Skírnir - 01.09.1992, Page 136
398
INGIRÚNAR EÐVARÐSSON
SKÍRNIR
ast við breyttum forsendum hafa viss fyrirtæki að undanförnu
tekið upp eftirfarandi starfshætti:14
• Slík fyrirtæki nýta sér fjölnota tækni í viðleitni sinni til að að-
lagast óstöðugum mörkuðum með skjótum hætti. Margskon-
ar tölvustýrð tæki gera mönnum ekki aðeins kleift að end-
urstilla vélar á skömmum tíma, heldur er einnig unnt að vél-
væða smáar einingar á arðvænlegan hátt.
• Slík fyrirtæki semja hæfni og þekkingu starfsmanna að breyt-
ingum á framleiðslu, tækjabúnaði og eftirspurn eftir vörum. I
mörgum tilvikum er það gert á tvennan hátt. Annars vegar er
dregið úr aðgreiningu starfsgreina, svo unnt sé að þjálfa fjöl-
hæfa starfsmenn eða „þúsundþjalasmiði", sem fást jöfnum
höndum við framleiðslu, viðhald, eftirlit og skýrslugerð. Al-
gengt er að slíkir starfsmenn vinni saman í starfshópum að
lausn vandamála. Hins vegar eru starfsmenn ráðnir til að sinna
einhæfum, slítandi og stöðluðum störfum.
• Slík fyrirtæki aðlaga starfsmannafjölda og mannaflaþörf að
sveiflum í eftirspurn og afkastagetu fyrirtækis. Á þann hátt er
tryggt að aðeins er ráðið starfsfólk sem þörf er á hverju sinni.
Leiðir að því marki eru margvíslegar: Hluti starfseminnar er
boðinn út til verktaka (verktakastarfsemi eykst); starfsfólk er
ráðið á tímabundnum samningum til afmarkaðra verkefna;
starfsmenn eru ráðnir í hlutastörf; fólk er ráðið til vinnu í
heimahúsum, o.s.frv.
• Slík fyrirtæki leitast við að fella launakostnað að breytingum á
vinnumarkaði og velgengni fyrirtækisins.
• Lögð hefur verið áhersla á litlar og meðalstórar einingar sem
eru samtengdar, t.d. með verktakastarfsemi.
Piore og Sabel, sem áður eru nefndir, álíta að efnahagslíf Vest-
urlanda sé nú statt á vegamótum þar sem varanlegur vöxtur efna-
hagslífs sé því aðeins mögulegur að söðlað verði um frá fjölda-
14 Paul Thompson og David McHugh: 1990, Work Organisations, 193-202;
Stephen Wood: 1989, „The transformation of work?“ í The Transformation of
Workt, 1-9.