Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 25
MÚLAMNG
23
Horft af Völlum yfir Lagarfljót þar sem Fellin blasa við. Bak við þau er Fellaheiðin, sem er
hluti af Fljótsdalsheiði, með fönnum hér ogþar. Eftir henni hefur Hallfreðargata legið, enda
skammt frá Heiðarenda til hœgri norður í HaUfreðarstaði. Ljósm. Pétur Eiðsson.
og Hallfreðarstaðir hafi staðið einhversstaðar á Múlanum milli Keldár
og Jökulsár í Fljótsdal, sem hann telur að vel geti hafa heitið Tunga.
(M-G Í975-76, 260-262).
Eins og áður sagði taldi Jón Jóhannesson að ofar í sögunni merkti
innar eða sunnar á Fljótsdalsheiði og Gibson tók undir þessa tilgátu
hans. Er rétt að hyggja fyrst að þessu sérstaklega. Þá er á það að líta
að Fljótsdalsheiði hallar mjög lítið frá suðri til norðurs og er heiðin
nánast sem slétt yfir að líta. Því liggur ekki beint við að tala um að
maður fari ofar yfir heiðina ef maður fer upp frá Kleif í stað þess að
fara upp frá Bessastöðum. Eðlilegra væri að segja að þá færi maður
sunnar, innar eða framar. Þá er einnig óeðlilegt að tala um að fara fyrir
ofan Eyvindarfjöll ef farið er fyrir sunnan þau, því að á þeirri leið líta
menn upp til fjallanna. Svipað verður upp á teningnum þegar hugað er
að Uxamýri, Grautarflóa eða hvaða forað sem það nú var sem Hall-
freður vildi sneiða hjá. Grautarflói og fleiri flóadrög eru suður alla
Fljótsdalsheiði beggja vegna Miðheiðarhálsins. Þeir sem fara göturnar
frá Kleif til Aðalbóls þurfa að kafa Grautarflóa engu síður en þeir sem
fara upp frá Bessastöðum, þó hann sé að vísu ekki eins djúpur á syðri
leiðinni. Á milli Kleifar og Aðalbóls er skemmsta leið yfir Fljótsdals-
heiði ámilli bæja og kemur það því illa heim við það sem segir í sög-