Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 66

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 66
NANNA STEINUNN ÞÓRÐARDÓTHR Dansinn sem aldrei var stiginn Þetta eru minningar um skemmtiferðalag sem teldist nú á dögum ekki trúlegt - á þessum tímum þegar margur maðurinn sér alls konar, misgóðar skemmtanir unglinga, sem nú hafa oftast allan þann útbúnað til ferðalaga sem kemur að haldi hvernig sem viðrar. Þegar farin var sú skemmtiferð sem hér verður frá sagt, þekktust ekki svefnpokar eða stormúlpur og tæplega tjöld, a.m.k. áttu ekki almennir, fátækir ungl- ingar neitt af þessu tagi. En á þessum árum - kringum 1930 - voru að komast í tísku svokall- aðar Atlavíkursamkomur, og frétt um slíka hafði borist niður á firð- ina. Þá kemst á kreik sú hugdetta hjá ungu fólki sem þetta frétti hér á Fáskrúðsfirði, að undur gaman mundi nú vera að komast með, reyna að komast í svona skemmtiferð. Bílvegir voru þá ekki komnir hér um slóðir og ekki bílar. En hér voru bátar, sem hægt var að komast með til Reyðarfjarðar, ef það lukkaðist að fá einhvern þeirra og fólkið yrði það margt að verð yrði viðráðanlegt. Þetta skyldi reynt, og fregnir höfðu menn af því að einn vörubíll væri á Reyðarfirði. Það var talið víst að hægt yrði að fá hann upp í Egilsstaði. Þessu var síðan komið í kring af duglegu forystuliði ungra manna sem sáu um framkvæmdir. Bátur fékkst einnig, og þá var næst að búast til ferðar - og menn klæddust í sín skástu klæði til að fara á fyrstu skemmtireisu sína og mæta í heimsmenningunni í sjálfri Atla- vík. Nú, þá er að segja frá ferðinni og - dansinum sem aldrei var stiginn. Skipstjórinn á bátnum var fullorðinn, vanur og reyndur dugnaðar- sjómaður. Hann tók konu sína með í förina, veður var talið gott, en þó talsverð alda í sjóinn, og bar mest á henni í straumböndum milli Skrúðs og lands. Allt voru þetta Fáskrúðsfirðingar nema tvær persónur, mæðgur úr Reykjavík. Þær höfðu verið gestir hér að staðnum, höfðu frétt af þessu fyrirhugaða ferðalagi og langaði að skoða meira af Austurlandi. Ekk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.