Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 38

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 38
36 MÚLAÞING (Aðalbjörn segir að verkstjóranum, Guðna Nikulássyni, hafi verið gert viðvart um gildi steinsins). Heitið Árnasteinn vekur óneitanlega þá grunsemd, að steinninn dragi nafn af Árna Þórðarsyni, sem nefndur var hinn ríki, og bjó á Arnheiðarstöðum 1718-1771, en af honum er komin Arnheiðarstaða- ætt (sjá Ættir Austf., bls. 1136). Af honum mynduðust þjóðsögur, sem greinir í Þjóðsögum Sigfúsar 9. bindi bls. 32. Sigfús gerir ráð fyrir því, að Árni ríki hafi grafið eftir fjársjóðnum, og að menn hafi etv. „sett nafn grafarans á haugbúann“, sbr. neðan- málsgrein þá sem fyrr var vitnað til. Heldur Sigfús, að Árnasteinn sé raunverulega „dys Arnheiðar“, og hafi heitið Arneiðarsteinn áður. Þetta er vissulega engin fjarstæða, en á móti því mæla ummæli forn- sögunnar um haug Arnheiðar og núverandi örnefni. Sigfús á Skjögrastöðum nefnir steininn Peningastein, og gæti það líka verið upprunalegt nafn, sem hefði breyst fyrir áhrif frá sögum um Árna ríka, enda mun það vera almenn skoðun í Fljótsdal, að steinninn sé kenndur við Ríka-Árna og að hann hafi sjálfur fólgið fjársjóðinn undir honum. Hugleiðing um Arnar-nöfn. Gaman er að velta því fyrir sér, hvort Árna- og Arnheiðar-nöfnin á Arnheiðarstöðum séu ef til vill ekki kennd við menn, heldur trúarlegs eðlis. Hugsanlegt er líka að þau tengist fuglinum erni, en það verður þó að teljast fremur ólíklegt. Það er vel kunnugt, að örninn var trúarlegt tákn víða um heim og er jafnvel enn í dag. M.a. kemur þetta fram í mikilli notkun arnarmynda á skjaldarmerkjum. Frásögn Landnámabókar af landnámi Einars Þorgeirssonar og félaga hans í Öxarfirði skýrir þetta mjög vel: „Þeir settu öxi í Reistargnúp og kölluðu því Öxarfjörð; þeir settu örn upp fyrir vestan og kölluðu þar Arnarþúfu; en í þriðja stað settu þeir kross; þar nefndu þeir Krossás. Svo helguðu þeir sér allan Öxarfjörð". Hér er arnarmerkið greinilega talið jafngilt krossmarki og öxar- merki til landhelgunar. í Landnámabók segir að þeir bræður, Graut-Atli og Ketill þyrmur, synir Þóris þiðranda „fóru úr Veradal til íslands og námu land í Fljótsdal, fyrr en Brynjólfur kæmi út, Lagarfljótsstrandir báðar, Ketill fyrir vestan fljót, á millim Hengiforsár og Ormsár“, og bjó á Arnheið-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.