Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Síða 128
126
MÚLAÞING
karga, askrjúkandi og hringinn í
kringum Hringtjarnarhöfuðið."
Þegar þau fóru að eldast, Eiríkur og
Gróa, komust þau ekki af án sveitar-
styrks. Var það sem oftar að reki-
stefna varð um það hvar þau væru
sveitlæg. Loksins fundu hreppstjór-
arnir það út að þau hefðu verið fimm
ár í Hlíðarhreppi á þeim tíma er það
nægði til að vinna sér sveit sem nefnt
var. Var Eiríkur drjúgur yfir því og
komst svo að orði er hann var að segja
einhverjum frá þessu: „Pað er nú loks-
ins orðið uppvíst, að við Grói kona
mín eigum fimm ára fororning á Jök-
uldals- og Hlíðarhreppi.“ Gróa fer svo
upp á Jökuldal á hrepp sinn og dó þar.
Var þá Eiríki, sem var kyrr eftir
austur á Héraðinu, gjört aðvart um
dauða konu sinnar, ef hann vildi vera
við jarðarförina, og sagði hann svo
seinna við einhvern er minntist á þetta
við hann: „Ojæja — eg fór hvergi, en
eg gjörði Jökuldælingum boð að þeir
skyldu gjöra útför Grói konu minnar
heiðarlega.“
Það er haft eftir Eiríki, „þó eg sé
einfaldur og ólesinn, þá þarf enginn
maður að láta sér detta í hug að inn-
prenta mér það að æðrdúnsfjórðung-
urinn og blýfjórðungur séu jafnþung-
ir. Nei, það er öðru nær, dúnninn,
sem er laufléttur, en blýskrattinn
óhrærandi.“
Ágúst Blöndal
í síðasta hefti Múlaþings (17) er
mynd á bls. 85 í sýslunefndarsögu
Helga Gíslasonar. Á myndinni er
maður með síma við eyra og Var
óþekktur þegar heftið var prentað. Nú
hafa komið upplýsingar frá Theódóri
Blöndal á Seyðisfirði um að maðurinn
sé Ágúst Blöndal sýsluskrifari í sýslu-
mannstíð Jóhannesar Jóhannessonar.
Myndin er tekin fljótlega eftir að Ari
Arnalds tók við sýslunni 1919.
Leiðrétting við 16. hefti
Neðri myndin á bls. 158 er hliðöfug.
Á myndinni er fólk talið frá vinstri:
Magnús Guðmundsson, Óskar Guð-
mundsson, Guðrún Björnsdóttir, þá
ónafngreint barn og til hægri Allan
Magnússon.
Leiðréttingar við 17. hefti
Glöggur lesandi hefur bent mér á
tvær talnaprentvillur í heftinu:
Bls. 82 neðan við greinaskil á miðri
síðu: „Árið 1884 var ferja sett á
Fljótið hjá Litla-Steinsvaði, endur-
nýjuð 1986.“ Hér á að standa 1886.
Bls. 131: „Tvöföld talsímalína með
fjögurra mm járnþræði, Norðfjörður,
Asknes í Mjóafirði, 15.000 km.“ Hér
er að sjálfsögðu um 15 km að ræða.
Bls. 140: Talan „5“ í 13. línu að
neðan á að hverfa og orðasamband að
veraþannig: „járnhjól með skúffum“.