Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 110
108
MÚLAÞING
sonar er síðan getið við árin 1392 og 93 vegna deilna hans og Páls Þor-
varðarsonar eins og áður hefur verið vitnað til.
í visitasíubók Brynjólfs biskups Sveinssonar er varðveitt ágrip af
bréfi um ítök Hoffells í Árnanes og Hólajörðum. Bréfið er gert í
Bjarnanesi í Nesjum 9. júní 1390, og það er Runólfur Pálsson sem
tekur eiða og vitnisburð af nokkrum mönnum77.
Þetta bréf hefur gefið tilefni til að eigna Runólfi Bjarnarnes og telja
að þar hafi hann búið. Eins tel ég líklegt að hann hafi átt Hoffell og því
hafi hann látið taka vitni að ítökum jarðarinnar.
Getgátur hafa verið uppi um að börn Runólfs hafi verið Páll og Sól-
veig. Páls er getið tvisvar í skjölum78 og hefur um eitthvert skeið farið
með sýsluvöld frá Jökulsá að Norðfjarðarnípu í umboði Árna biskups
Ólafssonar. Ég tel vafalaust að Páll sé Eyfirðingur, bróðir Höskuldar,
Magnúsar og líklega Marteins Runólfssona Sturlusonar.
Sólveig Runólfsdóttir var dóttir Herdísar Þorgeirsdóttur sem gift var
Gunnlaugi sýslumanni Guðmundssyni. Ég tel ekki ósennilegt að
Teitur í Bjarnarnesi og Sólveig hafi verið hálfsystkini. Eiginmaður Sól-
veigar var Þórður Þorsteinsson sem átti Lauga í Reykjadal79. Þótt
föðurnafn Sólveigar og eignarhald Teits Gunnlaugssonar á Bjarnanesi
bendi til Runólfs Pálssonar, þá tel ég að hún hafi ekki verið dóttir
hans. Sem rök nægir að benda á að Sólveig, sem gift var þingeyskum
stórbónda, hefði væntanlega hlotið óðalið Bjarnanes eftir föður sinn,
ekki hálfbróðirinn Teitur sem ekki var af Runólfi kominn.
Orms Þorsteinssonar er getið í Flateyjarannál þegar hann fór utan
1392, og síðan geta sami annáll og Gottskálksannáll dauða hans í Nor-
egi 139380. Þann 6. júní 141781 í Krossavík í Vopnafirði selur Járn-
gerður Ormsdóttir Gunnlaugi Guðmundssyni jarðirnar Torfastaði og
Skálanes nyrðra í Vopnafirði fyrir lausafé. Ég tel víst að Járngerður
hafi verið dóttir Orms Þorsteinssonar og þau Gunnlaugur bræðrabörn
eins og komið verður að hér síðar. Járngerður hefur verið húsfreyja í
Krossavík og ekkja eftir Eirík Hjaltason sem Nýi annáll segir að hafi
farist 141282. Börn Járngerðar og Eiríks hafa verið síra Ormur sem
prestur var á Hofi í Vopnafirði og Ragnhildur. Þau eru stödd í Krossa-
vík ytri í Vopnafirði 24. maí 1433 og selja þá Jón Bjarnasyni þann part
sem þau áttu í jörðinni Efsta-Felli í Ljósavatnsþingum83.
Síra Guðmundar Þorsteinssonar er fyrst getið í Flateyjarannál við
árið 139184 þegar sagt er frá utanför þeirra bræðra. 1394 segir sami ann-
áll frá útkomu Vilchins Skálholtsbiskups85: „kom vt med honum Jonn
prestr Þordarson ok hafdi vtan verit sex ar ok halldit cross kirkiu ok