Jökull - 01.12.1959, Side 9
Myncl 1. Riss af Kötlujökli (Höfðabrekkujökli) og umhverfi hans, gert af Steinþóri Sigurðssyni
1943. 1: Ivatla. 2: Eystri-Kötlukollur. 3: Barði. 4: Kötlujökull. 5: Hvítijökull. 6: Hafursey. 7: Sand-
fell. 8: Kötlustígur. Upp af Hvítajökli eru Huldufjöll. Gilið gegnum Hafursey heitir Klofgil og
eru þess dæmi, að hlaupvatn hafi farið gegnum það í stórhlaupum. Ain vestur af Hafursey er
Sandvatn, sem tekur í sig Múlakvísl að vestan. —Sketchmap of Kötlujökull and its surroundings
by Steinthór Sigurdsson.
snið, sem er 7i/íj m á þykkt. í Jjví eru 77 ösku-
lög og nær Jjað þó ekki yfir allan póstglasíala
tímann. Meiri hluti þessara öskulaga mun vera
úr Kötlu. í sniðum í Mýrdal eru um 30 dökk
lög, flest að líkindum úr Kötlu. Hvergi hefi ég
fundið ljóst öskulag, sem ætla mætti að væri
frá Kötlu komið. Ég hygg að óhætt sé að draga
Jiá ályktun að Katla hafi verið virk a. m. k. í
10 000 ár, að líkindum lengur, og að hún
muni ekki hafa tekið sér eins langar hvíldir og
Hekla eða Öræfajökull.
Víkjum svo að gossögu Kötlu eftir að land
byggðist.
I eldfjallaritum sínum telur Þorvaldur Thor-
oddsen eftirfarandi gos í Kötlu:
Um 900, 1179, 1245, 1262, 1311, 1416, 1580,
1625, 1660, 1721, 1755, 1823 og 1860. Að viðbættu
gosinu 1918 eru þetta 14 gos. Við þessa skrá er
ýmislegt að athuga. Sú ályktun, að gosið hafi í
Mýrdalsjökli á öndverðri 10. öld og hlaupið hafi
farið niður á Sólheimasand, er einungis byggð
á frásögn Landnámu af því, er Loðmundur gamli
í Sólheimum og Þrasi í Skógum stefndu vatns-
hlaupi hvor á annan. Má vel vera, að þessi sögn
eigi rót að rekja til lilaups á Sólheimasandi, en
örugg er sú ályktun ekki, og ekki heldur öruggt
að slíkt hlaup hafi stafað af eldsumbrotum. En
Sólheimasandur ber Jaess glögg merki, að Jrar hafa
mikil jökulhlaup ætt yfir, svo mikil að þau hljóta
að stafa af eldsumbrotum. Þorvaldur hefur það
eftir Jóni Steingrímssyni og Sveini Pálssyni, að
gosin 1245 og 1262 hafi valdið hlaupum á
Sólheimasandi. Þetta er þó öldungis óvíst. Ann-
álar geta aðeins goss í Sólheimajökli og má eins
vel vera að ]:>ar sé átt við Mýrdalsjökul í heild
og að hlaupin hafi komið undan Ivötlujökli.
í Qualiscunque Descriptio Islandiae er talið
um gos í Sólheimajökli 1580 og átt við Mýr-
7