Jökull


Jökull - 01.12.1959, Síða 10

Jökull - 01.12.1959, Síða 10
Mynd 2. Flugmynd af efri hfuta Kötlujökuls. Til vinstri á myndinni teygir norðurbrun Huldufjalla skuggafingur frarn á jökui- inn. Greina má á mynd- inni falijökulinn efst í ICötlujökli en skammt þar upp af er Katla. Til hægri við falljökulinn eru Kötlu- kollar og Barði, niður af Eystri-Kötlukolli. Kötlu- stígur lengst til hægri. — Aerial photo of the u'pper part of Kötlujökull. Katla is situated short behind the ice fall. Ljósm. T. Einarsson Febr. 22., 1948. dalsjökul. Víst er, að laust fyrir 1179 hefur lilaup farið frarn Mýrdalssand, og tekið af bæi, sem sé hlaup það í Höfðá, sem um getur í Þor- lákssögu yngri og deilur risu af milli Þorláks biskups og Jóns Loftssonar, en það hlaup hafði tekið af marga bæi og tvo þá er kirkjur voru á. Eg hallast að þeirri skoðun, er prófessor Einar Olafur Sveinsson setur fram í sinni gagnmerku ritgerð, Byggð á Mýrdalssandi, að vart hafi þetta verið fyrsta Kötluhlaupið á sandinum eftir að land byggðist. Munu það sannmæli er Jón Sig- urðsson sýslumaður í Holti ritar 1756: „Hvað oft jökulhlaup hafi komið yfir Mýrdalssand finnst ekki í rit sett“. Af hlaupinu 1311, Sturluhlaupi, hafa gengið margar sagnir. Fullvíst er þó ekki, að Katla hafi gosið þetta ár, en líklegt má það telja. Urn næsta hlaup, er Þorvaldur nefnir, 1416, er ekki að efa. Ekki er heldur hægt að draga í efa nein af þeim hlaupum sem Þorvaldur telur síðar, og meira að segja hægt að fullyrða að þau hafi verið fleiri en hann telur. Þorvaldur hefur það eftir Birni á Skarðsá og Espólín, að Eyjafjallajökull liafi gosið 1612 og hlaupið í sjó fram. En stundum dottar Hómer, og Þorvaldur gleymir því, sem hann hefur sjálfur látið prenta í Safni til sögu Islands, eftir Þorsteini Magnússyni sýslumanni á Þykkvabæ í Veri, en þar segir berum orðum, að hlaupið hafi farið niður í Alftaver, en vera má, að einnig hafi gosið i Eyjafjallajökli. Frá- sögn af þessum atburðum er að finna í pólsku riti, er út kom 1638, en höfundur þess, Daniel Streyc, á að hafa ferðazt um Islancl skömniu eftir gosið (þótt suniir dragi það í efa). Lengsta goshlé Kötlu frá því um 1180, ef trúa má Thoroddsen, er frá 1416 til 1580 eða 164 ár. Það hefur að vonum þótt grunsamlega langt. I áðurnefndri ritgerð skrifar prófessor Einar Ólafur: „Nýi annáll þrýtur 1430. Eftir það mætti hafa orðið - stórgos, án þess nokkur vitn- eskja væri um það“. En það, að gos gæti hafa orðið á þessu tímabili, sakir þess hve fátt er um heimildir yfirleitt frá 15. öld, sannar vitanlega ekki, að gos hafi orðið. En nú er raunverulega fengin sönnun fyrir því, að stórgos hafi orðið í Kötlu á þessu tímabili. Mun ég nú víkja stutt- lega að þessu. Um sunnanverð Holt og Rangárvelli, svo og um gjörvallar Landeyjar gefur að líta ofarlega í jarðvegi grásvart vikurlag, sem örugglega hefur fallið síðan land byggðist og er eina þykka og grófa lagið, sem fallið hefur yfir Hvolhrepp og sunnanverða Rangárvelli síðan sögur hófust. I húsgrunnum á Hvolsvelli er þetta lag á um 15 cm dýpi og um 4—5 cm þykkt. Þetta lag má rekja til Heklu og af samanburði á útbreiðslu þess og lýsingum á Heklugosum er hægt að álykta með nokkurn veginn fullri vissu að það sé frá Heklugosinu 1510, því sem Jón Egilsson lýsir í Biskupaannálum eftir frásögn Einars afa sins, er var sjónarvottur að því. Það sama gos drap fylgdarmann Eysteins bónda í Mörk, sem kunn- ur er af leikritinu Lénharður fógeti, en Eysteinn og kona hans sluppu nauðuglega undan. Hér í Reykjavík og nágrenni getur víða að líta svart öskulag, að grófleika sem fínn sandur, mjög ofarlega í jarðvegi. Það er misþykkt. Sums staðar sér þess engin merki, en sums staðar er 8

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.