Jökull


Jökull - 01.12.1959, Síða 11

Jökull - 01.12.1959, Síða 11
það yfir 2 cm á þykkt, t. d. hér og þar við Elliða- vatn. Mun þetta langmesta öskulagið, sem lagzt hefur yfir Reykjavikursvæðið síðan súlur Ingólfs rak þar að landi, enda hafa ýmsir viljað fá vitneskju um það, hvaðan það væri komið. Sum- arið 1957 tók ég mig til og rakti nokkuð út- breiðslu þessa öskulags. Eg rakti hana austur fyrir Skíðaskála og þykir mér líklegast, að ösku- lagið sé það sama og áðurnefnda svarta lag, sem ég rakti um suðurhluta Suðurlandsundir- lendisins, frá Eyrarbakka austur undir Eyja- fjöll. Hugsanlegt er þó, að þetta síðarnefnda öskulag sé sama lag og það svarta lag á Hellis- heiði og kringum Reykjavík, sem er næst fyrir neðan áðurnefnda þykka lag, og Þorleifur Ein- arsson kallar B í ritgerð sinni um Hellisheiði. En um það öskulag, sem ég rakti austur eftir Suðurlandsundirlendinu er það að segja, að það er án vafa frá Ivötlu komið. Hefur þetta gos verið eitt af mestu öskugosum Kötlu, síðan sög- ur hófust, og askan einkum borizt til vesturs. Hafi það fallið að sumarlagi, hlýtur það að hafa valdið stórtjóni. Um aldur Jiessa öskulags er það að segja, að þar sem það er að finna í sömu jarð- vegssniðum og Hekluvikurinn frá 1510 er það alls staðar rétt fyrir neðan hann, svo að víða er aðeins um 1/z cm moldarlag á milli. Ég áætla, að þessi Kötluaska hafi fallið um 1490 og mun vart skakka meira en 10 árum til eða frá því ár- tali. Þar með eru Ivötlugosin orðin tvö á 15. öld eins og á flestum öldum síðar. Vafalaust hefur hlaup orðið samfara Jaessu mikla ösku- gosi, þótt hvergi sé þess getið. Ég hef áður leitt að því rök, að annað stórgos — þó ekki úr Kötlu — hafi hellt ösku yfir Austurland á 15. öld, þótt þess sé heldur ekki getið. Sýnir þetta hvað með öðru, liversu ábótavant er skráðum heimildum frá 15. öld. Því hefur eðlilega fyrir löngu verið veitt eft- irtekt, að síðustu aldirnar hefur Ivatla gosið Mynd 3. Séð úr flugvél yfir efri hluta Kötlujökuls til Eystri-Kötlukolls og Barða. - Aerial view of the upper part of Kötlujökull. In the background Eyslri-Kötlukollur ancl the black rockwall. of Bardi. Ljósm. Royal Air Force 1941. 9

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.