Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Síða 104
102
MÚLAÞING
eiði Benedikts Sæmundssonar um sölu hans á fimmtán hundraða parti
í Borgarhöfn til síra Ögmundar Andréssonar.
í máldaga Kálfafells í Fellshverfi sem talinn er frá um 150052 eru
endurtekin ákvæði fyrri máldaga.
í þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar er birt sögn sem heitir Kamptúns-
kapparnir53. Segir þar frá norðlenskum vermönnum sem reru úr Flálsa-
höfn og höfðust við í verskálum þar sem heitir í Kamptúni. „Var þá
löngum svo glatt á hjalla í Kamptúni að mikið orð fór af því. Var það
talið orðtak þeirra: „Kom þú í Kamptún, ef þér leiðist, þar mun þér
ekki þykja langt.“ Þeir höfðu þar ýmsa leika og þótti fylgja þeim bæði
guðleysi og siðspilling mikil. Lá það orð á vermönnum þar, að þeir
spjölluðu bæði meyjar og manna konur og gerðu sig heimakomna í
næstu býlum.“ Sagan nafngreinir nokkra vermenn, m.a. þá Flrafnkel
og Ásgaut. Síðan segir: „Eitt sinn var landteppudagur í Kamptúni fyrir
norðan kafaldshríð. Varð þá sem oftar gleðskapur og glens mikið. Sló
í mannjöfnuð þar og síðan í veðmál. Sögðust þeir Hrafnkell og
Ásgautur skyldu hlaupa berstrípaðir í hríðinni í rúmin til húsfreyjanna
í Borgarhöfn og Hreggsgerði. Komst Ásgautur alla leið, en Hrafnkell
féll dauður niður þar á leiðinni, sem síðan heitir Kelaaur.“ Margt fleira
segir af þeim Kamptúnsmönnum, en því birti ég þessar tilvitnanir að
það næsta, sem heimildir geta Borgarhafnar, leiðir hugann að Ásgauti
vermanni.
4. júlí 150454 er gert í Skálholti bréf þar sem Ásgautur Ögmundsson
selur Narfa príor á Skriðu tuttugu hundruð í jörðinni Borgarhöfn í
Hornafirði. í bréfinu kemur fram að Ásgautur er sonur síra Ögmundar
Andréssonar og hefur því ekki þurft að leggja á sig harðræði og vosbúð
til að komast í rekkju húsfreyjunnar í Borgarhöfn, jarðarpartinn hefur
hann fengið í arf eftir föður sinn.
Ég tel hins vegar nokkuð augljóst, að þeir eru einn og sami maður-
inn Ásgautur vermaður og Ásgautur Ögmundsson.
Með kaupum klaustursins á Skriðu á fjórðungi jarðarinnar var hafin
barátta klaustursins til að eignast jörðina alla. Ekki er hægt að sjá að
fjarlægðin á milli Borgarhafnar og Fljótsdals hafi þótt nein frágangssök
til að nýta útræðið, og er öruggt að á þeim tíma hefur leiðin milli
Suðursveitar og Fljótsdalshéraðs legið yfir Vatnajökul. Dr. Sigurður
Þórarinsson ritaði greinaflokk í Lesbók Morgunblaðsins, sem hann
nefndi „í veldi Vatnajökuls." Far gerir hann grein fyrir fornum leiðum
yfir Vatnajökul og ástæðum þess að Hálsahöfn lagðist af55.
Þann 2. september 1520 eignast klaustrið á Skriðu næsta fjórðung