta til
innt af hendi með vinnuframlagi leigutaka við nauðsynlegar
endurbætur og lagfæringar við hið leigða.
Miðað er við að leigusamningur verði ótímabundinn og með
gagnkvæmum uppsagnarfresti.
Sjá nánari upplýsingar á kirkjan.is
Dagana 28. og 29. apríl sl. var
fundað í Brussel um drög að
nýjum reglum um lífrænan
landbúnað sem Evrópusambandið
samdi og lagði fram í byrjun
mánaðarins án samráðs við
IFOAM, hin alþjóðlegu samtök
lífrænna landbúnaðarhreyfinga.
Fyrra daginn fundaði Evrópu-
sambandshópar lífrænna
landbúnaðarhreyfinga (IFOAM
EU Group) um ýmis málefni með
áherslu á nýju ESB drögin en þann
síðari sat hópurinn 180 manna
ráðstefnu þar sem m.a. voru
embættismenn úr lífrænu deildinni
hjá ESB (Organic Farming Unit).
Fjölþætt starfsemi ESB – hópsins
Evrópusambandshópurinn hefur
skrifstofu í Brussel í Belgíu
og hefur hún starfað í áratug.
Höfuðstöðvar IFOAM samtakanna
eru aftur á móti í Bonn í Þýskalandi.
Öll ESB - aðildarlöndin eru í
Evrópusambandshópnum en auk
þeirra eiga Ísland og Noregur fulla
aðild vegna aðildar að Evrópska
efnahagssvæðinu. Öllum er þeim
sameiginlegt að reglur vottunaraðila
eru innan ramma löggjafar ESB og
eru þær nýjustu frá 2007 og 2008.
Það er því mikill kostur að skrifstofan
skuli vera í nálægð höfuðstöðva ESB
og deild þess sem fer með málefni
lífræns landbúnaðar.
Ný reglugerðardrög gagnrýnd
Síðan um áramót hafa verið
að „leka út“ kaflar úr þeim
reglugerðardrögum sem ESB hefur
látið semja án samráðs við IFOAM
hreyfinguna. Fram til þessa hefur
hreyfingin verið leiðandi í þróun
slíkra reglna og hafa þar með þróað
grunnreglur (Basic Standards) fyrir
lífrænan landbúnað um 40 ára skeið.
Stjórn ESB - hóps IFOAM, undir
forystu Christopher Stopes formanns
frá Bretlandi og Marco Schlueter
framkvæmdastjóra skrifstofunnar í
Brussel, hefur nú þegar sent frá sér
fréttatilkynningar þar sem bent er á
ýmsa alvarlega ágalla hinnar nýju
reglugerðar.
Furða vekur að hún skuli vera
samin án samráðs við þann hóp
fólks sem hefur starfað innan
lífrænu hreyfingarinnar um áratuga
skeið og þekkir best umgjörð og
innihald regluverksins. Sem fulltrúi
Íslands í þessu ágæta samstarfi
síðan 2003 reyndi ég að kynna mér
nánar bakgrunninn með því að ræða
við einstaka fulltrúa í hópnum. Þá
kom í ljós að slík vinnubrögð eru
því miður orðin algeng hjá ESB.
Embættismenn eru látnir semja
texta, jafnvel án samráðs við þá sem
sérfróðastir eru um málaflokkinn.
Nýja reglugerðin ber vissulega
marki um slík vinnubrögð og
veldur því miklum vonbrigðum.
Sá lögfræðingur sem mest hefur
fjallað um lífrænu löggjöfina um
áratuga skeið, Hanspeter Schmidt
frá Freiburg í Þýskalandi, telur nýju
drögin meingölluð og leggur til að
þeim verði hafnað.
Vaxandi eftirspurn
Á fundi okkar fyrri daginn fékkst
ágætt yfirlit og um suma ágallana
var rætt ítarlega í hópnum sem taldi
um 40 manns. Niðurstaðan var sú að
drögum að nýrri reglugerð ESB um
lífræna landbúnaðarframleiðslu skuli
hafna en jafnframt verði lagðar fram
margvíslegar ábendingar og tillögur
um úrbætur á gildandi reglugerðum
í þeim tilgangi að efla lífræna
framleiðslu. Á því er reyndar mikil
þörf því að fram kom í umræðum um
stöðuna í hinum ýmsu löndum, þar
með á Íslandi, að eftirspurn neytenda
eftir slíkum vörum fer vaxandi en
því miður hefur framleiðsluaukning
verið of lítil á seinni árum. Þannig
svarar framleiðsla ekki eftirspurn
í Evrópu og var það samdóma
álit að hin nýja reglugerð ESB,
ef staðfest yrði, myndi leiða til
fækkunar bænda í lífrænum búskap
og samdráttar í framleiðslu. Slíkt
væri fráleitt og óviðunandi, bæði
vegna markaðarins og þeirra kosta
sem lífrænn búskapur hefur upp á að
bjóða, m.a. vegna umhverfisverndar,
byggðaþróunar og sjálfbærrar
þróunar almennt. Voru þar m.a.
tilgreindar aðgerðir til að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda og
notkun olíu við framleiðslu tilbúins
áburðar og eiturefna (varnarefna).
