Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Side 63

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Side 63
MÚLAÞING 61 valds, framkvæmdavalds og dómsvalds, þá kemur fram að höfundar tillagnanna sækja fyrirmynd sína að miklu leyti til hins bandaríska stjórnkerfis. Einnig virðist þangað sótt fyrirmynd að auknu forseta- valdi og æskilegu flokkakerfi. Því er óhikað haldið fram í greinargerðinni, sem fylgir tillögunum, að hin skarpa aðgreining á löggjafarvaldi og framkvæmdavaldi hafi í för með sér betri starfsafköst hjá Alþingi og ríkisstjórn. Eins er það viðhorf ítrekað að reynslan hafi sýnt að Alþingi sé oft ófært um myndun starfshæfrar ríkisstjórnar og því sé eðlilegt að ætla þjóð- kjörnum forseta það verk. c) Einmenningskjördœmi. Að mati fjórðungsþinganna hafði kosn- ingafyrirkomulag, sem byggði á einmenningskjördæmum, marga kosti umfram það þegar kosningareglur gerðu ráð fyrir hlutfallskosningum. Þegar þingmenn voru kjörnir í einmenningskjördæmum áttu þeir að jafnaði að þekkja betur hag og störf fólksins, að mati fjórðungsþing- anna, enda slík kjördæmi tiltölulega fámenn og lítil og því líkur á að þingmennirnir reyndust góðir fulltrúar umbjóðenda sinna. Bent var á að í einmenningskjördæmum hefðu óbreyttir kjósendur aðstöðu til að ráða mestu um framboð, en þegar hlutfallskosningar fóru fram með tilheyrandi framboðslistum, var það yfirleitt í valdi flokksstjórna hverjir skipuðu sætin á listunum. Þannig stuðluðu ein- menningskjördæmi að milliliðalausu sambandi frambjóðenda og kjós- enda. Einnig var það álit fjórðungsþinganna að einmenningskjördæmi stuðluðu að sameiningu kjósenda með skyld sjónarmið og þar með hefðu þau í för með sér fækkun stjórnmálaflokka. Það yki líkur á að hreinn meirihluti skapaðist á Alþingi og forsendur sköpuðust fyrir auk- inni pólitískri ábyrgð stjórnmálaflokka. d) Deildaskipting Alþingis. Tillögur fjórðungsþinganna gerðu ráð fyrir að neðri deild Alþingis yrði skipuð 30 þingmönnum kosnum í ein- menningskjördæmum með sem jafnastri kjósendatölu. Þó var álitið nauðsynlegt að tryggja að ekkert eitt fylki fengi fleiri en Vi þingmanna deildarinnar. Þá fólu tillögurnar í sér að í efri deild skyldu sitja 18 þingmenn, 3 úr hverju fylki, kosnir á fylkisþingum hlutbundnum kosningum. Með þessum hætti yrðu völd og sjálfstæði fylkjanna undirstrikuð. Gert var ráð fyrir að hvor þingdeild gæti haft frumkvæði að lagasetn- ingu og yfirleitt væru þær jafn réttháar. e) Frumkvœði og málsskot. í tillögunum er lögð áhersla á þrískipt-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.