Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 15

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 15
MÚLAÞING 13 ok kallaðr Freysgoði, ok var ójafnaðarmaðr mikill, en menntr vel. Flann þróngdi undir sik Jökulsdalsmönnum til þingmanna hans, var linr ok blíðr við sína menn, en stríðr ok stirðlyndr við Jökulsdalsmenn ok fengu af honum engan jafnað. Hrafnkell stóð mjök í einvígjum ok bætti engan mann fé, því at engi fékk af honum neinar bætr, hvat sem hann gerði. (ÍF XI, 99). Þar sem talað er um „allan dalinn“ í textanum er auðsjáanlega átt við Hrafnkelsdal og þar hefur Hrafnkell samkvæmt þessu sett niður vildarmenn sína. Frásögnin af Jökulsdalsmönnum er hins vegar öllu ó- ljósari. Ber þar fyrst til nafngiftin Jökulsdalsmenn. Þar er um óvenju- lega orðmynd að ræða, því að í fornritum eru íbúar einstakra dala gjarnan nefndir „dælir“, svo sem Laxdælir, Vatnsdælir, Sýrdælir, Svarfdælir, Fljótsdælir, svo dæmi séu tekin. Nærtæk skýring á þessari óvenjulegu nafngift gæti verið sú, að höfundur hefði ekki þekkt neina Jökuldæli og sú tilgáta fær stuðning þegar sagan er lesin til enda, því að höfundur hennar virðist ekki þekkja einn einasta Jökuldæling með nafni. Fljótt á litið virðist sögusviðið á heimaslóðum Hrafnkels Freysgoða á Aðalbóli takmarkast við Hrafnkelsdal og þeir fræðimenn sem um Hrafnkels sögu hafa fjallað hafa einnig talið að helstu sögupersónurnar hafi verið búsettar í Hrafnkelsdal. Sé litið þannig á kemur tilvitnunin: ...var linr ok blíðr við sína menn, en stríðr ok stirðlyndr við Jökuls- dalsmenn, ok fengu af honum engan jafnað.. .ankannalega fyrir sjónir. Þessi orð í upphafi sögunnar væru að óreyndu líkleg til að boða deilur eða átök á milli aðalpersónu sögunnar Hrafnkels, og Jökuldæla, en ættu jafnframt að gefa í skyn, að Hrafnkell hefði reynst sínum mönnum í Hrafnkelsdal vel. En eins og þessi orð standa nú í sögunni virðast þau utangátta við meginefni hennar, einhverskonar sagnleif sem lýtur öðrum lögmálum en sagan sjálf. En hvers vegna lætur slíkur hagleiksmaður sem höfundur Hrafnkels sögu setninguna um átök Hrafnkels og Jökuldæla standa, þar sem hún þjónar engum tilgangi í sögunni? Líklegasta skýringin er sú, að þessi setning sé hvorki skáldskapur né hugarburður höfundar, heldur sé hann hér að skrá arfsagnaleif sem fylgt hefur því efni sem hann hafði úr að moða um Hrafnkel Freysgoða er hann setti saman söguna. Næst liggur því fyrir að gaumgæfa hvort nokkuð fleira leynist í sögunni sjálfri er bent gæti til sömu arfsagnaleifar um átök Hrafnkels og Jökul- dæla. Spurningin sem ég leyfi mér í því sambandi að varpa fram et þessi: Er það öruggt, samkvæmt Hrafnkels sögu Freysgoða, að sögu-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.