Blikur á lofti þrátt fyrir vaxandi
markað
Á ráðstefnunni seinni daginn voru
flutt mörg upplýsandi erindi sem fylgt
var eftir með prýðilegum umræðum
þar sem mikil og málefnaleg gagnrýni
kom fram á nýju reglugerðardrögin
frá ESB. Fjölda spurninga var beint
til embættismanna ESB frá fulltrúum
bænda, dreifingaraðila, vottunarstofa
o.fl. í lífræna geiranum. Svörunum
var misjafnlega vel tekið en þau
skýrðu þó býsna vel meginmarkmið
ESB við samningu nýrrar reglugerðar
og þau vinnubrögð sem viðhöfð
voru.
Augljóslega er markvisst verið
að sniðganga sjónarmið lífræna
hreyfingarinnar, einkum bændanna
innan hennar. Svikamál sem komið
hafa upp á seinni árum, m.a. á Ítalíu
og í Þýskalandi, hafa greinilega
haft mikil áhrif á embættismenn
ESB sem telja sig vera að gæta
hagsmuna neytenda. Lítið bendir
þó til þess að nýja reglugerðin
geri það því að gert er ráð fyrir að
í stað árlegra eftirlitsheimsókna
frá vottunarstofu komi aðeins
eftirlit byggt á áhættugreiningu og
heimsóknum öðru hvoru. Raunar
bendir sívaxandi eftirspurn neytenda
ekki til þess að þeir vantreysti
lífrænt vottuðum vörum því að
á undanförnum áratug hefur sala
þeirra í Evrópusambandslöndunum
fjórfaldast. Aftur á móti er það
alvarlegt mál að stærð lífræns
ræktunar- og beitalands hefur aðeins
tvöfaldast á þessu tímabili þannig að
innflutningur lífrænna afurða eykst
stöðugt.
Minni sveigjanleiki torveldar
aðlögun
Talsmenn lífrænna bænda héldu
því fram með sannfærandi hætti
að ef einhverjir nytu góðs af nýju
reglugerðinni væru það stórbændur
og fyrirtæki og mikil hætta væri á því
að lífræn framleiðsla myndi minnka.
Dæmi var tekið frá Ungverjalandi
þar sem skoðanakönnun snemma
í apríl, skömmu eftir að nýju
reglugerðardrögin voru birt
opinberlega, leiddi í ljós að 40%
lífrænna bænda þar myndu fara aftur
í hefðbundinn búskap eða hætta
alveg. Sem sagt, veruleg hætta á
samdrætti í framleiðslu. Þá var
talið að vegna þeirrar óvissu sem
skapast hefur, og samdrætti ESB í
framlögum til landbúnaðar, mætti
gera ráð fyrir að nýju reglurnar fæli
bændur frá aðlögun að lífrænum
búskaparháttum. Hvað Ísland varðar
eru þetta slæm tíðindi því að verið
er að herða á allri samræmingu og
draga úr svæðabreytileika innan
ESB í anda Lissabon-samningsins.
Þar með þyngist róðurinn við öflun
nokkurra undanþága sem ég og
fleiri hafa verið að vinna að í þágu
aðlögunar að lífrænum landbúnaði
hér á landi, á annan áratug.
Ólafur R. Dýrmundsson Ph.D.
er ráðunautur Bændasamtaka
Íslands í lífrænum búskap og
hefur verið fulltrúi lífrænu
hreyfingarinnar á Íslandi í
Evrópusambandshópi IFOAM í
11 ár. (ord@bondi.is, s. 563 0300
og 563 0317).
Fundað í Brussel um lífrænan landbúnað:
ESB semur nýja reglugerð án samráðs
við lífrænu hreyfinguna
Lamba-
mjólkurduft
Aðeins 9.900kr m.vsk
25kg poki
-Selenbætt
-Vítamínbætt
-Einstaklega
bragðgott
-Drjúgt í notkun
-Tilboð vegna
stimpils
Sendum
um
land allt
Lesandi Bændablaðsins á
Hólmavík hringdi á dögunum
og vildi koma á framfæri
varnaðarorðum til bænda.
Sagðist hann vera mikið á
ferðinni um þjóðveginn milli
Hólmavíkur og Reykjavíkur
og á þeirri leið væri áberandi
hugsunarleysi í gangi varðandi
akstur dráttarvéla.
Sagðist hann oft mæta
dráttarvélum sem væru með gálga
að framan og áföstum göfflum
sem oftar en ekki væru hafðir í
augnhæð ökumanna á fólksbílum
sem á móti koma.
Það þarf engan sérfræðing til að
átta sig á að með slíku aksturslagi
er verið að skapa stórhættu í
umferðinni. Varla þarf að spyrja
að leikslokum ef fólksbíll lendir
framan á gaffli dráttarvélar sem
þannig ekur. Bændablaðið tekur
undir þessa ábendingu lesandans
og hvetur bændur til að sýna
skynsemi og ábyrgð í akstri
dráttarvéla á þjóðvegum landsins
og koma þannig í veg fyrir slys.
Sýni ábyrgð í akstri dráttarvéla