Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1977, Blaðsíða 75
MÚLAÞING
73
Snjólfssonar, ekkju Árna á Hafursá, Einarssonar prests í Valla-
nesi Árnasonar. Það eins og mætti sýnast að Bjarni hefði verið
sonur Þórunnar og nú væri hún að krefjast fjár síns til að leggja
honum til giftumála við Vilborgu. Hún giftist Árna 1554 og hann
er talinn að deyja stuttu síðar, en rík hjón hafa það verið. Björn
hefur lagt Bjarna fé til giftumálanna og nú sést að Þórunn er ein-
mitt að ná J?ví aftur, fyrst og fremst. Og pau Bjarni og Vilborg
eiga heldur eigi Ásauð og afkomendur þeirra heldur ekki Ás, né
auðræði I>eirrar jarðar, heldur afkomendur Ólafar systur Vilborg-
ar er átti Magnús á Eiðum Vigfússon og var hálfsystir Vilborgar.
Hvað ætlar Þórunn með jjetta fé? Hún veit að máli hennar hef-
ur tapast, sumt að ólögum eins og Björn segir, því Þorleifur bróð-
ir hennar, á Hofsstöðum í Miklaholtshreppi, hafði undan henni
Krossholt með eiði. Finnst henni nú að Bjöm og hans erfingjar
eigi að borga sér það? Er Jætta svipuð kona að drengskap og Þor-
leifur? Eignir hennar úr hjónabandi við Jón Torfason eru í fjar-
lægð frá búsetu Björns og Birni reynist um megn að verja pær
fyrir ágjömum frændum og tengdamönnum Þórunnar. Ætlar
Þórunn að giftast enn? Það gat víst komið til mála. Hún þarf
ekki að vera nema um fimmtugsaldur. Þau Björn og Þórunn hafa
sjálfsagt alið upp Þórunni dóttur Þórðar prests, bróður Þórunn-
ar. Hún átti Finnboga prest á Hofi í Vopnafirði Tumason. Móðir
hans var Margrét Finnbogadóttir en sá Finnbogi var eflaust bróðir
Arnfinns sýslumanns. Nú virðist geta leikið grunur á pví að Þór-
unn Einarsdóttir fari til þessarar fósturdóttur sinnar og frænku á
Hofi og þessi auður lendi }>ar að einhverju leyti innangarðs.
Það kemur brátt að J>ví að Bjarni sonur Finnboga prests, er
líka var prestur, parí að binda hjónalag við Ingibjörgu Vigfús-
dóttur sýslumanns Þorsteinssonar, Finnbogasonar lögmanns.
Ingibjörg var dóttir fyrri konu Vigfúsar, Þorbjargar dóttur Eiða-
Margrétar, og er J>arna firna auður í búi. Það parí mikið til að
leggja lag við Ingibjörgu og vart um J>au auðræði að ræða í garði
Finnboga prests en nú gerist parna hinn mesti auðstaður. Ingi-
björg missir Bjarna fljótlega og giftist aftur, án frændaráðs, sem
ekkjur máttu gera, Bjarna presti Högnasyni og missir hann einn-
ig fljótlega og giftist pá í þriðja sinn, Oddi presti Þorkelssyni frá