Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 72
METHÚSALEM METHÚSALEMSSON BURSTAFELLI
Ágrip af verslunarsögu Vopnafjarðar
I. Inngangur
Vopnafjörður er einn af elstu verslunarstöðum á íslandi, þangað
sigldu erlendir kaupmenn fyrr á öldum og ber þar mest á Hansaborg-
urunum þýsku. Seint á 16. öld þykjast Liibeckmenn hafa þar forrétt-
indi til verslunar, en 1564 fer
Friðrik II. að seilast eftir
höfnum hér við land og selja þær
á leigu til verslunar þegnum
sínum. Árið 1576 leigir hann
landa sínum Markúsi Hess borg-
arstjóra Vopnafjörð til þriggja
ára. Markús Hess var harð-
drægur maður og rak verslun í
stórum stíl, en ekki fara neinar
sögur af verslunarháttum hans á
Vopnafirði. Danir höfðu nú náð
í litla fingurinn á landanum, en
brátt hrifsuðu þeir alla hendina.
Árið 1602 veitir konungur
þegnum sínum einkaleyfi til
allrar verslunar á íslandi, þrjár
borgir áttu að annast um alla
verslun landsins, Kaupmanna-
höfn, Málmey og Helsingjaeyri. Skyldi hver borg hafa sínar ákveðnu
hafnir að sigla á. Vopnafjörður féll í hlut Málmeyjar og skyldi sá samn-
ingur standa til 1614. Málmeyingar stóðu illa í ístaðinu og þegar einka-
leyfið var framlengt 1614, þá voru allar hafnir teknar af þeim utan
tvær. Siglingaleysið var þá svo óskaplegt um það leyti, að um 30 ára bil
kom ekkert skip til Húsavíkur, svo að Þingeyingar urðu að sækja allar
sínar vörur til Vopnafjarðar og Eyjafjarðar.
Methúsalem Methúsalemsson.