Bændablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. maí 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
ISUZU D-Max:
Öflugur pallbíll með mikla dráttargetu
Fyrir skömmu sá ég fyrir utan BL
þrjá Isuzu D-Max bíla alla eins
útbúna og tilbúna til afhendingar
fyrir nýjan eiganda, sem er
Vegagerðin. Mig langaði að prófa
og sjá hversu miklar breytingar
væru á bílnum á fjórum árum,
en einn af fyrstu bílunum sem ég
prófaði hér fyrir Bændablaðið var
Isuzu D-Max og birtist sú grein
28. 1. 2010. Á þessum fjórum
árum hefur D-Max breyst bæði
mikið og lítið.
Sama vélin gefur visst traust
Dísilvélin er sú sama og fyrir
fjórum árum, 163 hestöfl við 3.600
snúninga. Ekki gat ég annað heyrt
en að hún væri svipað hávær og fyrr
(ef eitthvað var heldur lágværari,
en sennilega er ég bara að tapa
heyrn). Bíllinn sem ég prófaði
var sjálfskiptur með fimm þrepa
skiptingu (var bara fjögur þrep fyrir
fjórum árum). Persónulega finnst
mér fimm þrepa sjálfskipting ekkert
spennandi í svona vinnuþjark eftir
að hafa prófað sjálfskiptan pallbíl
með sjö þrepa skiptingu. Væri ég
hins vegar að kaupa svona bíl fyrir
mig mundi ég kjósa beinskiptan
D-Max með sex gíra kassa.
Uppgefin eyðsla í blönduðum
akstri er 7,4 á beinskiptum, en 8,4 á
sjálfskiptum. Eftir 150 km akstur á
meðalhraðanum 39 var ég að eyða
9,7 lítrum á hundraðið á þessum
sjálfskipta bíl.
Pallurinn aðeins stækkað
Uppgefin hámarkshleðsla á pallinn er
1.000 kg, sem er óvenju mikið miðað
við sambærilega bíla. Fyrir vikið
ætti þessi bíll að bera vel aukahluti
samanber salt- og sanddreifara,
pallhýsi og fleira, en þessum
hleðslukosti fylgir ókostur þar sem
að fjöðrunin er gerð til að bera svo
mikinn þunga verður bíllinn frekar
leiðinlegur tómur á malarvegum og
þegar farið er yfir hraðahindranir.
Þegar ég var að prófa bílinn var hann
eins og hugur manns á malbikinu, en
á möl svona tómur var hann vægast
sagt hundleiðinlegur. Pallurinn
hefur örlítið lengst og breikkað á
þessum fjórum árum, en fyrir mína
parta mætti pallurinn vera um 20 cm
lengri aftur. Spurningin er þá hvort
það megi vegna reglna.
Mikil breyting inni í bílnum
Nýi bíllinn er allur rýmri að innan,
breiðari og hærri en sá gamli.
Nýtt einfalt mælaborð með meiri
upplýsingar úr aksturstölvu í
mælaborði. Hraðastilling (cruise
control), USB- og Aux-tengi og
fl. Prufubíllinn var Lux-útgáfan af
D-Max, sem er með leðursætum
og því mátti miðstöðin alveg
vera fljótari að hita bílinn upp að
innan, ekki síst fyrir þá sem sitja
í aftursætunum, en þar er ekki
sætishitari eins og í framsætunum,
sem kom sér vel á þessum kalda
morgni sem ég prófaði bílinn.
Stillingar fyrir miðstöðina eru
samt einfaldar og þægilegar í
seilingarfjarlægð fyrir ökumanninn.
Útsýni til allra átta er gott og inni
í bílnum situr maður svo hátt að
það vill minna aðeins á að sitja í
amerískum pallbílum eins og Ford
150 eða jafnvel stærri, en oftar en
einu sinni stóð ég sjálfan mig að
því að líkja þessum bíl við ameríska
pallbíla í huganum á meðan ég
prufuók honum.
Mikil dráttargeta
Vélin er sem áður sagði 163
hestöfl, ágætlega snörp og togar
vel. Uppgefin dráttargeta með
aftanívagn með bremsubúnaði er
3.000 kg (las á einni vefsíðu að
dráttargetan væri 3.500 kg), en
samkvæmt þessu ætti bíllinn vel
að ráða við hestakerru með fjórum
hestum, vélsleðakerru með fjórum
sleðum og vera með pallhýsi í
ofanálag. Það eina sem ég get sett
út á bílinn var hversu stífur hann er
á möl tómur (er oftast ánægður með
fjöðrun bíla á möl, en var engan
veginn sáttur í þetta skiptið), einnig
þegar ég labbaði hringinn í kring
um bílinn við annan mann og var að
dást af öllu króminu á bílnum benti
félaginn á ryðbletti í króminu og
vaknaði þá spurning hvort krómið
sé eitthvað lélegt á bílnum. Ódýrasti
Isuzu D-Max er frá 6.890.000, en
Lux-bíllinn er frá 7.190.000.
Þyngd: 1.950 kg
Lengd: 5.295 mm
Hæð: 1.795 mm
Breidd: 1.830 mm
ISUZU D-Max. Myndir / HLJ
Ætli það sé löglegt að lengja pallinn, og hversu langt? Ryðblettir í nýju krómi, vekur upp spurningar um
endingu króms.
Það er þægilegt að þrífa svona leðursæti, en um leið eru þau leiðinlega köld á vetrum og skapa svitapolla í hita.
Innihitanum er alfarið stýrt með þessum rafbúnaði.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur heitt vatn > sparneytin
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Þvotta og orkuklassi A
· Engin kol í mótor
12 kg
Þvottavél
Amerísk
gæðavara
ÓTRAUÐUR ÁFRAM
MEÐ OLÍU FRÁ COMMA
5
LÍ
TR
A
R
20
L
ÍT
RA
R
20
5
LÍ
TR
A
R
TransFlow SD 15W-40
TransFlow SD 15W-40
TransFlow ML 10W-30
TransFlow ML 10W-30
3.490 kr.
11.900 kr.
3.490 kr.
12.900 kr.
TransFlow SD 15W-40
109.900 kr. með vsk.
25% afsláttur*
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Sími: 535 9000
*TILBOÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
EX
PO
-
w
w
w
.e
xp
o.
is