Jökull


Jökull - 01.12.1959, Blaðsíða 33

Jökull - 01.12.1959, Blaðsíða 33
Göngin í Hrútárjökli 25. júní 1954. — The portal of the englacial tunnel of Hrútárjökull. Photo Flosi Björnsson. sept. Hin göngin entust lengur. Þau, sem voru næst hellinum, voru þó fallin að mestu árið eftir og hin nokkru síðar, enda veðruðust þau fljótlega, eftir að þau opnuðust í báða enda, og er þetta svæði nú jökullaust. Um göngin frá í sumar er flest líkt, þó að þau séu öðruvísi í lögun. Þau eru nokkru austar, um 100—150 m vestur frá Ærfjalls- rönd. Hrútá rann þarna veturinn 1957—1958 og eitthvað fram á síðastliðinn vetur (1958 —59). Þau mældust 257 m löng. Þau eru nokkuð jafnhá og veggir og loft tiltölulega regluleg (þó ekki bókstaflega sem á uppdr.). Gólfið er þakið grjóti og möl og hallar h. u. b. um 1—2 gráður, innst 2°—3°. I miðjum göngunum sést þó jök- ull í botni og er vafalaust alls staðar undir, því að göngin opnast ekki út að aurunum, heldur er jökull framan við þau, a. m. k. 9—10 m þykkur. Þakið er nokkuð flatt, en ekki eins slétt og í fyrri göngunum (þar sem þau voru flöt). Innst fara göngin jafnlækkandi unz þau lokast, — þakið nemur við gólfið. Framan til, þar sem útiloftsins gætir meira, er þakið meira skeifu- laga (að fremsta horninu). Veggir eru nokkuð misháir, þannig að skipt- ast á hærri veggur og lægri andspænis. Sést víð- ast greinilega, hvar þak og veggir mætast, en þar, sem göngin eru víðust, flá þeir þó í fram- haldi af þakinu, sérstaklega austan megin. Einhver lagskipting virðist köma í Ijós víða ofan til í veggjum eða þar, sem þak og veggir mætast, sums staðar eru þar smáskot út yfir veggina í framhaldi af þakinu. Jökullinn er þó álíka þéttur í sér alls staðar. Jökullinn er að. mestu hreinn og hvítur inni í göngunum, þó að utan sé hann aurborinn. I haust og í vetur er þakið orðið óreglulegra, því að það sígur smátt og smátt, einkum þar sem göngin eru víðust, 1 miðju. Þar sem veggir eru misháir, sígur það, einkum þeirn megin sem lægri veggurinn er, og veggirnir mislagast nokk- uð líka, síga inn að ofanverðu sums staðar. Nálægt miðjum göngum hefur hæðin frá gólfi 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.