Bændablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. maí 2014 Lesendabás Svæðisfjölmiðlun er mikilvæg fyrir samskipti íbúa, þróun lýðræðis og sköpun sjálfsmyndar. Aðgangur að upplýsingum um samfélagið og möguleiki til þátttöku í umræðum um þróun þess hafa sérstaklega verið tilgreind meðal mikilvægra þátta í lífsgæðum í dreifðari byggðum. Það skiptir máli að hafa „eigin rödd“ sem ber á borð málefni samfélagsins og skapar samtal um mál sem kannski hafa litla þýðingu á landsvísu – og koma ekki til umræðu á þeim vettvangi – en geta skipt íbúa í ákveðnum byggðarlögum eða landshlutum miklu máli. Styrkur „eigin raddar“ felst ekki aðeins í fjölda svæðismiðla heldur ekki síður í gerð þeirra. Ljósvakamiðlar hafa í þessu tilliti ákveðið forskot yfir prent- og netmiðla. Þjónusta starfandi ljósvakamiðla við landsbyggðina í samtímanum er hins vegar mjög takmörkuð. Þeir sinna upplýsingahlutverki að vissu marki en litlu sem engu aðhalds- og umræðuhlutverki og hafa því lítið vægi fyrir svæðisbundið lýðræði. Lýðræðishlutverk fjölmiðla Það er óumdeilt að fjölmiðlar þjóna hlutverki í lýðræðislegri umræðu. Hvernig það hlutverk er skilgreint og hvernig því er best sinnt er hins vegar umdeildara. Eigi almenningur að geta myndað sér upplýstar skoðanir á samfélagsmálum þarf hann að hafa aðgang að sem gleggstum upplýsingum um þá valkosti og þau sjónarmið sem tengjast hverju viðfangsefni. Í þeim efnum spila hefðbundnir fjölmiðlar veigamikið hlutverk, bæði svokallaðir landsmiðlar (sem leitast við að þjóna landinu öllu, t.d. RÚV, Morgunblaðið og DV) en einnig svæðismiðlar. Þeir skapa opið rými fyrir upplýsingadreifingu og umræðu sem er miðlægari en umræða á samskiptavefjum. Síðastliðið ár hef ég (á vegum Háskóla Íslands) stundað rannsókn á svæðisbundinni fjölmiðlun, þróun hennar og hlutverki. Sú rannsókn dregur skýrt fram mikilvægi svæðisfjölmiðla fyrir þróun lýðræðis í nærsamfélagi, ekki síst opinnar umræðu um sveitarstjórnarmál á landsbyggðinni. Lýðræði byggist á virkri þátttöku íbúanna (einkum íbúalýðræði) og að þeir geti með upplýstum hætti tekið þátt í að móta tillögur um mál er varða þá og nærumhverfi þeirra. Svæðisfjölmiðlun er þó ekki bundin við dreifbýli, slíka fjölmiðlun má einnig finna í þéttbýli og eru bæjar- og hverfisblöð dæmi um slíkt. Fjölmiðlar þjóna þremur meginhlutverkum; aðhalds-, upplýsinga- og umræðuhlutverkum. Öll skipta þau máli fyrir þróun og viðhald lýðræðis. Með nokkurri einföldun má lýsa muninum á svæðismiðlum og landsmiðlum með eftirfarandi hætti: Þeir svæðisbundnu dreifa upplýsingum innan svæðis og skapa þar umræðu. Landsmiðlar segja þeim sem búa utan viðkomandi svæðis hvað er að gerast þar. Það hlutverk er vissulega mikilvægt en gerir lítið fyrir lýðræðislegt samtal á svæðinu. Þessi skipting er þó ekki alltaf skýr því hér á landi starfa landsmiðlar í raun sem svæðismiðlar fyrir sitt nánasta umhverfi. Frá almannaþjónustu til afþreyingar Samfelld og skipuleg dreifing upplýsinga, aðhald gagnvart valdi og opin lýðræðisleg umræða er nauðsynleg fyrir öll samfélög – fjölmenn sem fámenn. Hlutverk fjölmiðla er þar fyrst og síðast að veita upplýsingar um frambjóðendur og málefni og vera vettvangur umræðu. Meðan starfsstöðvar RÚV á landsbyggðinni stóðu fyrir svæðisbundnum útsendingum sinntu þær þessum hlutverkum fyrir sín svæði. Á vettvangi þeirra var stofnað til samtals og skoðanaskipta um ýmis málefni, t.d. skipulags- og skólamál einstakra byggðarlaga eða umhverfis- og atvinnumál heils landsvæðis. Þar skapaðist á tíðum öflug umræða um samfélagsmál viðkomandi svæðis, sem hafði mikla þýðingu fyrir íbúana en takmarkaða skírskotun út fyrir svæðið. Þróun í fjölmiðlun hér á landi og í nágrannalöndunum dregur dám af aukinni markaðsvæðingu þar sem skemmtun og afþreying er að ryðja fræðslu og upplýsingagjöf til hliðar. Haldi þessi þróun áfram í sömu átt mun það leiða til einsleitari efnistaka, þar sem umfjöllun um málefni sem ekki þykja „skemmtileg“ eða „söluleg“ – t.d. sveitarstjórnarmál, félagsleg mál og heilbrigðismál – lætur undan síga fyrir léttara og sölulegra efni, þ.m.t. ýmiss konar vöru- og þjónustukynningar eða „lífsstílsumfjallanir“. Þingsályktunartillaga Það er ekki algildur mælikvarði á mikilvægi málefna hvort það sé mat ritstjórna eða einstakra frétta- og dagskrárgerðarmanna hvort efnið eigi erindi til allra landsmanna eður ei. Málefni með þrönga skírskotun geta haft mikið gildi fyrir samfélög, en mál með víða haft litla. Það er því brýn þörf að skapa sterka vettvanga um allt land fyrir lýðræðislega umræðu, fréttamiðlun og upplýsingadreifingu í nærsamfélagi. Ef fólk hefur ekki greinargóðar fréttir af heimasvæði sínu veikir það samfélögin. Veturinn 2004-2005 var lögð fram á Alþingi þingsályktunartillaga þess efnis að kannað yrði með hvaða hætti (beinum eða óbeinum) ríkisvaldið gæti stutt við svæðisbundna fjölmiðla svo þeir gætu eflt lýðræðislega umræðu á sínu svæði. Þrjú meginrök komu fram í umræðunni til stuðnings tillögunni. Í fyrsta lagi að svæðisbundnir miðlar væru mikilvægir fyrir innri umræðu í samfélögum. Í öðru lagi að styrkja ætti miðla sem mættu ákveðnum ritstjórnarlegum kröfum. Og í þriðja lagi væri svæðisfjölmiðla þörf sem vettvangs skoðanaskipta og upplýsingadreifingar vegna fyrirsjáanlegrar sameiningar sveitarfélaga og hættu á að með fleiri íbúum í nýju sveitarfélögunum ykist fjarlægðin milli íbúa og stjórnsýslu. Þingsályktunin fór í gegnum fyrstu umræðu og var að henni lokinni samþykkt með 46 samhljóða atkvæðum. Seinni umræðan náði ekki að fara fram fyrir þinglok og málið dagaði uppi. Sveitarfélög og fjölmiðlar En hvað geta sveitarfélögin gert til að efla fjölmiðlun og lýðræðislega umræðu á sínu svæði? Þau geta ákveðið að styðja markvisst við svæðisbundna fjölmiðlun. Í því skyni er mikilvægt að sveitarfélög komi sér upp fjölmiðlastefnu. Hún þarf ekki að vera flókin eða langorð. Gæti t.d. miðast við tvö meginatriði. Annað væri almennar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa og embættismenn sveitarfélaga varðandi umgengni við fjölmiðla, þar sem leitast væri við að bæta flæði upplýsinga og girða fyrir óeðlileg afskipti af fréttum og umfjöllun. Hitt væri að sveitarfélög styrki upplýsingadreifingu og umræðu á sínu svæði með því að beina auglýsingum (t.d. um framkvæmdir, reglu- eða þjónustubreytingar) í fjölmiðla sem innihalda ritstjórnarefni. Í dag rata slíkar auglýsingar oftar en ekki í landsmiðla, sem sinna viðkomandi sveitarfélagi kannski tilviljunarkennt eða lítið, eða þær birtast í vikulegum auglýsingabæklingum sem innihalda ekkert ritstjórnarefni en hafa góða dreifingu. Með fjölmiðlastefnu myndu sveitarfélögin efla fjölmiðlun á sínu svæði og uppskera vonandi öflugri samfélagsumræðu og þátttöku. Slíkt mætti líka nota til að þrýsta á ríkið að gefa nærfjölmiðlun meiri gaum. Það er undarleg staða að stofnanir ríkisins, t.d. ráðuneyti eða sýslumannsembætti, styrki ákveðna landsmiðla með því að beina flestum sínum auglýsingum til þeirra. Einkum verður þetta sérkennilegt varðandi auglýsingar sem eiga við svæði á landsbyggðinni þar sem svæðisfjölmiðlar hafa mun meiri útbreiðslu og lestur. Sú þróun sem hér er lýst (og varað er við) gerist hægt en ekki í stökkum. Vandamálið við slíka þróun er að oft varar fólk sig ekki á henni fyrr en hún hefur gengið svo langt að ekki er aftur snúið. Standa þarf gegn því að markaðsvædd afþreying taki yfir fjölmiðlana meir en orðið er og ryðji burt umfjöllun og umræðu um mikilvæg samfélagsmál. Þetta er stórt hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag. Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur og verkefnisstjóri hjá Háskóla Íslands. Sveitarfélög og svæðisbundin fjölmiðlun Hrafnkell Lárusson Hvernig drepast plöntur í svellkali og hvers vegna berst lykt frá svellunum? Kalskemmdir hafa á síðustu áratugum að mestu verið bundnar við tún bænda, aðallega á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Nú hafa hins vegar kalskemmdir orðið talsverðar á grasflötum íþróttavalla á höfuðborgarsvæðinu. Þetta tengist svellalögum sem hafa verið meiri en venjulega á túnum og íþróttavöllum. Menn, bæði til sjávar og sveita hafa fundið sérkennilega lykt stíga upp þegar svellin bráðna. Hafa sumir nefnt þetta rotnunarlykt en ég hef kallað ilminn kal-lykt. Íslenskar rannsóknir hafa sýnt hvað gerist þegar grös drepast undir svellum og gefur útbreiðsla svellkals í ár tilefni til að kynna feril svellkals. Plöntur verða fyrir margs konar álagi yfir veturinn. Tré verða helst fyrir frostkali en grös og annar lággróður skemmist helst af svellkali. Svellkal hefur verið algengara í túnum á Íslandi en víðast annars staðar og skapast það aðallega af sveiflukenndri veðráttu. Snjór bráðnar í vetrarhlákum og krapinn frýs síðan í svell þegar hlákunni lýkur. Fjölærar plöntur, eins og flest túngrös, þurfa að anda yfir veturinn, en öndunin er hæg vegna lágs hitastigs. Engu að síður anda þau og öndunin gengur út á það að þau nota súrefni til að brenna kolvetnum, orkuforðanum, sem þau söfnuðu við hörðnun að hausti og brjóta þennan forða niður í koltvísýring og vatn. Þetta er líkt og flestar lífverur, þar á meðal við, gera við öndun. Þegar gegnheil svell leggjast yfir plönturnar gerist þrennt afdrifaríkt. Í fyrsta lagi nota plönturnar upp allt súrefni í svellfrosnu umhverfi sínu. Í öðru lagi verða grösin í súrefnissnauðu umhverfinu að breyta hefðbundinni öndun í svonefnda loftfirrða öndun, en þá myndast ekki lengur bara koltvísýringur og vatn heldur einnig etanól og ýmsar lífrænar sýrur, svo sem mjólkursýra. Í þriðja lagi getur plantan ekki losað sig við þessi öndunarefni og sum þeirra safnast upp í umhverfi plöntunar allt að eitrunarmörkum. Uppsöfnunin verður meiri eftir því sem svellin liggja lengur. Það getur endað með því að frumuhimnur í vaxtarsprotanum skemmist, frumurnar drepast sem leiðir til þess að plantan drepst. Efnin sem myndast við þessa loftfirrðu öndun, efnin sem mynda svonefnda kal-lykt, eru meðal annars etanól, mjólkursýra, eplasýra, maurasýra, ediksýra og smjörsýra. Það er athyglisvert að þetta eru sömu efni og mælast í rúlluböggum, enda eru grösin þar pökkuð í loftþétt plast. Þau anda og fljótlega fara þau líka í loftfirrða öndun og gefa frá sé súrsætan ilm, sambærilega við kal-lyktina. Skemmdir geta orðið mismiklar vegna þess að svellin eru misþétt. Þol plantna gegn svellþoli er mjög mismunandi og hefur þumalfingurreglan verið sú að íslensk túngrös þoli allt að þriggja mánaða svell. Hins vegar þola grös í íþróttavöllum styttri svellatíma, kannski bara 1,5-2 mánuði, meðal annars vegna þess að þau eru veikluð eftir traðk, síslátt og mikla áburðarnotkun. Segja má að skemmdir af völdum svellkals séu eins konar náttúruhamfarir, sem geta valdið tjóni á stóru svæði. Menn geta lítið gert, en þó hafa menn reynt að rjúfa langæ svell með sérstökum svellbrjótum eða þungavinnuvélum. Oftast nægir að rjúfa langvarandi svell einu sinni til að hleypa súrefnisríku loftinu að og hleypa öndunarefnunum út. Það verður auðvitað að gera áður en plönturnar fara að drepast. Vetrarhlýnun loftslagsbreytinganna ætti að gefa vonir um að svellkal á láglendi á Íslandi verði fátíðara eða hverfi í framtíðinni. Það er sameiginlegt hagsmunamál bænda og íþróttavallastarfsmanna að auka svellþol grasanna sem þeir nota. Því miður hafa kynbætur á grösum hérlendis í átt að auknu svellþoli litlu skilað. Bjarni E. Guðleifsson. Heimildir: Bjarni E. Guðleifsson, 1997. Öndun grasa undir svellum. Ráðunauta fundur 1997, 143-151. Bjarni E. Guðleifsson 1994. Meta bolite accumulation during ice encasement of timothy grass (Phleum pratense L.). Proceed- ings of the Royal Society of Edin- burgh 102B 373-380. Þóroddur Sveinsson og Bjarni E. Guðleifsson. Gerjun í rúlluheyi. Ráðunautafundur 1996, 143-156. Svell á túni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.