Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Side 14

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Side 14
JÓN HNEFILL AÐALSTEINSSON Jökulsdalsmenn og Hallfreðargata Um staðfræði Hrafnkels sögu Freysgoða / Þjóðfræðileg rannsókn á íslendingasögum getur beinst að ýmsum þáttum. í fyrsta lagi má rannsaka þær sagnir sem líkur benda til að séu undirstaða efnis hverrar sögu. Koma þá annarsvegar til greina sagnir sem hugsanlega eiga rætur að rekja til tíundu aldar og hinsvegar þær sagnir sem að líkindum hafa mótast á 11.-13. öld. Marktæk leið til að greina sundur þetta sagnaefni er ef þar bregður fyrir trúarlegum minnum, sem annaðhvort bera keim kristni eða norrænnar trúar, en einnig má bera slíkar sagnir saman við önnur rit eldri og áreiðanlegri svo sem íslendingabók eða Landnámu. (JHA 1987 og 1990). Önnur leið til að rannsaka þjóðfræði íslendingasagna er að kanna það sem segir af háttum og siðum í sögunum, sem þó getur stundum verið tor- velt að tímasetja ákveðið til sögualdar eða ritunartíma eða einhvers- staðar þar á milli. Loks gegnir staðfræði íslendingasagna miklu máli við rannsókn þeirra. Þar ber þó einnig margs að gæta, en sé rétt á málum haldið getur staðfræðin nýst vel sem hjálpargrein við rann- sóknir íslendingasagna. í því sem hér fer á eftir verður hugað að fáeinum þjóðsagnafræði- legum og staðfræðilegum atriðum í Hrafnkels sögu Freysgoða. Stuðst er við nokkrar helstu útgáfur sögunnar við þessar athuganir, en einnig hefur verið hugað að handritum þar sem máli skipti. II Annar kapítuli Hrafnkels sögu Freysgoða hefst þannig: Hrafnkell lagði þat í vanda sinn at ríða yfir á heiðar á sumarit. Þá var Jökulsdalr albyggðr upp at brúm. Hrafnkell.sá, hvar eyðidalr gekk af Jökulsdal. Sá dalr sýndisk Hrafnkatli byggilegri en aðrir dalir, þeir sem hann hafði áðr sét. (ÍF XI, 98). Síðar í sama kapítula segir: Hrafnkell byggði allan dalinn ok gaf mönnum land, en vildi þó vera yfirmaðr þeira ok tók goðorð yfir þeim. Við þetta var lengt nafn hans
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.